Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.03.2015, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 19.03.2015, Qupperneq 70
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54 NAUTA TATAKI Nautatataki, chili, kóriander, kex TÚNA Kolaður túnfiskur, bonito-gljái beikon, sítrónugrassmajó, kex NÆTURSALTAÐUR ÞORSKHNAKKI Grillað toppkál, blaðlaukur, quinoa, beurre blanc HVÍTSÚKKULAÐI OSTAKAKA Ástaraldin, bakað hvítt súkkulaði, kókosís SKÓLAVÖRÐUSTÍGUR 40 · 101 REYKJAVÍK · KOLRESTAURANT.IS Borðapantanir í síma 517 7474 eða info@kolrestaurant.is NÝR SPENNANDI MATSEÐILL Brot af því besta: „Það var þrennt sem ég ætlaði að gera þegar ég var lítil. Ég ætlaði alltaf að verða búðarkona, feg- urðardrottning og ekki gifta mig. Ég er gift og með fjögur börn þannig að ég ætla að láta þann draum að verða búðarkona ræt- ast, “ segir Rakel Hlín Bergsdótt- ir, eigandi verslunarinnar Snúr- unnar, hlæjandi. Í dag verður opnuð verslunin Snúran í húsnæði í Síðumúla en Snúran hefur fram til þessa ein- ungis verið vefverslun. „Þetta var orðið svo rosalega mikið að ég var alveg búin að sprengja utan af mér allt hérna heima,“ segir Rakel um ástæður þess að hún ákvað að opna verslunina. „Þótt fólk sé mikið að panta á net- inu þá er stór hópur sem vill fá að skoða vöruna.“ Snúruna opnaði Rakel fyrir rúmu ári og hafa viðtökurnar verið vonum framar. „Ég ætl- aði bara að vera í námi og skráði mig í master í fjarnámi. Ég hef ekki geta gert neitt í því, þetta er bara búin að vera full vinna síðan ég byrjaði,“ segir hún og hlær. Vöruúrval verslunarinnar mun óhjákvæmilega stækka í kjölfar stærra rýmis. „Ég er búin að bæta við mig svolítið af stærri húsgögnum, stólum, gólfmottum og borðum.“ En verslunin selur meðal annars vörur frá merkjunum Pia Wallén, Herman Cph og íslenska hönnun frá Pyro Pets og Finnsdóttur. Í tilefni af opnuninni verður opnunarteiti í nýjum húskynnum Snúrunnar að Síðumúla 21 klukk- an fimm. - gló Ætlaði alltaf að verða búðarkona Rakel Hlín Bergsdóttir hefur rekið vefverslunina Snúruna í rúmlega ár heiman frá. ALLT Á FULLU Snúran verður opnuð í Síðumúla í dag og það er allt að verða tilbúið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR „Ég er sjúklega lítið fyrir skyndibita en Tower Zinger BBQ-borgarinn á KFC er algjört mega! Ég fæ mér svoleiðis nokkrum sinnum á ári.“ Gestný Rós Guðrúnardóttir, múmínsafnari með meiru. BESTI SKYNDIBITINN Reggístórsveitin AmabAdamA og stuðbandið FM Belfast munu koma fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyj- um í sumar. Sveitirnar eru tvær þær fyrstu sem tilkynnt er að spili á hátíðinni. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer á Þjóðhátíð og meira að segja í fyrsta sinn sem ég fer til Eyja,“ segir Steinunn Jónsdóttir en hún syngur í AmabAdamA ásamt Gnúsa Yones, barnsföður sínum, og Sölku Sól Eyfeld. AmabAdamA gaf í fyrra út plöt- una Heyrðu mig nú sem var ein vinsælasta plata ársins. Óhætt er síðan að fullyrða að lagið Hossa hossa hafi verið sumarsmellur ársins í fyrra en lagið tróndi svo vikum skipti efst á vinsældalistum útvarpsstöðva. „Þetta hefur legið aðeins í loftinu og dálítið síðan þessari hugmynd var fyrst velt upp,“ segir Steinunn spurð um það hvort það hafi legið lengi fyrir að þau spili í Eyjum. „En við fengum þetta ekki staðfest fyrr en í gær.“ Meðlimir hljómsveitarinnar eru alls níu og Steinunn segir að líkleg- ast sé að þau muni sigla með Herj- ólfi til Eyja. „Ég held ég ljúgi engu þegar ég segi að ekkert okkar hafi komið á Þjóðhátíð áður. Mögulega gæti trommarinn hafa spilað þar einu sinni.“ „Ég er spenntastur fyrir hvítu tjöldunum,“ segir Árni Vilhjálms- son, einn söngvara FM Belfast. „Ég er með konu á námskeiði sem segir að ég verði að skoða hvítu tjöldin og smakka matinn þar. Þetta verð- ur smá matartúrismaferð hjá mér.“ Árni hefur einu sinni komið til Vestmannaeyja en þá var hann tólf ára. Hann hefur aldrei komið á Þjóðhá- tíð og heldur að það sama gildi um aðra meðlimi. Allir sem hafa farið á tónleika með FM Belfast vita að þar er ríf- andi stemning og enginn sem ekki dansar. Árni vonar að sú stemning skili sér í brekkuna. „Við ætlum ekkert að draga úr okkar boðskap. Það væri ákjós- anlegast ef Eyjamenn tækju sig til og myndu æfa sig að vera á FM Belfast-tónleikum fram að hátíð- inni,“ segir hann. „Hver veit, kannski sjáum við 15.000 manns hlaupa um Herj- ólfsdal á brókinni einni klæða.“ Forsala Þjóðhátíð- armiða hefst 9. apríl næstkomandi á dalurinn.is. johannolifrettabladid.is AmabAdamA og FM Belfast spila í Eyjum AmabAdamA og FM Belfast eru fyrstu hljómsveitirnar sem staðfest er að spili á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Flestir meðlimir munu sjá sína fyrstu Þjóðhátíð nú. BLYSIN Í BREKKUNNI Um 15.000 manns munu hlýða á sveitirnar um verslunarmannahelgina. Á BRÓKINNI Árni á sviði á Iceland Air- waves síðasta haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ SUMARBAND Reggíið frá AmabAdamA getur breytt óveðri í sólskin. 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 2 F -3 A 9 0 1 4 2 F -3 9 5 4 1 4 2 F -3 8 1 8 1 4 2 F -3 6 D C 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 7 2 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.