Fréttablaðið - 01.04.2015, Blaðsíða 10
1. apríl 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Kíktu á úrvalið
í vefversluninni
á michelsen.is
FOSSIL
36.700 kr.
Daniel Wellington
24.500 kr.
CASIO
5.700 kr.
JACQES LEMANS
19.900 kr.
Fallegar
fermingar-
gjafir
ASA HRINGUR
13.400 kr.
ASA LOKKAR
7.800 kr.
ASA HÁLSMEN
19.300 kr.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
JEMEN Mannréttindafulltrúi
Sameinuðu þjóðanna segir
ástandið í Jemen hafa hríð-
versnað undanfarna mánuði, eða
allt frá því Abd Rammo Mansúr
Hadi forseti hraktist frá höfuð-
borginni 22. janúar síðastliðinn.
Hann skorar á alla aðila átak-
anna að sjá til þess að almenn-
ir borgarar njóti verndar og
fordæmir sérstaklega árásir á
sjúkrahús og aðrar heilbrigðis-
stofnanir.
„Heimili, sjúkrahús, mennta-
stofnanir og innviðir hafa verið
eyðilögð á ýmsum stöðum, og
gert lífið enn erfiðara fyrir fólk
í þessu stríðshrjáða landi,“ segir
Zeid Ra’ad Al Hussein, mann-
réttindafulltrúi Sameinuðu þjóð-
anna, í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér í gær.
„Ástandið í Jemen er sérlega
skelfilegt orðið, þar sem tugir
almennra borgara hafa verið
drepnir á síðustu fjórum dögum.
Landið virðist á barmi algers
hruns,“ segir hann.
Á mánudaginn voru gerðar
loftárásir á Al Mazrak-flótta-
mannabúðirnar í Harad. Þar lét-
ust að minnsta kosti 19 manns,
en líklega þó fleiri.
Í lok síðustu viku hófu Sádi-
Arabar, með stuðningi nokkurra
annarra ríkja, loftárásir á upp-
reisnarmenn húta, sem í septem-
ber síðastliðnum náðu á sitt vald
höfuðborginni Sana. Forsetinn
Hadi flúði þá höfuðborgina.
Stjórnarher landsins er klof-
inn í afstöðu til uppreisnarinn-
ar. Sumir hermenn styðja húta
en aðrir styðja forsetann. Átökin
eru samt enn flóknari því bæði
uppreisnarmennirnir og stuðn-
ingsmenn forsetans hafa átt í
átökum við liðsmenn Al Kaída,
sem hafa staðið fyrir fjölda
árása á fólk í landinu. Þá hafa
vígasveitir Íslamska ríkisins,
sem hrellt hafa íbúa í Sýrlandi
og Írak, einnig hreiðrað um sig í
Jemen í vetur og sprengdu tvær
moskur í Sana fyrr í þessum
mánuði, með þeim afleiðingum
að nærri 140 manns létu lífið og
hundruð manna særðust.
Óttast er að borgarastyrjöld-
in styrki stöðu samtaka á borð
við Al Kaída og Íslamska ríkið.
Fréttaskýrendur segja átökin í
Jemen auk þess hæglega geta
snúist upp í stríð milli Sádi-Arab-
íu og Írans, þar sem Íranar styðja
húta en Sádi-Arabar stjórnina.
Í suðurhluta landsins eru síðan
enn önnur samtök, Al Hirak,
sem berjast fyrir stofnun sjálf-
stæðs ríkis í Suður-Jemen.
Suður-Jemen var sjálfstætt
ríki með kommúnistastjórn á
árunum 1970 til 1990, og naut
stuðnings Sovétríkjanna meðan
þau voru til. Eftir það samein-
uðust Suður- og Norður-Jemen í
eitt ríki.
Jemen sagt að hruni komið
Ástandið í Jemen hefur hríðversnað undanfarnar vikur. Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna fordæmir
árásir á almenna borgara og segir landið á barmi algers hruns. Borgarastyrjöldin styrkir stöðu öfgahópa.
ÍBÚARNIR FORÐA SÉR Í höfuðborginni Sana pakkar fólk saman og fer með búslóð sína burt. NORDICPHOTOS/AFP
Hútar eru kenndir við stofnanda
hreyfingarinnar, Hússein Badreddin al
Hútí, sem féll í átökum við stjórnar-
herinn árið 2004. Stjórnin hafði lagt
fé til höfuðs honum.
Bróðir hans, Abdul Malik al Hútí,
tók við forystunni ásamt tveimur
öðrum bræðrum þeirra. Talið er
að hútar hafi yfir hundrað þúsund
manna herliði að ráða.
Hreyfingin var stofnuð árið 1992
en hóf uppreisn gegn stjórn Jemens
árið 2004. Sú uppreisn hefur staðið
óslitið síðan.
Ræturnar að ólgunni í Jemen má
rekja til ársins 1962 þegar stjórn sjía-
múslima var steypt af stóli í Jemen
eftir að hafa stjórnað þar öldum
saman. Borgarastyrjöld hefur brotist
þar út reglulega allar götur síðan, og
hafa þar tekist á ýmsir þjóðflokkar og
samtök.
Hútar tóku ríkan þátt í mótmælum
gegn Ali Abdúllah Saleh forseta á
tímum „arabíska vorsins“ árið 2011.
Hann hrökklaðist frá völdum árið
2012.
Hútar héldu samt áfram upp-
reisn sinni og náðu Sana, höfuðborg
landsins, á sitt vald síðastliðið haust
og steyptu stjórninni.
Sádi-Arabía hefur áður gripið inn
í átökin í Jemen. Árið 2009 gerðu
Sádi-Arabar loftárásir á húta og
sendu hersveitir til að berjast við þá
beggja vegna landamæranna. Hútar
höfðu þá náð nokkru svæði handan
landamæranna í Sádi-Arabí á sitt vald.
Jemen er þriðja stærsta landið
í Mið-Austurlöndum, næst á eftir
Sádi-Arabíu og Íran, og jafnframt eitt
af fjölmennari ríkjum heimshlutans
með um það bil 25 milljónir íbúa.
HÚTAR Í UPPREISN
HEILBRIGÐISMÁL Saurgerlar finn-
ast í 6,5% sýna frá vatnsveitum
sem þjóna 500 íbúum eða færri.
Í nýrri skýrslu Matvælastofnun-
ar um gæði neysluvatns er lagt
til að áhættuþættir séu metn-
ir í nágrenni vatnsbóla, svo sem
nálægð við rotþrær, hauga og olíu-
tanka.
Efnafræðilegt ástand neyslu-
vatns á Íslandi er almennt mjög
gott og sjaldgæft að óæskileg
efni séu yfir leyfðu hámarksgildi.
Meginhluti efnagreininga hefur
verið gerður á vatni sem veitt er
af vatnsveitum sem þjóna fleiri en
500 íbúum og hafa 99,7% þeirra
sýna uppfyllt kröfur neysluvatns-
reglugerðarinnar.
Hins vegar greindist E.coli í
6,5% sýna frá vatnsveitum sem
þjóna 500 íbúum eða færri. Lak-
ast var ástandið á Austurlandi og
Vestfjörðum, þar sem sagt er erf-
iðara að nálgast grunnvatn en í
öðrum landshlutum.
Í skýrslunni er munur á gæðum
stærri og minni vatnsveitna skýrð-
ur af miklum fjölda lítilla einka-
veitna til sveita, þar sem frágangi
vatnsbóla er enn ábótavant.
Skýrsluhöfundar, María J. Gunn-
arsdóttir og Sigurður Magnús
Garðarsson hjá Vatnaverkfræði-
stofu Háskóla Íslands, mælast til
þess að leitað sé leiða til úrbóta
og að við úrvinnslu gagna sé
bætt við mati á áhættuþáttum í
nágrenni vatnsbóla, s.s. nálægð
við mengunaruppsprettur á borð
við rotþrær, hauga og olíutanka.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Saurgerlar finnast í 6,5% sýna neysluvatns hjá vatnsveitum sem þjóna 500 íbúum eða færri:
Vatnsgæði lökust fyrir austan og vestan
FRÁGANGI ÁBÓTAVANT Munur á
gæðum stærri og minni vatnsveitna
skýrist af miklum fjölda lítilla einka-
veitna til sveita, þar sem frágangi vatns-
bóla er enn ábótavant.
© GRAPHIC NEWSHeimild: Fréttaveitur
Hundruð manna hafa flúið heimili sín vegna átakanna í Jemen,
þar sem loftárásir undir forystu Sádi-Araba hafa nú þegar kostað
tugi almennra borgara lífið.
ÓMANLoftárásir
SÓMALÍA
DJÍBÚTÍ
ERÍTREA
ADEN-
FLÓI
RAUÐA-
HAFIÐ
SÁDI-ARABÍA
Hodeida
Yarim
Taizz
Ataq
MasilaMarib
J E M E N
Socotra
Al Ghaydah
Al Mukalla
Á valdi Húta Á valdi stjórnarinnar Olíulindir
Liðsmenn Al Kaída Aðskilnaðarsamtökin
Al Hirak
Sadah Al Hazm
Al Bayda
Zinjibar
160 km
Al Mazraq: Tugir almennra borgara
fórust í loftárás á flóttamannabúðir
FRAMVINDAN UNDANFARIÐ
Sanaa: Miklar sprengingar í vopna-
geymslu hersins skammt frá höfuð-
borginni
Aden: Loftárásir á uppreisnarsveitir
Húta í síðasta höfuðvígi forsetans
Abrdrabbuh Mansúr Hadí. Hútar
höfðu þar stuðning liðsmanna úr
stjórnarhernum, sem studdu fyrrver-
andi forseta, Ali Abdúllah Saleh
Sádi-Arabía: 150 þúsund manna
herlið bíður útkalls til að berjast
við Húta
Kínverjar: Nærri 600 hafa
farið til Djíbútí og bíða þar
flutnings heim til Kína
ÚTLENDINGAR Í JEMEN
Indverjar: Indland sendir fimm
skip og fjórar þotur til að flytja
heim um 4.000 Indverja. Yfir helm-
ingur þeirra er hjúkrunarfræðingar
Pakistanar: Meira en 500 eru
farnir heim en talið er að um
2.500 séu enn í Jemen
Egyptar: Allt að 7.000 verka-
menn eru í Jemen, þar af 500
kvæntir jemenskum konum
Sri Lanka: 120 bíða brottflutn-
ings til Óman
FJÖLSKYLDUFÓLK FLÝR ÁTÖKIN
3
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:2
6
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
5
9
-D
5
8
0
1
4
5
9
-D
4
4
4
1
4
5
9
-D
3
0
8
1
4
5
9
-D
1
C
C
2
8
0
X
4
0
0
9
B
F
B
0
8
0
s
C
M
Y
K