Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.04.2015, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 01.04.2015, Qupperneq 36
 | 6 1. apríl 2015 | miðvikudagur Startup Iceland fer fram í fjórða sinn dagana 23.-28. maí. Upp- hafsmaður ráðstefnunnar, hinn indverski Bala Kamallakharan, hefur unnið hörðum höndum að því að fá þátttakendur víða að úr heiminum til þess að koma hing- að og kynna sér íslenska nýsköp- un og um leið að leggja henni lið. Bala er giftur íslenskri konu og kom hingað til lands árið 2006. Hann vann á skrifstofu forstjóra Glitnis, Bjarna Ármannssonar, en fékk svo það verkefni að hafa yfi rumsjón með stofnun banka á Indlandi. Þau plön runnu út í sandinn í bankahruninu og Bala missti starfi ð hjá Glitni. Þá voru góð ráð dýr. Bala gekk illa að fi nna vinnu og það var erfi tt fyrir hann að kyngja því. „Ég áttaði mig auð- vitað á því hvaða aðstæður voru uppi á Íslandi. En ég velti samt fyrir mér af hverju ég gæti ekki orðið að liði á Íslandi. Af hverju ég væri ekki metinn að verðleik- um í íslensku atvinnulífi . Ég var mjög miður mín og fór að leita skýringa. Ég staðnæmdist við þá staðreynd að ég er ekki Íslend- ingur. Það væri eina ástæðan,“ sagði hann. Hann taldi á þessum tíma að þrír möguleikar væru í stöð- unni, að fara aftur til Bandaríkj- anna og í gamla starfi ð sitt þar, að hlaupa í fjölmiðla og kvarta yfi r óréttlætinu sem hann mætti. Hann taldi að báðir þessir leikir væru rangir. Þriðji möguleikinn var að byggja upp. Og það var þá sem honum datt í hug að byrja að starfa með frumkvöðlafyrirtækj- um eða því sem líka hefur verið kallað startup-fyrirtæki. Hitti Clara-teymið Hann sá strax að tækifærin gætu leynst hjá hugbúnaðar- fyrirtækjum. „Ég fór og hitti eitt hugbúnaðarteymið, sem var Clara-teymið, og þau voru að reyna að afl a fjár til að byggja upp sitt fyrirtæki,“ segir Bala. Hann segist ekki hafa átt neinn pening og því ekki getað látið þau hafa neitt. En hann gat nýtt tengsl sín til þess að hjálpa þeim að afl a fjár og fékk pening frá fjölskyldu og vinum á Indlandi og samstarfsmönnum í Banda- ríkjunum. Svo var ákveðið að fjárfesta í Clöru. Bala segir að þegar hann byrj- aði að vinna með Clara-teyminu hafi honum orðið ljóst að samfé- lagið hér á Íslandi væri ekki að huga nægilega mikið að nýsköp- un. „Samfélagið var ekki að huga að því að byggja ný fyrir- tæki. Samfélagið var bara að einblína á bankahrunið,“ segir Bala. Þetta hafi verið svolítið mótsagnakennt. Margt ungt fólk hafi verið hér sem horfði björt- um augum fram á veginn, en eldra fólk var almennt mjög nei- kvætt. „Ég hugsaði því hvort ég gæti lagt mitt af mörkum og fór að vinna með þessu teymi. Ég varð eins og þjálfari þeirra. Þau voru mjög fær á sínum sviðum en þau höfðu enga reynslu af því að byggja upp fyrirtæki, byggja upp tekjustreymi. Þau vissu ekki einu sinni hvað tekjustreymi var. Það var mjög margt sem ég hjálp- aði þeim við að gera,“ segir Bala. Hann tekur fram að teymið sem var þarna að baki hafi verið mjög duglegt og verið ótrúlega öfl ugt við að byggja sig upp. Clara var síðar selt fyrir 9 milljónir dala. Það samsvarar 1,2 milljörðum króna. Byrjuðu á bókaklúbbi Bala segir að eftir þetta hafi hann komist að því að það þyrfti að byggja upp frumkvöðlasam- félag. Að tengja frumkvöðlana á Íslandi saman. „Við byrjuð- um á bókaklúbbi. Við hittumst á Cafe Sólon og lásum startup- bækur. Ég leiddi saman nokkra frumkvöðla og við byrjuðum að lesa kafl a og tala um það hvern- ig ætti að byggja upp fyrirtæki,“ segir Bala. Hann hafi strax farið að velta fyrir sér af hverju það væri ekki hægt að gera þetta á breiðari grundvelli. Að búa til einhvern viðburð þar sem frum- kvöðlar gætu hist. Hann hafði samband við Brad Feld, sem hefur fjárfest í nýsköpun í ára- tugi og tekið þátt í að byggja upp fyrirtæki. Feld hafði strax áhuga á að koma og hjálpa honum. Fyrsta skiptið að Ásbrú Þegar Startup Iceland var fyrst haldið, árið 2012, fór það fram að Ásbrú. „Það er saga þar að baki. Ég náði ekki að safna mjög miklu fé því enginn vissi hvað þetta var,“ segir Bala og bætir því við að það hafi þá bara verið einn aðili sem var reiðubúinn til að hýsa þennan atburð ókeypis. Og það var að Ásbrú, þar sem húsnæðið stóð autt. „Það var auð- veldara að halda þennan viðburð í annað skipti og enn auðveldara í þriðja skipti. Nú er komið að því að Startup Iceland er hald- ið í fjórða skipti,“ segir Bala. Hann segir að nú þegar sé búið að ákveða ræðumenn fyrir vorið og fjöldi miða hafi þegar verið seldur. Það hafi gengið mjög vel að undirbúa þetta, þótt fjármagn- ið sé ekki mikið. Einungis 50-60 þúsund dalir, eða sem samsvarar um 7-8 milljónum króna. Bala segist eiga von á mörgum áhrifamönnum á sviði nýsköp- unar hingað á ráðstefnuna. Það þyki einfaldlega spennandi að koma hingað. „Það er bara svo skemmtilegt að svo mikill árang- ur hafi náðst á smárri eyju eins og hér á Íslandi,“ segir Bala. Eftir að Clara var selt hafi þrjú fyrirtæki verið seld, hvert á fætur öðru. Betware, DataMark- et og Modio. Á sama tíma hafi gengið vel að fjármagna QuizUp og Meniga. Fulltrúar þessara fyrirtækja muni verða á meðal ræðumanna. Þá sé hann einnig búinn að biðja Róbert Wessman að halda erindi um Alvogen. Tengslamyndun er markmiðið Bala segir að tengslamyndun sé aðalmarkmiðið með Startup Ice- land. Bæði að frumkvöðlar geti byggt upp tengsl hver við annan, en líka að íslenskir frumkvöðlar geti myndað tengsl við erlenda áhrifamenn. „Ekki til að fá fjár- magn, heldur bara þannig að íslenskir frumkvöðlar geti mynd- að tengsl við menn sem hafa náð árangri á sínu sviði og geta miðl- að reynslu sinni,“ segir hann. Bala segir að Hakkaþonið í Háskólanum í Reykjavík sé líka hluti af Startup Iceland. Hér áður fyrr hafi verið keppt í hakki, sem þýðir að brjótast inn í tölv- ur. Hakkaþonið snúist ekki um það, heldur um að byggja eitt- hvað sem skiptir máli og geti mögulega skapað verðmæti. „Ég vildi byggja upp slíka menningu og við gerðum það,“ segir Bala. Að þessu sinni verði Hakkaþonið haldið í samstarfi Startup Iceland og RU /sys/tur sem er félag innan Háskólans í Reykjavík. „Ég vil byggja upp Startup Iceland þannig að það verði eins og Iceland Airwaves frum- kvöðlanna. Þetta verði staðurinn þangað sem fólk alls staðar að úr heiminum vill koma og sýna fólki hvað það er að gera.“ segir Bala. Og hann segir að það verði auðveldara með hverju árinu að fá menn á ráðstefnuna. Fyrir því séu þrjár ástæður. Í fyrsta lagi sé Startup Iceland að verða betur kynntur atburður. Í öðru lagi viti fólk núna að það sé ekkert mál að komast til Íslands. Og í þriðja lagi þá viti fólk að nýsköpunar- fyrirtækjum gangi vel á Íslandi. Það sé ekki síst þriðja atriðið sem hrífi fólk. Því að fólk skynjar Ísland sem land þar sem hlutirnir verða til. Þar sem fólk getur gert ýmislegt. „Með sögur á borð við Quizup, Modio og Clara, þá eykst áhuginn á Íslandi,“ segir Bala. Verkefni til framtíðar Startup Iceland verður því til frambúðar en Bala er að auki með tvö verkefni í startholunum til að skjóta frekari stoðum undir ráð- stefnuna. Hið fyrra er námskeið í HR sem ber yfi rskriftina „Hvernig á að setja á fót nýsköpunarfyrirtæki?“ Námskeiðið verður ætlað öllum frumkvöðlum, hvort sem þeir eru í doktorsnámi eða BA-námi. Bala bendir á að grundvallaratr- iðin í því að byggja upp fyrirtæki séu mörg þau sömu. „Fjörutíu prósent af því eru sömu grund- vallar atriðin. Mig langar því til að kenna þessi fjörutíu prósent. Síðan geta aðrir byggt ofan á það,“ segir Bala. Hið seinna sem hann ætlar að gera er að byggja upp frum- kvöðlasetur á Íslandi. Frum- kvöðlasetur verður kvöldpró- gramm fyrir fólk sem er í vinnu. Þar munu frumkvöðlar sem hafa byggt upp fyrirtæki koma saman og leiðbeina öðrum við að stofna þeirra eigin fyrirtæki. Ætlast er til að stór hluti nemenda í Frum- kvöðlasetrinu muni útskrifast og stofna um leið eigin fyrirtæki. Bala fagnar því að það sé líka verið að efla frumkvöðlastarf annars staðar, eins og með Start- up Reykjavík, Startup Energy Reykjavík og fl eiri verkefnum. „Og það er frábært að það sé verið að stofna alla þessa sjóði um þessar mundir,“ segir hann. Það verði að halda áfram því verk- efni að byggja upp vöðvaþræði til þess að styrkja samfélagið. Hann vilji byggja upp frumkvöðlasam- félag sem styrkist með tímanum. „Það þarf að vinna stöðugt í frum- kvöðlastarfi nu þannig að við séum sífellt að styrkja okkur og sífellt viðbúin því óvænta,“ segir Bala. Bókaklúbbur varð að Startup Iceland Þegar Bala Kamallakharan missti starfið hjá Glitni hófst hann handa við uppbyggingu. Úr varð Startup Iceland sem bráðum fer fram í fjórða sinn. Bala dreymir um að ráðstefnan verði að Iceland Airwaves frumkvöðlanna. BYRJAÐI 2012 Bala segir að þegar hann byrjaði að vinna með Clara-teyminu hafi honum orðið ljóst að samfélagið væri ekki að hugsa nóg um nýsköpun. Það væru allir of uppteknir af bankahruninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Íslandssjóðir, dótturfélag Íslandsbanka, og Bala tilkynntu fyrir tæpu ári fyrirhugað samstarf við að koma á fót fjárfestingasjóði fyrir sprotafyrirtæki þar sem horft yrði til þess að koma snemma inn í uppbyggingarferli nýrra fyrirtækja og fjárfesta til um þriggja ára. Stefnt var að því að sjóðurinn yrði um fjórir milljarðar. Bala segist enn stefna að því að ljúka fjármögnun sjóðsins, en Íslands- banki hafi ákveðið að hætta við þátttöku í verkefninu. „Þeir eru því ekki hluti af þeim sjóði. En ég ætla að halda áfram með þennan sjóð. Það tekur tíma að afla fjár. Við fengum mikla athygli hjá öllum lífeyris- sjóðunum hér. En ég tel að þar sem allir hinir sjóðirnir lokuðu á undan okkur þá hugsi fjárfestar sem svo að það sé komið nóg. Það séu nógu margir sjóðir sem séu búnir að fjárfesta þarna. Ég held að það sé ekki rétt,“ segir Bala. Hann segist telja að hluti af ástæðunni fyrir því að ekki hafi tekist að fjármagna sjóðinn sé hugsanlega að hann sé ekki Íslendingur. „Ég er kannski að segja eitthvað sem er menningarlega viðkvæmt, en þetta er sannleikurinn. Og ég verð að segja sannleikann. Ísland glímir við fordóma, jafnvel gagnvart fólki eins og mér,“ segir Bala. Þessu þurfi að breyta og það þarfnist umræðu. ÍSLANDSSJÓÐIR HÆTTU VIÐ ÞÁTTTÖKU Í FJÁRFESTINGASJÓÐNUM Ég staðnæmd- ist við þá stað- reynd að ég er ekki Íslendingur. Það væri eina ástæðan. VIÐTAL Jón Hákon Halldórsson jonhakon@frettabladid.is 3 1 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :2 6 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 5 9 -B 2 F 0 1 4 5 9 -B 1 B 4 1 4 5 9 -B 0 7 8 1 4 5 9 -A F 3 C 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 8 0 s C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.