Skessuhorn - 20.06.2013, Qupperneq 13
13FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Ertu á leið í golf, útilegu eða veiði?
Félagsmönnum Stéttarfélags Vesturlands býðst að kaupa
hin ýmsu kort, golf-, útilegu – og veiðikort með verulegum
afslætti. Kortin veita aðgang að 28 golfvöllum, 35
veiðistöðum og á 46 tjaldsvæði víða á landinu.
Kannaðu máið á www.utilegukortid.is , www.golfkortid.is eða
www.veidikortid.is
Stéttarfélag Vesturlands
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Menntaskóli Borgarfjarðar óskar eftir að ráða starfsmann
í 80% starf til að hafa umsjón með dreifnámi við
framhaldsskóladeild í Búðardal.
Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með nemendum, eftirlit með
skólasókn, aðstoð við nemendur í kennslustundum, samskipti
við kennara MB, umsjón með námsaðstöðu og tækjabúnaði og
umsjón með námslotum í Borgarnesi.
Hæfniskröfur
Hæfni í mannlegum samskiptum, menntun sem nýtist í starfi og
áhugi á að byggja upp dreifnám í Búðardal.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra
og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar gefur Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari,
kolfinna@menntaborg.is eða í síma 866-1314. Umsóknarfrestur
er til 5. júlí nk. og skal senda umsóknir ásamt ferilskrá til
Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarbraut 54, 310 Borgarnes eða
á netfangið kolfinna@menntaborg.is
Umsjónarmaður dreifnáms
óskast í Búðardal
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Lista- og menningarsjóður
Stykkishólmsbæjar
Listvinafélag
Stykkishólmskirkju
Miðaverð kr. 1200 Miðasala við innganginn/POSI.
Fjölbreyttir tónleikar í allt sumar - Kynntu þér dagskrána á:
www.stykkisholmskirkja.is Facebook: Sumartónleikar Stykkishólmskirkju
ORGELSTYKKI
Mánudagur 24.júní kl. 20
Friðrik Vignir Stefánsson
Fimmtudagur 27. júní kl. 20
Sveinn Arnar Sæmundsson
Laugardagur 29.júní kl. 16
Örn Magnússon &
Marta Guðrún Halldórsdóttir
Þriðjudagur 2. júlí kl. 20
Douglas Brotchie
Laugardagur 6. júlí kl. 16
Lára Bryndís Eggertsdóttir
Allir á völlinn
Norðurál býður öllum frítt á leikinn
Akranesvöllur – Borgunarbikarinn
ÍA – Breiðablik
Fimmtudaginn 20. júní kl. 19.15
Akranesvöllur – Pepsi-deild karla
Norðurálsleikurinn
ÍA – Keflavík
Mánudaginn 24. júní kl. 19.15
Fyrsta helgiganga í minningu Auð-
ar djúpúðgu verður farin laugar-
daginn 22. júní í Dölum, þar sem
hún nam land fyrir rúmum 1100
árum. Auður djúpúðga Ketilsdótt-
ir var eina konan í hópi landnáms-
fólks sem fór fyrir eigin leiðangri
til Íslands og ein fárra þeirra sem
Landnámabók segir að hafi verið
kristinnar trúar. Gangan hefst með
helgistund við Krosshólaborg í
Dölum klukkan 14.00. Göngufólki
er ráðlagt að safnast þar saman og
koma bílum sínum og farartækjum
þar fyrir. Landnáma segir að Auð-
ur hafi reist krossa við Krosshóla og
haft þar bænahald sitt. Sagt verður
frá heilögum Kólumkilla sem telja
má víst að hafi verið helsti dýrling-
ur kristinna landnámsmanna, sem
komu hingað frá Bretlandseyjum.
Gangan er farin um sólstöður, sem
gegndu stóru hlutverki í siðvenjum
og trú Kelta.
Frá Krosshólum verður geng-
ið að Auðartóftum, þar sem verður
stutt helgistund og þaðan svo geng-
ið að Hvammskirkju, þar sem verð-
ur helgistund með kærleiksmál-
tíð. Þá verður boðið í kirkjukaffi
og göngufólki síðan ekið aftur að
Krosshólaborg. Gert er ráð fyrir að
dagskráin öll taki þrjá til fjóra tíma
og við það miðað að gangan sé fjöl-
skylduvæn, að ungir og aldnir (8-80
ára) geti tekið þátt í henni.
Sr. Anna Eiríksdóttir, sókn-
arprestur, og sr. Gunnþór Inga-
son, prestur á sviði þjóðmenning-
ar, munu stýra helgistundunum, en
þar verða lesnir textar úr íslensk-
um fornbókmenntum og farið með
forn keltneskt trúarefni. Gangan er
farin á vegum starfshóps Þjóðkirkj-
unnar um helgistaði á föruleiðum
og menningar- og ferðamálanefnd-
ar Dalabyggðar. Nánari upplýsing-
ar veitir Jón Egill Jóhannsson, for-
maður sóknarnefndar í Hvamms-
sókn og Anna Eiríksdóttir sóknar-
prestur. mm/fréttatilk.
Auðar- og helgiganga í Dölum í
minningu Auðar djúpúðgu
Gangan hefst með helgistund frá
Krosshólaborg.
Skilti um Gamla sparisjóðinn með
minningu um síðasta íbúa hússins,
Theódór Árna Emanúelsson, var
afhjúpað í Ólafsvík á 40 ára afmæl-
isdegi Theódórs heitins, þriðjudag-
inn 18. júní sl. Skiltið var afhjúp-
að við Grundarbraut 18 en Theó-
dór lést þar í eldsvoða snemma á
síðasta ári. Gamli sparisjóðurinn
er sögufrægt hús og var talið vera
með elstu húsum Ólafsvíkur, en
það var rifið skömmu eftir elds-
voðann. Fjölmennt var á afhjúp-
uninni þrátt fyrir úrhellisrigningu.
Að afhjúpuninni lokinni fóru gest-
ir í Átthaga stofu Snæfellsbæjar þar
sem boðið var upp á kaffiveitingar í
boði Sjávariðjunnar í Rifi en Theó-
dór var starfsmaður fyrirtækisins
og Sigurður Höskuldsson flutti þar
tónlistaratriði.
sko/Ljósm. af.
Theódórs Árna minnst í Ólafsvík
Á skiltinu eru upplýsingar
um Gamla sparisjóðinn
og mynd sem Theódór tók
á Hamri SH-224 þar sem
hann vann.
Faðir Theódórs, Emanúel Ragnarsson afhjúpaði söguskiltið.