Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Side 26

Skessuhorn - 20.06.2013, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Veiðivörur fyrir fjölskylduna Baulan - Sími 435-1440 Afgreiðslutímiþriðjud. til föstud. 12.30 – 18.00 Veiðivörur í miklu úrvali Stekkjarholti 8-10 • Akranesi • 431 4318 • 894 2298 www.veidibudin.is • veidibudin@veidibudin.is Ertu búinn að fá þér Veiðikortið! www.veidikortid.is Veiðitímabilið er byrjað. Kr. 6.900.- 00000 „Þetta er óskabyrjun hjá okkur og við erum mjög sáttir eftir fyrstu veiðidagana. Veiðin lofar góðu ef sumarið verður hæfilega úrkomu- samt til að vatnsbúskapurinn verði áfram í lagi,“ segir Ingólfur Ás- geirsson, einn þremenninganna sem tóku Þverá og Kjarará í Borg- arfirði á leigu á síðasta ár. Hinir tveir eru Davíð Másson og Hall- dór Hafsteinsson en saman reka þeir veiðifélagið Starir ehf. Veiði hófst í Þverá 12. júní síðastliðinn og fékk opnunarhollið 21 lax sem er með allra besta starti í veiðinni í mörg ár. Holl tvö fékk svo 16 laxa. Í Brennunni voru síðasta þriðju- dag komnir 30 laxar á land. Veiði í Kjarará hófst svo þremur dög- um síðar, þ.e. 15. júní og á hádegi á þriðjudaginn, þegar hollið lauk veiðum, voru komnir 54 laxar á land á fjallinu. „Þetta er vel haldinn lax, að stærstum hluta tveggja ára fiskar auk vel haldins smálax inn á milli. Í Kjarará er fiskur kominn upp um alla á og hafa verið að fást laxar á öllum þekktu veiðistöðunum eins og Efra- og Neðra Rauðabergi, í Runka, á Gilsbakkaeyrum, Lamba- streng og víðar. Öll svæði hafa því verið að gefa laxa þó misjafnlega marga,“ segir Ingólfur í samtali við Skessuhorn. Meirihluta laxanna úr Þverá og Kjarará hefur verið sleppt, eins og lög gera ráð fyrir. Ingólfur segir mjög almenna ánægju meðal veiðimanna sem voru á bökkum ánna fyrstu dagana, enda er byrjunin með besta móti, vatnsbúskapurinn góður og þannig kjöraðstæður til laxveiða. Ingólfur segir grunnvatnsstöðuna góða þrátt fyrir að lítill snjór sé í fjöllum, vatn sé þó enn í öllum lækjum. Því mun framhaldið ráðast af hæfilegri úr- komu í sumar eins og áður segir. Þokkalega brattir Aðspurður um hvernig þeim fé- lögum í Störum hafi gengið að selja veiðileyfi á sínu fyrsta ári sem leigutakar árinnar, svarar Ingólf- ur því til að þeir félagar séu þokka- lega sáttir. Þó sé ekki enn búið að selja öll veiðileyfi í sumar. „Er- lendi markaðurinn gekk ágætlega en þar fór öll salan fram á síðasta ári. Við erum m.a. að selja veiði- leyfi í gegnum breskar og banda- rískar ferðaskrifstofur auk beinn- ar sölu. Þeir sem bera því uppi lax- veiðina hjá okkur núna eru ensku- mælandi veiðimenn.“ Ingólfur seg- ir að skipta megi veiðileyfasölunni í þrjá flokka, þ.e. fyrirtækjamark- aðinn, innlenda veiðimenn og er- lenda. „Íslenski markaðurinn er vissulega þungur eins og allsstaðar eins og sakir standa. Erlendi mark- aðurinn stendur undir væntingum okkar og þá er fyrirtækjamarkað- urinn þokkalegur. Auðvitað skipt- ir efnahagur og kaupgeta almenn- ings hér á landi máli og slakt veiði- ár í fyrra hjálpar ekki til.“ Ingólfur segir að með mikilli markaðsvinnu hafi þeir haldið sjó í sölunni erlend- is, mikil vinna við markaðssetningu hafi skilað árangri. „Á heildina litið erum við þokkalega brattir ef tek- ið er mið af sölu veiðileyfa almennt í landinu. Enda hvernig má ann- að vera með svona frábær veiði- svæði eins og Þverá og Kjarará eru í einu fallegasta héraði landsins. Ef ekki er hægt að selja veiðimönn- um leyfi í þessum laxveiðiám, þá er það hvergi hægt. Ef veiðimenn upplifa ánægjulega dvöl við árnar spyrst fljótt út hversu mikil upplif- un er að koma hingað,“ segir hann að lokum. Veiðimenn ánægðir „Það er gaman að veiða í Þverá, áin er skemmtileg og við fengum nokkra fiska og á nokkrum stöð- um,“ sagði Björn K. Rúnarsson sem var einn þeirra sem opnaði í Þverá í Borgarfirði og veiddi vel. Eins og að framan greinir eru nú ríflega 30 laxar komnir á land í Brennunni. „Við veiddum tvo laxa og sáum mjög mikið af fiski,“ sagði veiði- maður sem tíðindamaður Skessu- horns hitti í Brennunni. Ingólfur Ásgeirsson leigutaki var ásamt Þórarni Sigþórssyni tann- lækni og landsþekktri aflakló í opn- un Kjararár um helgina, og veiddu þeir vel. En Þórarinn hefur oft veitt í Kjarará og þekkir hana vel. „Það er alltaf jafn gaman að veiða hérna í Kjarará,“ sagði Tóti og kastaði flugunni á veiðistaðinn Wilson. Nokkru neðar var Jón Sigurðs- son fyrrverandi körfuboltamaður úr KR og var hann búinn að veiða nokkra laxa. Uppi á Eyrunum voru í sambland við nýgengna fiska tveir legnir laxar að stökkva og hafa þeir líklega gengið í ána upp úr miðjum maí. Þeir tóku ekki neitt af því sem veiðimenn buðu þeim. mm Frábær byrjun í Þverá og Kjarará Björn K. Rúnarsson með spegilfallegan lax úr Þverá fyrir nokkrum dögum. Ljósm. GB

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.