Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Síða 27

Skessuhorn - 20.06.2013, Síða 27
27FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Síðastliðinn fimmtudag var blíð- skaparveður á Snæfellsnesi, ef til vill fyrsta almennilega sólskinið þetta sumar. Í hitanum fannst tveimur drengjum í Ólafsvík nauðsynlegt að kæla sig aðeins í sjónum. Þeir Birkir og Elmar gerðu sér lítið fyrir og stukku í sjóinn af bryggjunni á meðan vinir þeirra fylgdust með. Dálítið sopið hveljur, ekki þó mikið, enda sannar hetjur á ferð. sko Óhætt er að fullyrða að fjölbreytn- in verður í fyrirrúmi í tónleikaröð Listvinafélags Stykkishólmskirkju sem ber heitið Orgelstykki og hefst á Jónsmessunni nk. mánudag. Alls verða tónleikarnir fimm á tveim- ur vikum og hefjast þeir klukkan 20 virka daga en klukkan 16 þegar þeir eru á laugardögum. Efnisskrá- in spannar tónsmíðar frá síðustu 400 árum eða svo og á meðan höf- unda eru Bach, Pachelbel, Sigvaldi Kaldalóns, Procol Harum, Britten, Jón Leifs og Böellmann. Á fyrstu tónleikunum leikur Friðrik Vignir Stefánsson organ- isti í Neskirkju í Reykjavík á Klais- orgelið í Stykkishólmskirkju. Strax á fimmtudeginum kemur Skaga- maðurinn Sveinn Arnar Sæmunds- son organisti á Akranesi og leikur í bland yngri tónlist en gengur og gerist á orgelin. Laugardaginn 29. júní kl. 16 koma þau Örn Magn- ússon organisti í Breiðholtskirkju og Marta Guðrún Halldórsdóttir sópransöngkona og flytja efnisskrá fyrir orgel og söng og líta í íslensku handritin eftir tónlist til flutnings. Þriðjudaginn 2. júlí kemur Dou- glas Brotchie sem um árabil var organisti Háteigskirkju í Reykjavík og endahnútinn rekur Lára Bryn- dís Eggertsdóttir orgenleikari bú- sett í Danmörku. Tónleikarnir eru um einnar klukkustundar langir og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangseyrir er 1200 kr. og tekið er við greiðslukortum á tón- leikastað. Allar frekari upplýsingar: www.stykkisholmskirkja.is -fréttatilkynning Hópur sjálfboðaliða frá ungmenna- deild Rauða krossins í Vallakra í Sví- þjóð hefur dvalið undanfarna daga í góðu yfirlæti á Akranesi. Hópurinn samanstendur af tólf fötluðum ung- mennum, félögum þeirra og að- stoðarmönnum, samtals 35 manna hópur. Hluti af dagskrá hópsins var í samstarfi við Rauða krossinn á Akranesi og Þorpið og var með- al annars haldinn fundur þar sem gestir og gestgjafar kynntu verk- efni sín og störf fyrir mannúðar- hreyfingu Rauða krossins. Einn- ig var farið í heimsókn í Fjöliðjuna þar sem hópurinn fékk kynningu á starfseminni og spjallaði við starfs- fólk. als Nú stendur yfir sýningarröð í Leir7 í Stykkishólmi, eins og áður hef- ur verið sagt frá í Skessuhorni, þar sem fjölbreyttur hópur hönnuða og listamanna taka þátt og fjalla í sín- um verkum um mat. Sýningarröðin ber nafnið Matur er manns gaman. Laugardaginn 22. júní næstkomandi opna mæðginin Lára Gunnarsdótt- ir og Georg Pétur Ólafsson sýningu sína Hönnun í tré, sem unnin er úr íslensku lerki og birki. Sýningin er þriðja sýningin af sjö í sýningarröð- inni og stendur hún yfir til 22. júlí. Lára Gunnarsdóttir fór uppruna- lega í grafíkdeild Myndlistar og handverkaskólans en fór fyrir til- viljun að gera hluti út trjám eftir að hún að flutti í Stykkishólm fyrir 21 ári. Á sýningunni verður hún með tréskálar til sýnis. „Það sem ég vinn mest dags daglega eru minni hlutir sem myndu flokkast sem minjagrip- ir. Ég tálga mest út fugla, hesta og slíkt. Öðru hverju tek ég þátt í sýn- ingum og þá geri ég eitthvað meira og stærra,“ segir Lára í samtali við Skessuhorn. „Sonur minn Georg sem var að ljúka sveinsprófi í húsgagnasmíði frá Iðnskólanum í Hafnarfirði er með í sýningunni. Hann smíðaði bekki úr lerki sem sýningarhlut- unum er raðað á,“ bætir Lára við. Eiginmaður Láru, Ólafur Kristófer Ólafsson tekur einnig þátt í sýning- unni. „Hann fór með mér í skóg- arferð norður í Vallaskóg þar sem hann tók ljósmyndir. Á sýningunni verða myndir til sýnis sem teknar voru þar. Það er gaman að við séum öll saman í þessu,“ segir Lára að lokum. sko Þriðja sýning sumarsins af fjór- um var opnuð á þjóðhátíðardag- inn í Norska húsinu í Stykkishólmi. Sýningin er eftir Finn Arnar Arn- arsson og heitir Þjóðhetjur og sýn- ir ljósmyndir af blómum sem uxu á vestfirskum heiðum vorið 2012. Einkunnarorð sýningarinnar eru: „Þegar snjóa leysir eftir langan og kaldan vetur spretta upp hetjur á hæstu hæðum.“ Finnur Arnar er myndlistarmaður og hefur starfað lengi sem leikmyndahönnuður. Í Þjóðhetjum er hann að vinna með hugmyndina um hetjurnar. Meðal annars snýr hann einu helsta tákni Jóns Sigurðssonar, pípuhattinum, á hvolf og gefur honum nýja tilvist og tilgang. Hatturinn er ákveðið tákn um vald og með því að planta við- kvæmum gróðri í pípuhatta verða til ákveðin hugrenningatengsl á milli náttúru og valds, sem hvoru tveggja er vandmeðfarið. Sýningin verður opin til 30. ágúst. sko Dagur hinna villtu blóma var hald- inn víða um land sl. sunnudag. Það eru Flóruvinir, samstarfshópur sjálfboðaliða um rannsóknir á ís- lensku flórunni og verndun henn- ar, sem standa að deginum. Í tilefni hans var efnt til fjölda blómaskoð- unarferða og voru fjórar göngur farnar á Vesturlandi; í fólkvang- inum Einkunnum í Borgarnesi, á Hvanneyri, í Skorradal og Ólafs- dal við Gilsfjörð. Gönguferðirn- ar tóku um tvo tíma en í þeim var boðið upp á fræðslu um algeng- ustu plöntur sem finna má. Afar gott veður var til blómaskoðun- ar að sögn Guðrúnar Bjarnadóttur sem sá um leiðsögn um Einkunn- ir ásamt Hilmari Arasyni. Tóku 20 manns þátt í göngunni. Þetta er níunda sumarið í röð sem dagur villtra blóma er haldinn en fyrsta gangan um Einkunnir var farin í fyrra. hlh Þjóðhetjur er þriðja sýningin af fjórum í Norska húsinu í sumar. Sýningin Þjóðhetjur opnuð í Norska húsinu Þjóðhetjan Lambagras. Orgelstykki í Stykkishólmskirkju Hópurinn sem tók þátt í degi hinna villtu blóma í Einkunnum við Borgarnes. Ljósm. Guðrún Bjarnadóttir. Tóku þátt í Degi hinna villtu blóma Lára sýnir tréskálar sem þessa á sýningunni. Sýningin Hönnun í tré opnuð í Leir 7 Kæla sig í sjónum Hér eru forsvarsmenn hópsins ásamt hluta stjórnar Rauða kross Íslands og Ruth Rautenberg í Þorpinu að máta boli sem Svíarnir létu gera í tilefni af Íslands- ferðinni. Svíar í heimsókn á Akranesi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.