Skessuhorn


Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 35

Skessuhorn - 20.06.2013, Blaðsíða 35
35FIMMTUDAGUR 20. JÚNÍ 2013 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Grundarfjörður tók á móti KFR frá Hvolsvelli í þriðju deildinni sl. laugardags. Bæði þessi lið voru með þrjú stig fyrir leikinn og því í neðri hluta hennar. Gestirnir byrj- uðu betur því strax á þriðju mín- útu komust þeir í 1-0 eftir sofanda- hátt heimamanna. Eftir það tóku heimamenn öll völd á vellinum og fengu vítaspyrnu á 11. mínútu. Úr henni skoraði Hermann Geir Þórs- son og jafnaði metin. Heimamenn héldu áfram að sækja en náðu ekki að koma boltanum framhjá góð- um markverði gestanna. KFR átti svo skot í stöng en fyrir utan það sáu heimamenn um að sækja. Í síð- ari hálfleik var það sama uppi á ten- ingnum. Heimamenn sáu um að sækja en Gestirnir sáu um að skora. Þeir komust í eina skyndisókn á 56. mínútu og komust í 2-1. Eftir það mark lágu þeir til baka en Grundar- fjörður pressaði stíft og átti nokkrar álitlegar sóknir en náðu samt ekki að skora. Það fór því svo að Grund- arfjörður tapaði fjórða leik sínum í röð með markatölunni 2-1. Næsti leikur Grundarfjarðar er gegn liði ÍH á Kaplakrikavelli. tfk Enn og aftur lentu Víkingar Ólafs- vík í þeirri stöðu að fá á sig mark snemma leiks þegar þeir fengu Ís- landsmeistara FH í heimsókn í Pepsídeildinni sl. sunnudag. Það er erfitt gegn jafnsterku liði og FH, að þurfa að breyta skipulagi og blása til sóknar jafnvel á kostnað varnarinnar. FH vann því öruggan sigur á Ólafsvíkurvelli 4:0. Það var varnarjaxlinn Freyr Bjarnason sem fékk góðan tíma til að athafna sig í teignum eftir hornspyrnu og skor- aði hann af öryggi fyrsta mark FH. Upp úr miðjum fyrri hálfleik hafði heimamönnum vaxið ásmegin og náðu þeir þá nokkrum sóknum. Eftir mikið klafs í teignum vildu þeir fá vítaspyrnu en dómarinn var á öðru máli. Skömmu síðar, eða á 35. mínútu, kom annað mark gest- anna og var það af ódýrari gerð- inni. Hreinsun út úr teignum end- aði í fótum Björns Daníels Sverris- sonar sem skaut að markinu. Bolt- inn lenti í fæti varnarmanns og við stefnubreytinguna á boltanum kom Einar markvörður ekki við vörn- um. Staðan var 2:0 fyrir FH í leik- hléi. Heimamenn komu nokkuð grimmir út eftir hlé og pressuðu FH ofar á vellinum en á 52. mín- útu má segja að leikurinn hafi klár- ast. Aftur var það eftir hornspyrnu sem boltinn hafnaði á kolli og síð- an öxl hins miðvarðarins í FH-lið- inu, Guðmanns Þórissonar. Alfreð Már Hjaltalín komst fyrir boltann en dómarinn dæmdi hann inn fyr- ir línu og þar með var staðan orð- in 3:0 fyrir FH. Eftir þetta lögðu FH-ingar áherslu á að halda bolt- anum en Víkingar treystu á skyndi- sóknir. Á 77. mínútu fór Ólafur Páll Snorrason illa með Víkingsvörnina, sendi boltann á fjærstöng þar sem Atli Viðar Björnsson stýrði hon- um í markið. Brynjar Kristmunds- son komst næst því að skora fyr- ir heimamenn en Daði Lárusson markvörður FH bjargaði vel. Loka- tölur 4:0 fyrir FH. Næst mæta Víkingar toppliði KR í Frostaskjólinu nk. sunndag í 8. umferð Pepsídeildarinnar. þá Bjarki Freyr Rúnarsson frá Ólafs- vík hafnaði í þriðja sæti í flokki 18- 19 ára á Evrópumeistaramótinu í ólympískri þríþraut sem fram fór í Alanya í Tyrklandi sl. föstudag. Bjarki er fyrsti Íslendingurinn sem vinnur til verðlauna á EM í grein- inni. Ólympísk þríþraut saman- stendur af sundi, hjólreiðum og hlaupi, allt í einni keppni. Bjarki synti 1.500 metra á tímanum 27,33 mínútur, hjólaði 40 kílómetra á einni klukkustund og 3,9 mínút- um og þá hljóp hann tíu kílómetra á 40,23 mínútum. Faðir Bjarka, Rúnar Jóhannsson, keppti einnig í flokki 40-44 ára á mótinu og hafn- aði hann í 24. sæti. Þá varð Sig- urður Ásar Martinsson í 28. sæti í flokki karla 35-39 ára. Bjarki er 19 ára gamall og hefur lagt stund á þríþraut frá því á síð- asta ári. Í samtali við Skessuhorn kvaðst hann afar sáttur með ár- angur sinn og sagði jafnframt það vera mikla upplifun að fá að taka þátt í stórmóti sem þessu. Aðstæð- ur hafi verið góðar í Alanya sem er á suðurströnd Tyrklands og var um 30 stiga hiti meðan keppni stóð yfir. Næsta verkefni Bjarka er sjálft Heimsmeistaramótið í þríþraut sem fram fer í London í september og hyggst hann að sjálfsögðu æfa vel fyrir það í sumar. hlh Skagamenn léku sinn besta hálf- leik í Pepsídeildinni á þessu sumri þegar þeir sóttu KR-inga heim í Vesturbæinn á sunnudagskvöld- ið. Gestirnir voru betra liðið fram- an af og voru óheppnir að hafa ekki tvö til þrjú mörk í forskot í leik- hléinu. Leikurinn snérist við þeg- ar stundarfjórðungur var liðinn af seinni hálfleik og það dugði KR til að vinna öruggan sigur í leiknum, 4:2. ÍA er enn í tíunda sæti deild- arinnar með 3 stig af 21 mögulegu. Ljóst er að deildin hefur skipst í tvennt, einungis fimm stig skilja að fimm neðstu liðin, Víkinga sem eru í neðsta sæti með eitt stig og Þór í því áttunda með sex stig. Næstu fjórir leikir ÍA eru gegn umræddum liðum og því næstu umferðir mjög mikilvægar fyrir Skagamenn. ÍA byrjaði leikinn í Frostaskjól- inu með tveimur mjög góðum sóknum og þar var Einar Logi Ein- arsson með góðar markatilraunir í bæði skiptin. Á 27. mínútu dró til tíðinda þegar Theodore Furness átti góða fyrirgjöf og Andri Adolp- hsson var fyrstur á boltann og skor- aði af harðfylgi sitt fyrsta deild- armark. Skagaliðið hélt áfram að sækja og minnstu munaði að foryst- an yrði tvö mörk þegar glæsileg fyr- irgjöf Andra Adolphssonar endaði í tréverkinu á marki KR-inga. Þar við sat og í hálfleik var staðan 0:1 fyrir ÍA. Í upphafi síðari hálfleiks fékk Garðar Gunnlaugsson svo al- gjört dauðafæri en varnarmað- ur KR-inga bjargaði snilldarlega í horn. Stuttu síðar, eða á 61. mín- útu, náðu svo heimamenn að jafna leikinn með skoti úr teignum eft- ir að Skagamönnum hafði mistek- ist að hreinsa frá marki eftir horn- spyrnu. Á næstu mínútum hrundi leikur Skagamanna og KR-ingar gengu á lagið og bættu við þrem- ur mörkum í viðbót og staðan allt í einu orðin 4-1. Skagamenn náðu svo að klóra í bakkann í lokin þegar Jón Vilhelm Ákason skoraði laglegt mark með skoti úr teignum. Nið- urstaðan því 4:2 tap í kaflaskiptum leik. Næsti leikur Skagamanna í Pepsídeildinni verður gegn Kefla- vík á Akranesvelli mánudaginn 24. júní, en í millitíðinni leikur ÍA gegn Breiðbliki nk. fimmtudagskvöld í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins einnig á Akranesvelli. þá Við seljum ÖSKJUBÍLA nýja og notaða MERCEDES BENS fólksbíla – jeppa – atvinnubíla. Fágaðir og endingagóðir eðalvagnar KIA fólksbílar – jeppar Flott lína sem vekur eftirtekt Sýningarbílar á staðnum Örugg viðskipti í 30 ár Smiðjuvellir 17, Akranesi Sími 431-2622 Þarft ekki að fara langt www.bilas.is bilas@bilas.is SKE S S U H O R N 2 01 3 Eftirfarandi stóðhestar taka á móti hryssum á Litlu-Fellsöxl og Eystra-Miðfelli í allt sumar. STEINARR frá Skipaskaga IS2008101044 blup 122 Aðaleinkunn: 8,12 M: Sjöfn frá Akranesi (8,43) F: Kvistur frá Skagaströnd (8,58) Verð á folatolli: 75.000 + vsk. Innifalið hagagjald og einn sónar SKAGINN frá Skipaskaga IS2009101044 blup 120 M: Assa frá Akranesi (8,31) F: Álfur frá Selfossi (8,46) Verð á folatolli: 50.000 + vsk. Innifalið hagagjald og einn sónar SKÍRNIR frá Skipaskaga IS2009101043 blup 117 Byggingardómur: 8,33 M: Sjöfn frá Akranesi (8,43) F: Gaumur frá Auðsholtshjáleigu (8,69) Verð á folatolli 50.000 + vsk. Innifalið hagagjald og einn sónar Upplýsingar hjá Jóni Árnasyni s: 899 7440 SKIPASKAGI www.skipaskagi.is S K E S S U H O R N 2 01 3 www.skessuhorn.is Íslensku keppendurnir í Tyrklandi, f.v. Sigurður Ásar Martinsson, Rúnar Jóhansson og Bjarki Freyr Rúnarsson. Hlaut brons á EM í þríþraut Enn eitt tvö – eitt tap Grundarfjarðar ÍA tapaði fyrir KR í tvískiptum leik Eitt af fjórum mörkum KR að verða að veruleika. Ljósm. kr.is FH vann stórsigur á Víkingum Guðjón Á Antoníusson FH-ingur og Tomasz Luba Víkingur í baráttu í leiknum. Ljósm. af.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.