Skessuhorn - 26.06.2013, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 26. tbl. 16. árg. 26. júní 2013 - kr. 600 í lausasölu
Bláa kortið
borgar sig
Með Bláa kortinu færð þú afslátt hjá fjölda
fyrirtækja um allt land. Kortið færir þér
aðgang að Hringtorgi, öflugri upplýsingaveitu
sem heldur utan um öll fríðindi Bláa kortsins.
Korthöfum bjóðast betri kjör m.a. í bíó,
á veitingastöðum, af flugferðum, heilsurækt,
bensíni og ýmsum viðburðum.
Sæktu um Bláa kortið á hringtorg.is.
Á AKRANESI 4.-7. JÚLÍ
LORATADIN LYFIS
CETIRIZIN-RATIOPHARM
Herra stuttermaskyrtur
og pólóbolir
Margir litir og snið
Nýtt Nýtt
Náttúrufegurð er óvíða meiri en á
litlu stöðunum á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi; Hellnum og Arnarstapa.
Þangað sækir á hverju ári gríðar-
legur fjöldi ferðamanna til lengri
og skemmri dvalar. Skessuhorn tók
hús á nokkrum þeim þjónustuaðil-
um sem starfa við að þjóna ferða-
mönnum á svæðinu. Þá er einnig
rætt við starfsmann upplýsingamið-
stöðvar ferðamála á Akranesi.
Sjá bls. 18-20.
Laxveiði hófst víða í ám á Vesturlandi í vikunni sem leið, meðal annars í Laxá í Leirársveit þar sem þessi mynd var tekin.
Veiðimaðurinn ungi heitir Óskar Gísli Búason en þarna hampar hann Maríulaxinum sínum, sem jafnan er stór stund í lífi sér-
hvers veiðimanns. Fiskinn veiddi hann á opnunardegi árinnar sl. fimmtudag í Laxfossi.
Sjá fleiri tíðindi úr stangveiðinni á bls. 25.
Íbúatala Akraness tvöfaldaðist um
síðustu helgi, þegar fram fór Norð-
urálsmót í knattspyrnu fyrir yngstu
knattspyrnumennina í 7. aldurs-
flokki. Lið frá 28 félögum tóku
þátt í mótinu og leiknir voru vel
á sjötta hundrað knattspyrnuleik-
ir frá hádegi á föstudag fram á ell-
efta tímann á sunnudagsmorgni
þegar keppni lauk. Mótið fór fram
í mikilli veðurblíðu og þótti mjög
vel heppnað, en gott skipulag og
framkvæmd þykir eitt að einkenn-
um Norðurálsmótsins.
Sjá nánari umfjöllun á síðu 24.
í blaðinu. þá
Sá sjaldgæfi atburður varð á bæn-
um Nýjabæ í Bæjarsveit aðfararnótt
sl. þriðjudags að þar kastaði hryssa
tveimur folöldum. Hin ellefu vetra
gamla Glódís frá Nýjabæ var eina
ókastaða hryssan á bænum á mánu-
daginn, en í gærmorgun tók heimil-
isfólkið eftir að fjölgað hafði í hólf-
inu þar sem hryssurnar voru á beit.
Þegar að var gáð reyndist Glódís
hafa kastað tveimur folöldum, hesti
og hryssu, sem bæði voru komin á
fætur og á spena, en folöldin eru
undan stóðhestinum Skálmari frá
Nýjabæ.
Í Nýjabæ hefur verið stunduð
hrossarækt í áratugi, en að sögn
Ólafar K. Guðbrandsdóttur bónda
er þetta í fyrsta sinn sem þar fæðast
tvíburafolöld. Hún vissi um tilfelli
þess að við sónarskoðun að hausti
hafi fundist tvíburafóstur, sem
hryssan hefði misst um miðja með-
göngu. Algengast er að ef hryssa fær
tvö folöld þá misfarist þau. Hryss-
unni Glódísi og folöldunum henn-
ar heilsast vel. kf
Norðurálsmót
í sumarblíðu
Ferðaþjónusta
á sunnanverðu
Snæfellsnesi
Tvíburafolöld fæddust í
Nýjabæ og heilsast vel