Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2013, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 26.06.2013, Blaðsíða 17
17MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013 Samstarfshópur um forvarnir í Bor gar byg gð. 16 ára dansleikir og áfengi fara ekki saman! Ljómalind - sveitamarkaður Sólbakka 2, Borgarnesi S: 437-1400 Opið mánudaga-fimmtudaga frá kl. 10-18, föstudaga frá kl. 10-19 og um helgar frá kl. 11-16 „Ég þarf svo oft að vera öðruvísi en aðrir. Þetta var nú bara svona hug- mynd sem droppaði upp og það er svo gaman að vekja viðbrögð sem geta haft áhrif á umræðuna í bæn- um,“ segir Elínborg Lárusdóttir, eða Ellen í Litlu Búðinni eins og hún er gjarnan kölluð. Litla Búðin auglýsti á dögunum rýmingarsölu þar sem boðið var upp á sölu á fatn- aði í kílóavís. Þessi auglýsing vakti talsverða athygli og umtal, kveikti jafnvel spurningu hjá mörgum hvort að Ellen væri að hætta með verslunina. „Það voru svakalega góð viðbrögð við auglýsingunni og margir mjög ánægðir. Konur voru að fá þarna allt upp í átta kjóla fyr- ir fimm þúsund kallinn. Klæðaefni er orðið svo létt í dag. Ég var með þessu að rýma til fyrir nýrri vöru. Mér finnst betra að láta viðskipta- vinina fá vöruna á lágu verði frek- ar en liggja með eldri vöru. Það er þannig í fataversluninni að það safnast alltaf eitthvað upp,“ seg- ir Ellen. Þróaðist út úr heimasölu Ellen segir að það hafi í raun verið fyrir tilviljun sem hún fór út í kaup- mennsku og Litla Búðin hafi orðið til svona stig af stigi. „Þetta byrj- aði 1997 með því að ég tók að mér umboð fyrir snyrtivörur í heima- sölu og var með kynningar heima. Þá bjuggu ég og maðurinn minn, Birgir Snæfeld Björnsson, á Esju- braut 13. Svo gerðist það að Island sem var með innflutning á snyrti- vörunum fékk heimild til að selja vörurnar í verslunum. Þá útbjó maðurinn minn tólf fermetra versl- unarholu í geymsluplássi hjá okk- ur. Þótt þetta væri ósköp lítið versl- unarpláss var þó hægt að koma fyr- ir einum og einum brjóstahald- ara, slæðum og þess konar hlut- um sem þurftu lítið pláss. Þannig varð til verslun sem viðskiptavin- irnir kölluðu gjarnan Litlu Búðina, án þess að ég væri búin að finna nafn á fyrirtækið. Þetta var farið að vinda upp á sig hjá mér. Við ákváð- um því að skipta um húsnæði og keyptum á Vesturgötu 147 þar sem var tvöfaldur bílskúr. Birgir inn- réttaði annan bílskúrshlutann fyr- ir verslunarrými og þar með tvö- faldaðist verslunarplássið hjá mér. Það var rúmt á mér í bílskúrnum með búðina og á þessum tíma fór ég í nagla- og förðunarskóla. Auk snyrtivaranna var ég að selja und- irfatnað. Ég eignaðist stóran hóp viðskiptavina og margir þeirra orð- uðu það við mig hvort ég ætlaði ekki að flytja mig með búðina inn í bæinn,“ segir Ellen. Spurði fyrst Guð Ellen segist hafa verið tvístígandi að auka við sig og færa verslunina inn í bæinn. „Þetta gekk ágætlega á Vesturgötunni og mér fannst í sjálfu sér engin ástæða til breyt- inga. Svo fréttist það sumarið 2005 að Anna Björnsdóttir, sem var með fataverslun hérna á Kirkjubraut 2, væri að hætta með búðina vegna veikinda. Maðurinn minn kom í verslunina til Önnu á þessu tíma- bili og þá kom þetta til tals hvort ég gæti hugsað mér að flytja mig með búðina þangað. Við hjónin erum bæði trúuð og ég átti sam- tal við Guð áður en ég fór að velta þessu verulega fyrir mér. Svo hafði Anna samband og eftir það þróað- ist þetta hratt. Í fyrstu stóð reynd- ar til að ég yrði bara með helm- inginn af plássinu en ég var spennt fyrir hinu rýminu líka, sem snýr út að torginu. Eftir að ég kom hing- að fór ég að versla með allan fatnað á konur og þetta hefur bara gengið ljómandi vel,“ segir Ellen. Vill minnka við sig Aðspurð segir Ellen að fyrstu árin sín með Litlu Búðina á Kirkjubraut 2 hafi hún farið í innkaupaferð- ir erlendis. „Núna seinni árin hef ég bara pantað frá mínum birgj- um. Það er svo þægilegt að skoða vöruna á netinu, maður þarf ekki lengur að fara út til þess,“ seg- ir Ellen. En auglýsingin á dögun- um um fatnaðinn í kílóavís kveikti þá spurningu hjá mörgum hvort hún væri að hætta með verslunina og reyndar er Ellen búin að aug- lýsa hana til sölu. „Já, það kemur nú ekki til að góðu. Ég er slæm af gigt og þetta er orðin alltof mikil vinna fyrir mig. Þess vegna stefni ég að því að selja húsnæðið og minnka við mig. Þegar það selst ætla ég að skoða nýjar forsendur. Litla Búðin er ekki að hætta og ég ætla að vera áfram með förðunina og handsnyrtinguna í nöglunum. Þjóna áfram þeim stóra viðskipta- hópi sem ég á þar,“ sagði Ellen í Litlu Búðinni að endingu. þá Þetta hefur bara gengið ljómandi vel Spjallað við Ellen í Litlu Búðinni á Akranesi Elínborg Lárusdóttir, Ellen í Litlu Búðinni, til vinstri ásamt Valgerði Sólveigu Sigurðardóttur, sem hún segir bestu starfsstúlku sem hægt er að hugsa sér. Litla Búðin á Kirkjubraut 2 á Akranesi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.