Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2013, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 26.06.2013, Blaðsíða 25
25MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013 Veiðivörur fyrir fjölskylduna Baulan - Sími 435-1440 Afgreiðslutímiþriðjud. til föstud. 12.30 – 18.00 Veiðivörur í miklu úrvali Stekkjarholti 8-10 • Akranesi • 431 4318 • 894 2298 www.veidibudin.is • veidibudin@veidibudin.is Veiði hófst í Laxá í Leirársveit fimmtudaginn 20. júní. Það var Hallfreður Vilhjálmsson á Kambs- hóli sem landaði fyrsta laxi sum- arsins, átta punda hrygnu. Að sögn Hauks Geirs Garðarssonar leigu- taka hafa sést laxar í Laxfossi frá því 5. júní þannig að laxinn var mættur tímanlega þetta sumarið. Veitt er á fjórar stangir fyrstu dagana. „Veðr- ið var ekki það besta fyrir veiðina; glampandi sól og hiti, en vatn er mjög gott í ánni eftir vætutíð síð- ustu vikur. Þrátt fyrir það var sett í átta laxa og var sex af þeim landað. Fjórir voru vænir tveggja ára laxar og tveir fallegir eins árs fiskar. Þá sáust nýgengnir laxar renna sér upp í ána á síðdegisflóðinu á fimmtu- daginn. Þessi byrjun lofar góðu og veiðimenn eru bjartsýnir á gott veiðisumar,“ segir Haukur Geir. Laxá í Kjós byrjaði vel „Þetta var frábær opnun hérna, komnir sjö laxar og mest flottir fiskar. Fiskurinn kemur vel hald- inn úr sjó,“ sagði Jón Þór Júlíusson við Laxá í Kjós á fyrsta degi veiði þar, en áin var opnuð sl. fimmtu- dagsmorgun. „Við fórum upp á fjall og fengum tvo laxa,“ sagði Júlíus Jónsson þegar við hittum hann við Pokafoss, en það svæði er heldur lakara svona snemma sumars. Frábær byrjun í Langá Fyrsti dagur veiða í Langá á Mýr- um lofar góðu, en morgunvaktin á föstudaginn fékk en 20 laxa þrátt fyrir glampandi sól og blíðu, sem ekki er endilega óskaveður veiði- mannsins. Opnunarhollið í ánni náði hvorki meira né minna en 80 löxum á fimm vöktum, en í opnun- inni er bæði veitt á maðk og flugu. Mikið af laxi var um helgina á Breiðunni og í Strengjunum og þar komu fyrstu laxarnir á land rétt eft- ir að veiði hófst klukkan 7 á föstu- dagsmorgninum. Á Breiðunni var lax að bylta sér um allt en tók þó frekar grannt. Lax var kominn upp um alla á og meðal annars ofarlega á miðsvæðinu fékkst lax fyrsta morg- uninn úr Hreimsáskvörn og Renn- unum. Þá kraumaði Bárðarbunga af lífi og laxar sáust víða annars stað- ar í ánni. Langá er í frábæru vatni og forðinn í Langavatni það góður að útlit er fyrir að áin nái að vera í kjörvatni í allt sumar. Miðað við þessa opnun stefnir Langá í mjög gott sumar. Frú Þórdís missti stórfisk Bjarni Júlíusson formaður Stanga- veiðifélags Reykjavíkur var við veiðar í Hítará um helgina ásamt fjölskyldu sinni. „Það eru komn- ir níu laxar á land eftir þrjár vakt- ir og sjö sluppu af að auki. Góð- ur reytingur af fiski er að ganga í strauminn,“ sagði Bjarni þegar við hittum hann við veiðihúsið Lund. Eiginkona Bjarna, Þórdís Bridde, var að koma flugunni. ,,Ég spái fantagóðri veiði í vikunni í Hít- ará,“ sagði Bjarni og var að velja af kostgæfni flugurnar sem hann ætlaði að egna fyrir Hítarárlaxana. Því má svo bæta við að frú Þórdís missti sannkallaðan stórlax, ekki undir 16 pundum, rétt eftir að við fórum af svæðinu. Svona er veið- in. Þetta var fínn smálax Veiði er nú hafin í Grímsá í Borg- arfirði. Tíðindamaður Skessu- horns hitti hressa veiðimenn við ána á sunnudaginn. Létu þeir vel af sér þrátt fyrir að aðstæður gætu verið betri, en fyrri hluta sunnu- dags var sól og mjög bjart. „Við fengum tvo laxa í gær feðgarnir, ég og Örvar,“ sagði Ólafur Rögn- valdsson frá Hellissandi sem var við veiðar skammt frá Fossatúni, á einum af fallegri stöðunum við Grímsá. „Aðstæður eru ekki góð- ar hérna við ána í svona mikilli sól, en þetta kemur allt og ég held að sumarið verði gott,“ sagði Óli Rögg. Nokkru ofar, eða í Strengj- unum, var Júlíus Jónsson að setja í lax. Fiskurinn var sprækur. „Hann tók græna flugu, veit ekki hvað hún heitir,“ sagði Júlíus og landaði laxinum. „Þessi fiskur fær fram- haldslíf eins og hinir,“ bætti hann við. Áður en hann sleppti laxin- um mældist hann 62 sentimetrar, leit vel út og var grálúsugur. Fyrsti dagurinn í veiði í Grímsá var á laugardaginn og fengust 12 lax- ar þá og áfram veiddist þokkalega framan af sunnudeginum. Síðar um daginn breyttist veiðin og þá var eins og hendi væri veifað; stór- aukið líf komst í veiðina og á há- degi á mánudaginn höfðu 24 lax- ar verið færðir til bókar á tveimur fyrstu dögunum. mm/gb Góðar fréttir víða úr laxveiðiánum Hallfreður Vilhjálmsson á Kambshóli með fyrsta lax sumarsins, átta punda hrygnu úr Laxá í Leirársveit. Ljósm. hgg. Þórdís Bridde kastar flugunni fyrir laxa í Hítará. Ljósm. gb. Glímt við lax í Laxá í Kjós sl. fimmtudagsmorgun. Ljósm. gb. Veiði hófst á Arnarvatnsheiði 15. júní. Ágætlega hefur veiðst í vötnunum, eins og glögglega má sjá á þessari mynd. Hún er af opnunarhollinu sem dvaldi í stóra veiðihúsinu við Úlfsvatn, en um fimmtán manna hópur fékk 235 fiska, mest í Úlfsvatni og Hávaðavatni. Ljósm. Grétar Þorgeirsson. Ólafur Rögnvaldsson á Hellissandi við veiðar í Grímsá á sunnudaginn. Ljósm. gb. Júlíus Jónsson með laxinn sem hann veiddi í Strengjunum í Grímsá en sleppti aftur. Ljósm. gb.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.