Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2013, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 26.06.2013, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Við seljum bíla frá BL nýja og notaða HYUNDAI – RENAULT – OPEL DACIA – SUBARU – NISSAN – BMW LAND ROVER/RANGE ROVER Fólksbílar – jeppar pallbílar – sendibílar Hvergi meira úrval glæsilegra bifreiða Sýningabílar á staðnum Örugg viðskipti í 30 ár Smiðjuvellir 17, Akranesi Sími 431-2622 Þarft ekki að fara langt www.bilas.is bilas@bilas.is SKE S S U H O R N 2 01 3 Enn og aftur fóru leikmenn ÍA og stuðningsmenn svekkt- ir af velli eftir tap á heimavelli í sumar. Það voru Keflvík- ingar sem komu í heimsókn í Pepsídeildinni á mánudags- kvöldið. Suðurnesjamenn báru sigur úr bítum í hörku- leik 3:2. Bæði lið skörtuðu nýjum þjálfurum í leiknum, Kristján Guðmundsson hjá Keflavík og Þorvaldur Ör- lygsson hjá ÍA. Að loknum þessum leik og áttundu umferð er Keflavík í 8. sætinu með sjö stig en Skaginn er sem fyrr með aðeins þrjú stig í 10. sæti. Athyglisvert er að Skagamenn eru þó ekki í fallsæti og hafa aldrei verið þetta vorið. Fylkir er með tvö stig og Vík- ingur Ólafsvík með eitt. Þessi staða gæti breyst í næstu umferð, því þá sækja Skagamenn Ólafsvíkinga heim og verður sá leikur sýndur í beinni út- sendingu á Stöð 2 Sport. Þorvaldur gerði þær breytingar á liði Skagamanna að Andri Geir Alex- andersson kom í miðja vörnina með Kára Ársælssyni og Jóhannes Karl var færður fram á miðjuna ásamt Jóni Vil- helm fyrir aftan fremsta sóknarmann- inn Ármann Smára Björnsson. Skaga- menn byrjuðu ágætlega í leiknum og sóttu fyrstu mínúturnar. Það var hins vegar eins og blaut tuska fram- an í Akurnesinga þegar gestirnir skor- uðu á 13. og 16. mínútu, fyrst Hörð- ur Sveinsson og síðan Arnór Ingvi Traustason. Rammur rangstöðufnyk- ur var af fyrsta markinu en í báðum til- föllum var vörn ÍA illa á verði. Skaga- menn náðu að sýna karakter og rífa sig upp eftir mörkin og voru í heild að skapa mun meira í sókninni en jafn- vel í öllum deildarleikjum sumarsins fram til þessa. Þeim batamerkjum ber að fagna. Eftir nokkrar góðar sóknir tókst þeim að minnka muninn á 25. mínútu, en í sömu sókninni hitti Ár- mann Smári boltann illa í dauðafæri en skoraði síðan með skoti úr teign- um eftir skallasendingu frá Jóni Vil- helm Ákasyni. ÍA var eftir þetta betra liðið á vellinum en staðan breyttist ekki til leikhlés, þá var hún 2:1 fyrir Keflavík. Skagamenn byrjuðu síðan seinni hálfleikinn vel og á 51. mínútu kom eitt fallegasta mark sumarsins. Jó- hannes Karl Guðjónsson tók þá auka- spyrnu af 25 metra færi og boltinn söng upp í þaknetinu hægra meg- in við markvörð Keflvíkinga. Áfram voru svo Skagamenn betri og gerðu harða atlögu að marki Keflvíkinga, m.a. komst gamla brýnið Dean Mart- in í algert dauðafæri, en varnarmanni Keflvíkinga tókst að bjarga á síðustu stundu. Þetta gerðist skömmu áður en Keflvíkingar komu meira inn í leik- inn og þeir voru betri aðilinn síðasta korterið í leiknum. Aftur sofnaði vörn Skagamanna á verðinum á 84. mínútu þegar Magnús Þór Magnússon skor- aði sigurmark Keflvíkinga með skalla úr markteignum eftir hornspyrnu. Skagamenn gerðu allt hvað þeir gátu til að jafna en Keflvíkingar fóru sig- urreifir af velli, eftir þennan 3:2 sigur. Þorvaldur Örlygsson og hans menn í stjórn Skagaliðsins þurfa nú að stappa stálinu í mannskapinn og bæta það sem aflaga fór í þessum leik áður en haldið verður til Ólafsvíkur á sunnu- daginn. þá Það var fjarri lagi að mark- tækifærin kæmu á færibandi þegar Skagamenn tóku á móti Breiðabliki í Borgunarbikarn- um sl. fimmtudagskvöld. Leik- urinn fór fram í mikilli veður- blíðu og áhorfendur sáu ann- an brag á Skagaliðinu en ver- ið hefur fyrr í sumar; baráttu, kraft og meira spil en yfirleitt hefur sést í sumar. Það dugði þó ekki til að þessu sinni. Eftir markalausan venjulegan leik- tíma komu mörkin í framleng- ingu og það voru Blikar sem náðu að brjóta ísinn. Mörk Kópavogsbúa voru orðin þrjú þeg- ar framlengingin var á enda án þess að heimamönnum tækist að svara fyrir sig. Venjulegur leiktími ein- kenndist af baráttu milli teiganna og þokkalegri knattspyrnu án þess að liðin væru að skapa sér færi. Nýir stjórnendur Skagaliðs- ins, Jón Þór Hauksson og Dean Martin, væntanlega í samráði við nýja þjálfarann Þorvald Örlygs- son, tóku það til bragðs að færa Ár- mann Smári Björnsson úr vörn- inni í stöðu fremsta sóknarmanns hjá ÍA. Leikur liðsins einkenndist því talsvert af löngum háum send- ingum fram á Ármann og í nokk- ur skipti skapaði það hættu. Það var þó ekki fyrr en á 80. mínútu leiksins sem einhver veruleg hætta skapað- ist upp við annað markið og þá voru það Blikar sem áttu þunga sókn og Skagamenn voru heppnir að sleppa fyrir horn. Langt var liðið á fyrri hluta framlengingar þegar loksins kom mark í leikinn. Húsvík- ingurinn í liði Blika, Árni Elf- ar Aðalsteinsson, fékk þá góða sendingu inn í teiginn, snéri af sér varnarmann ÍA og klíndi boltanum upp í hornið óverj- andi fyrir Árna Snæ Ólafsson sem átti annars góðan leik í Skagamarkinu. Skömmu síðar munaði minnstu að Ármanni Smára tækist að jafna fyr- ir ÍA þegar hann átti þrumu- skot frá vítateigslínu í þver- slána. Skagamenn freistuðu þess að sækja og jafna metin en var svo hegnt á síðustu mínút- um framlengingarinnar með tveim- ur mörkum, frá Ellerti Hreinssyni og Tómasi Óla Garðarssyni. Sá síðarnefndi gerði varnarmönnum ÍA lífið leitt með hraða sínum og leikni eftir að hann kom inn á seint í leiknum. Það verður því Breiða- blik sem heldur áfram í 8-liða úr- slitin en Skagamenn munu einbeita sér að Pepsídeildinni enda mikið átak þar framundan. þá Skagakonur unnu stórsigur á Víkingi þegar liðin áttust við í Vesturlandsslagnum í A-riðli 1. deildar á Ólafsvíkurvelli sl. föstu- dagskvöld. Lokatölur urðu 6:0. Maren Leósdóttir náði foryst- unni fyrir Skagastúlkur strax á 13. mínútu. Fyrirliðinn Helga Sjöfn Jóhannsdóttir bætti við öðru markinu á 29. mínútu og staðan í hálfleik var 2:0. Fljótlega í síðari hálfleik, eða á 51. mínútu, bætti Eyrún Eiðsdóttir við þriðja mark- inu. Í kjölfarið fylgdu mörk frá Ing- unni Dögg Eiríksdóttur á 74. mín- útu og Helga Sjöfn Jóhannesdóttir sem skoraði annað mark sitt í leikn- um og fimmta mark Skagastúlkna úr vítaspyrnu á 78. mínútu. Sjötta og síðasta markið skoraði Heið- rún Sara Guðmundsdóttir á 84. mínútu leiksins. Með sigrinum eru Skagastúlk- ur í efsta sæti riðilsins með sext- án stig eða jafnmörg og Fylkir en með betri markatölu. Næsti leikur ÍA verður á Akranesvelli nk. föstudagskvöld þegar Fram kemur í heimsókn, en á sama tíma sækir Víkingur Fylki heim í Árbæinn. Víkingur er í 7. sæti af níu liðum í riðlinum með fimm stig. þá G r u n d a r f j ö r ð - ur mætti liði ÍH á Kaplakrikavelli föstudaginn 21. júní síðastliðinn. Liðin höfðu átt misjöfnu gengi að fagna en ÍH hafði unnið þrjá leiki á meðan Grundfirð- ingar höfðu tapað síðustu fjórum leikjum í þriðju deildinni. Það er óhætt að segja að Grundfirðingar hafi ekki mætt vel stemmdir til leiks en eftir 12 mínútna leik var stað- an orðin 2-0 fyrir heimamenn en þeir skoruðu á 10. og á 12. mínútu. Þannig var stað- an í hálfleik. Í síð- ari hálfleik héldu heimamenn svo uppteknum hætti og skoruðu fjög- ur mörk í viðbót og kláruðu leikinn 6-0. Eiríkur Vilj- ar H. Kúld skor- aði fjögur mörk fyrir ÍH og virt- ust gestirnir alveg ráðalausir gegn sóknarkrafti Hafnfirðinga. Næsti leikur Grundarfjarðar verður á Grundarfjarðarvelli föstu- daginn 28. júní kl. 20. tfk/ Ljósm. dw. „Ég þekki til margra leikmanna í Skagaliðinu og hópurinn hefur ver- ið í góðu jafnvægi þó svo að stigin hafi ekki alveg verið að detta inn í Pepsídeildinni. Mannskapurinn er í góðu standi og allt eru þetta dreng- ir sem vilja ná langt í fótbolta. Ég hef trú á því að drengirnir leggi sig alla fram í verkefnin sem framund- an eru og ef það tekst þá fara stig- in að tikka inn, ég hef enga trú á öðru. Ég er virkilega ánægður með að hafa fengið það tækifæri að taka við Skagaliðinu,“ segir Þorvaldur Örlygsson nýráðinn þjálfari Skaga- manna í fótboltanum. Aðstoðar- menn hans í þjálfarateyminu hjá ÍA verða Dean Martin og Jón Þór Hauksson. Þorvaldur er sem kunnugt er einn af reynslumestu þjálfurum landsins og átti áður en hann snéri sér að þjálfun farsælan feril í at- vinnumennskunni, meðal annars í því fornfræga félagi Notthing- ham Forrest í Englandi þar sem hann spilaði undir stjórn þess fræga framkvæmdastjóra Brian Clough. „Ég get ekki sagt annað en að þetta leggist bara virkilega vel í mig. Þetta bar auðvitað brátt að eftir að Þórður Þórðarson ákvað að stíga til hliðar, sem mér fannst reyndar leitt að heyra, enda hafði Þórður unn- ið gott starf bæði sem leikmaður og þjálfari fyrir ÍA. Ég þekki auðvitað Þórð sjálfur frá mínum tíma með KA, en hann lék þar undir minni stjórn og stóð sig þar virkilega vel í markinu. En það skiptast á skin og skúrir í þessu eins og öðru og hlut- irnir geta verið fljótir að breytast í boltanum,“ segir Þorvaldur í spjalli við skrásetjara heimasíðu Knatt- spyrnufélags ÍA. Þorvaldur var í fríi fyrir norð- an þegar Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri félagsins hafði samband og viðraði þá hugmynd að Þorvaldur tæki við Skagalið- inu. „Mér fannst það strax spenn- andi kostur en í kjölfarið hitti ég Þórð, Inga Fannar formann KFÍA og Örn Gunnarsson stjórnarmann þar sem við fórum betur yfir mál- in. Eftir þann fund og stuttan um- hugsunartíma var þetta aldrei spurning í mínum huga. Skag- inn er klúbbur sem býr yfir mik- illi hefð og sögu og ég held að flestir fótboltaþjálfarar á Íslandi geti verið sammála um að það sé virkilega spennandi tækifæri að fá að taka við Skagaliðinu. Ég er því bara virkilega ánægður með að hafa fengið það tækifæri og hlakka til tímanna sem framundan eru, enda er allt vinnuumhverfi og að- staða til mikillar fyrirmyndar hér í fótboltabænum á Akranesi,“ sagði Þorvaldur Örlygsson skömmu eft- ir að hann skrifaði undir samning við ÍA sl. miðvikudag. þá Nýja þjálfarateymið hjá ÍA: Þorvaldur Örlygsson ásamt Dean Martin og Jóni Þór Haukssyni. Ljósm. Ingunn. Ánægður að fá tækifærið og hlakkar til komandi tíma -segir nýr þjálfari Skagamanna í fótboltanum Skagamenn úr leik eftir framlengingu Blikar skora sitt fyrsta mark af þremur undir lok fyrri hluta framlengingar. Skagakonur að hita upp fyrir leikinn. Ljósm. þa. Stórsigur Skagakvenna á Víkingi Enn eitt tapið hjá Skagamönnum Ármann Smári Björnsson, liggjandi við markteigs- línuna, skorar fyrra mark ÍA í leiknum. Stórt tap hjá Grundfirðingum

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.