Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2013, Síða 2

Skessuhorn - 26.06.2013, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013 Borgnesingar, aðrir Borgfirðingar og áhugafólk um útivist, er minnt á íbúa- kynningu um fyrirhugaðar endurbæt- ur á Skallagrímsgarði, í garðinum kl. 16 fimmtudaginn 27. júní. Samson B. Harðarson kynnir tillögur sínar. Spáð er rigningarsömu og fremur svölu veðri á fimmtudag, sunnan 8-15 m/s, hvassast vestan til. Hiti 7 til 15 stig, hlýj- ast NA-lands. Á föstudag verður svip- að veður og hiti, vestan stæðari vind- átt og lygnara vestanlands en daginn áður. Um helgina verða suðlægar átt- ir og hiti 10-15 stig, rigning sunnan til á sunnudag. Eftir helgi verða norðan- og breytilegar áttir, hitastig svipað og skúrir víða. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: „Á ríkið að auka fjárveitingar til eyðingar refa?“ Almennt virðist fólk þeirrar skoðunar. „Já, mikið“ sögðu 67,9% og „já eitthvað“ sögðu 18%. „Nei hætta þeim alveg“ sögðu 8,2%, „nei óbreytt“ sögðu 3,1% og „veit það ekki“ sögðu 2,8%. Í þessari viku er spurt Hvert er uppáhald sumarveðr- ið þitt? Ferðaþjónustufólk á Vesturlandi eru Vestlendingar vikunnar að þessu sinni. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Árétting AKRANES: Í viðtali við Frið- rik Jónsson í síðasta blaði Skessuhorns má misskilja sög- una af fyrstu skipstjórastöðu Friðriks. Hún var á innrásar- pramma sem Vélsmiðjan Héð- inn og Guðmundur Kolka höfðu keypt og notaður var til björgunar við olíuskipið Clam sem strandaði við Reykjanes árið 1950. Innrásarpramminn gat lagst að síðu Clam á strand- stað, hann var síðan fylltur af strandgóssi og honum loks siglt til Reykjavíkur. Farnar voru fjórar slíkar ferðir. -ákj Merkja leiðina frá Bæ í Skálholt BORGARFJ: Félagsskapur- inn Pílagrímar hefur í hyggju að opna pílagrímaleið frá Bæ í Bæjarsveit að biskupsset- inu Skálholti. Miðvikudag- inn 3. júlí ætlar félagsskapur- inn að merkja leiðina frá Bæ að Grímsá, en hún er um fimm kílómetrar. Áformað er að byrja klukkan tíu að morgni við Bæ. Hulda Guðmundsdóttir á Fitj- um í Skorradal er félagi í Píla- grímum. Hún segir að sjálf- boðaliða vanti til að koma nið- ur stikum við merkingu leiðar- innar. Áhugasömum verði út- vegað nesti til fararinnar og þeir hafi samband við Huldu í síma 893-2789. „Eitt af því sem við viljum gera er að end- urvekja hina stórmerku sögu um Hróðólf biskup í Bæ, sem þar stofnaði skóla árið 1030, en Steinunn J. Kristjánsdóttir fornleifafræðingur er einmitt að hefja rannsóknir í Bæ,“ seg- ir Hulda á Fitjum. -þá Tveir nýir í bæjarráð STYKKISH: Í kosningum á fundi bæjarstjórnar Stykkis- hólms sl. fimmtudag voru tveir nýir fulltrúar kjörnir í bæjarráð með Agli Egilssyni sem þar var fyrir, þeir Lárus Á. Hannes- son og Gretar D. Pálsson. Þeir Lárus og Gretar komu í stað Davíð Sveinssonar og Guð- laugar Ágústsdóttur. Kosið var til næsta árs eða til loka kjör- tímabils. Lárus Ástmar Hann- esson var endurkjörinn forseti bæjarstjórnar, fyrsti varaforseti var kosin Berglind Axelsdóttir og annar varaforseti Íris Huld Sigurbjörnsdóttir. –þá Síðastliðinn föstudag stöðvaði Matvælastofnun (MAST) dreif- ingu afurða og dýra frá Brúarreykj- um ehf. í Stafholtstungum í Borg- arfirði. Steinþór Arnarson lögfræð- ingur MAST, staðfesti í samtali við Bændablaðið sl. mánudag að bann- ið hafi tekið gildi strax föstudaginn 21. júní og tæki til mjólkur, slátur- gripa sem og lifandi gripa. Er þetta í annað sinn á sjö mánuðum sem búið er svipt framleiðsluleyfi. „Það var út af lyfjamálum sem sú ákvörð- un var tekin að stoppa dreifingu á afurðum frá búinu,“ sagði Stein- þór Arnarson við bbl.is síðastliðinn mánudag. Samkvæmt tilkynningu sem MAST sendi afurðastöðvum á Teledyne Gavia ehf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í búnaði til neð- ansjávarrannsókna. Voru starfs- menn þess einmitt við prófan- ir á einu slíku tæki í Breiðafirði á dögunum. Starfsmennirnir héldu út með Bolla SH og pruf- uðu þennan nýja búnað á hafs- botni. Tilraunirnar tókust að sögn vel og ljóst að þessi neðan- sjávarmyndavél getur athafnað sig á miklu dýpi, en búnaðurinn getur skilað hágæða myndum af 1000 metra dýpi. Verðið á einu slíku tæki er hins vegar ekkert spaug, eða 130 milljónir króna og því er eins gott að varlega sé með það farið eins og sést hér á myndinni. tfk Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ákveðið að ráða Lulu Munk Ander- sen byggingafræðing í starf skipu- lags- og byggingafulltrúa Borgar- byggðar. Lulu hefur starfað sem byggingafulltrúi í Fjarðarbyggð frá árinu 2008 og var áður aðstoðar- maður skipulags- og byggingafull- trúa frá árinu 2006. Lulu er dönsk, fædd árið 1966, gift Gunnari Birni Gunnarssyni og eiga þau átta börn saman. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins. mm Ráðið í stöðu skipulags- og byggingarfulltrúa Neðansjávarmyndavél prófuð á botni Breiðafjarðar Matvælastofnun stöðvar á ný afurðadreifingu frá Brúarreykjum föstudaginn kemur fram að bannið sé tilkomið vegna gruns um brot á löggjöf um notkun dýralyfja og lög- gjöf um matvælaframleiðslu. Sagð- ist Steinþór hafa sent þetta erindi á afurðastöðvarnar og Landssamtök sláturleyfishafa. Mjólkursamsalan (MS) hefur tekið við mjólk frá Brúarreykjum í samræmi við endurnýjað starfsleyfi sem MAST veitti býlinu 12. janú- ar á þessu ári eftir að gerðar höfðu verið endurbætur á rekstrinum í kjölfar þess að MAST afturkallaði það í byrjun desember 2012. Það bann var sett vegna brota á reglum um hollustuhætti við framleiðslu mjólkur og sláturgripa. Fundið var að hreinlæti við handþvotta- aðstöðu, mjaltaþjónn var skítug- ur, for var um allt fjós og upp um veggi og gripir skítugir. Þá var þrif- um á mjólkurtanki mjög ábótavant auk þess sem of margir gripir voru í fjósinu. Mjólkinni fargað Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólk- ursamsölunnar (MS) og Auð- humlu, segir að þrátt fyrir að MS hafi tekið við mjólkinni frá búinu frá því í janúar hafi hún ekki far- ið inn í framleiðslukerfi MS held- ur verið fargað undir eftirliti. „Vegna fréttar Bændablaðsins um málið, og snertir málefni Brúar- reykjabúsins og sviptingu afurða- söluleyfis þess, vill Mjólkursamsal- an koma því á framfæri að engin mjólk frá lögbýlinu á Brúarreykj- um hefur farið til vinnslu og sölu hjá Mjólkursamsölunni ehf. frá 2. desember 2012,“ sagði Einar Sig- urðsson í samtali við Skessuhorn. Hann segir að búið á Brúarreykj- um hafi í janúar sl. fengið aftur leyfi frá Matvælastofnun en það hafi verið bundið ákveðnum fyrir- vörum af hálfu stofnunarinnar, en Mjólkursamsalan hafi strax þá tek- ið þá afstöðu að nýta ekki mjólk frá búinu til vinnslu og sölu við þær kringumstæður. „Síðan hefur allri framleiðslu af búinu verið farg- að með staðfestum hætti allt fram til síðasta föstudags. Nú þarf MS ekki lengur að sækja framleiðsluna og kosta förgun hennar, þar sem framleiðsluleyfið hefur nú verið afturkallað,“ sagði Einar Sigurðs- son í samtali við Skessuhorn. mm FIMMTUDAGUR FÖSTUDAGUR MÁNUDAGUR ÞRIÐJUDAGUR 1 2 3 4 27. JÚNÍ 28. JÚNÍ 1. JÚLÍ 2. JÚLÍ AEG DAGAR AEG þvottavélar, þurrkarar, uppþvottavélar, ofnar, háfar, helluborð, kæliskápar, frystiskápar ryksugur, kaffivélar o.m.fl. Á EINSTÖKUM KJÖRUM! ÞJÓÐBRAUT 1 · AKRANESI SÍMI 530 2870 · ORMSSON.IS

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.