Skessuhorn - 26.06.2013, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Uppsetning vind-
myllu tafðist
MELASVEIT: Nýverið var birt
viðtal í Skessuhorni við Har-
ald Magnússon bónda í Belgs-
holti sem nú vinnur að endur-
gerð vindmyllunnar sem fauk af
stalli sínum í lok árs 2011. Fram
kom að hann stefndi að uppsetn-
ingu myllunnar í þessum mán-
uði. Aðspurður segir Haraldur að
lítilsháttar galli hafi komið fram
í stýribúnaði sem á að sjá um að
vindmyllan snúist ekki í of marga
hringi til að kaplar slitni ekki,
og því hafi uppsetning tafist um
nokkrar vikur. Hann býst þó við
að hægt verði að ljúka uppsetn-
ingu og gangsetningu myllunn-
ar fyrir miðjan júlímánuð og hún
geti í kjölfarið farið að framleiða
rafmagn. -mm
Formleg rektors-
skipti um garð
gengin
BIFRÖST: Síðastliðinn mánu-
dag fóru fram formleg rektors-
skipti við Háskólann á Bifröst.
Bryndís Hlöðversdóttir hætti
störfum sem rektor og Vilhjálm-
ur Egilsson tók formlega við
rektorsstöðunni. Guðsteinn Ein-
arsson formaður stjórnar skólans
þakkaði Bryndísi fyrir vel unnin
störf á Bifröst. Hann sagði Bryn-
dísi hafa tekið við skólanum á erf-
iðum tíma og leitt skólann áfram
að bjartari framtíð. Vilhjálmur
Egilsson tók við sem rektor og
sagði við tilefnið að það hafi verið
skjót ákvörðun að sækja um rekt-
orsstöðuna á Bifröst og jafnframt
að hann væri þakklátur fyrir að
vera kominn á staðinn. Hann
þakkaði þeim Bryndísi Hlöðvers-
dóttur fráfarandi rektor og Jóni
Ólafssyni aðstoðarrektor fyrir að
hafa stýrt skólanum styrkri hendi
í gegnum erfiða tíma í íslensku
samfélagi. Hann sagði jafnframt
að hann tæki við góðu búi og
hlakkar til að takast á við skóla-
starfið á Bifröst. Bryndís Hlöð-
versdóttir mun áfram starfa við
Háskólann á Bifröst við kennslu
á lögfræðisviði. –mm
Tengdamömmu-
box opnaðist
LBD: Lögreglu barst í vikunni
tilkynning um óhapp sem bílstjóri
á suðurleið varð fyrir skammt frá
Svignaskarði í Borgarfirði. Far-
angurshólf á þaki fólksbifreiðar,
svokallað tengdamömmubox,
opnaðist og út úr því valt svört
ferðataska. Þrátt fyrir leit fannst
taskan ekki. Þeir sem kynnu að
hafa fundið töskuna eru beðn-
ir um að koma henni til lög-
reglunnar í Borgarfirði og Döl-
um eða hafa samband í síma 433-
7612. –þá
Vaknaði lengst
út í móa
LBD: Tvö umferðaróhöpp urðu
í umdæmi lögreglunnar í Borg-
arfirði og Dölum í liðinni viku,
bæði án meiðsla á fólki. Í öðru
tilvikinu sofnaði ökumaður og
vaknaði ekki fyrr en bifreið hans
var komin um 100 metra út í móa.
Hafði hann fundið til þreytu og
ætlað að fara að stoppa og leggja
sig, þegar hann sofnaði við stýr-
ið með þessum afleiðingum. Alls
voru 13 ökumenn teknir fyrir of
hraðan akstur við umferðareftir-
lit í vikunni. Þá var lögreglu til-
kynnt í vikunni um að stórri bíla-
ryksugu hafi verið stolið frá N1/
Samkaup í Búðardal. –þá
Vegalömb og
tófa í umferðinni
LBD: Alls var ekið á ellefu
lömb á vegum í umdæmi lög-
reglunnar í Borgarfirði og
Dölum í liðinni viku. Er þetta
með allra mesta móti að sögn
lögreglu og eru vegfarend-
ur hvattir til að fara varlega
í kringum búfénaðinn. Ann-
að óhapp af öðrum toga varð
í vikunni. Ungur ökumað-
ur lenti í því að aka yfir tófu
á þjóðveginum skammt norð-
an við Borgarnes. Var honum
illa brugðið og kallaði til lög-
reglu sem fjarlægði tófuhræið
af veginum. Nokkrar skemmd-
ir urðu á bílnum við ákeyrsluna
en hann var þó ökufær.
–þá
Safnar fyr-
ir tækjakaupum
fyrir LSH
LANDIÐ: Nú stendur yfir
söfnunin „Stöndum saman“
sem er fyrir tækjum á Lands-
spítala Háskólasjúkrahús.
Söfnunin hófst í byrjun apríl
og er það Guðrún Ísleifsdótt-
ir sem stendur að henni. Guð-
rún glímir sjálf við krabbamein
og hefur þurft að notast við
aðstöðu spítalans og er sann-
færð um að einhver hafi orð-
ið að standa upp og hefja átak í
því að gera aðstöðuna varðandi
tæki og annað fyrir starfsfólk
LSH betri. Á síðu söfnunarinn-
ar segir Guðrún: „Það er ein-
læg ósk mín að þeir sem þetta
sjá sýni þessu málefni skilning
og við öll saman gerum eitt-
hvað stórkostlegt til þess að
fólkið á spítalanum megi finna
að okkur er ekki sama og við
viljum leggja okkar af mörkum
til þess að þau hafi aðgang að
sem bestum tækjum til þess að
sinna starfi sínu sem allra best.“
Framlög leggist inn á reikning:
0186-05-60525 kt. 030758-
3749. Þann 7. júní höfðu safn-
ast 325.500 krónur.
-sko
Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggð-
ar nýverið var kynnt nýtt tilboð í
eignir á Laugum í Sælingsdal sem
sveitarfélagið Dalabyggð keypti
á liðnum vetri af ríkinu. Nýja til-
boðið hljóðar upp á 200 milljón-
ir króna, en áður hafði byggðarráð
hafnað tilboðum að upphæð 120 og
180 milljónir króna. Oddviti lagði
til á fundinum að nýja tilboðinu
yrði hafnað og var það samþykkt
samhljóða. Sveinn Pálsson sveitar-
stjóri segir að þessi tilboð séu langt
frá því verði sem sveitarstjórnin hafi
í huga fyrir eignirnar, en í sjálfu sér
sé sveitarfélagið ekkert að flýta sér í
þessum efnum, því liggi ekkert á að
selja. Sveinn tók í spjalli við Skessu-
horn undir þá skoðun blaðamanns
að Laugar virtust eftirsóttur stað-
ur til reksturs ferðaþjónustu. „Já,
það kemur ekki á óvart. Þetta er
skjólgóður og skemmtilegur staður
og við trúum því að með tímanum
muni koma tilboð sem okkur finnst
ásættanlegt. Annars gengur ágæt-
lega með reksturinn á Laugum,“
segir Sveinn.
Fyrir um áratug voru hús á Laug-
um endurnýjuð og ferðaþjónust-
an Dalagisting stofnuð sem Dala-
byggð á stærsta hlutann í. Á sumr-
in er rekið sumarhótel á Laugum
í Flugleiðakeðjunni undir nafni
Edduhótelanna. Frá hausti og fram
á vor eru síðan ungmenna- og tóm-
stundabúðir UMFÍ starfræktar á
Laugum, en þar er reyndar nýtt
önnur gistiaðstaða en á Edduhótel-
inu að sumrinu. Það var nefnilega
gamla heimavistin sem gerð var
upp fyrir hótelrými á sínum tíma
og er það orðið veglegasta húsið á
Laugum í Sælingsdal. þá
„Veiðarnar hafa gengið ótrúlega
vel, sérstaklega ef tekið er mið af
því að veðrið hefur svolítið ver-
ið að stríða okkur, þoka á tíðum á
miðunum sem hefur gert hvalföng-
urum erfitt um vik,“ sagði Gunn-
laugur Fjólar Gunnlaugsson verk-
stjóri í Hvalstöðinni í samtali við
Skessuhorn. Hvalur 8 kom með
tvær langreyðar í Hvalfjörð í fyrri-
nótt en bæði hvalskipin komu með
tvo hvali á sunnudaginn. Í gær var
nóg að gera að hjá starfsfólki Hvals
hf. að vinna úr þeim afla. Þrettán
langreyðar komu því á land fyrstu
viku hvalveiðanna. Gunnlaugur
Fjólar segir að rúmlega 150 manns
hafi vinnu á hvalvertíðinni, fyr-
ir utan afleidd störf við þjónustu.
Hann segir að fjöldi umsókna um
vinnu á vertíðinni hafi verið slíkur
að ekki var hægt að ráða nema brot
af þeim mannafla. Langflestir sem
starfi á hvalvertíðinni hafi reynslu á
þeim vettvangi. þá/ Ljósm. hb.
Laugar í Sælingsdal.
Tilboð í Laugar enn langt
frá ásættanlegu verði
Þrettán langreyðar komnar
á land í Hvalfirði