Skessuhorn - 26.06.2013, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Verðmæti botn-
fisks minnkaði
LANDIÐ: Aflaverðmæti ís-
lenskra skipa nam 44,5 millj-
örðum króna á fyrstu þrem-
ur mánuðum þessa árs. Á sama
tímabili 2012 var verðmætið
46,7 milljarðar króna og hef-
ur það dregist saman um 2,2
milljarða eða 4,7% á milli ára.
Frá þessu er sagt á vef Hag-
stofu Íslands. Aflaverðmæti
botnfisks fyrstu þrjá mánuði
ársins var rúmlega 25,5 millj-
arðar og dróst saman um 9,7%
á milli ára. Verðmæti þorskafla
var 14,2 milljarðar og dróst
saman um 10%, verðmæti ýsu
var 3,7 milljarðar sem er sam-
dráttur um 14,7% og verðmæti
karfa var tæpir 4 milljarðar
sem er samdráttur um 13,4%.
Verðmæti ufsaafla jókst aftur á
móti um 3,2% og var rúmlega
1,7 milljarður króna í janúar til
mars 2013. Verðmæti uppsjáv-
arafla nam rúmum 16,3 millj-
örðum króna á tímabilinu sem
er aukning um 10,5% og skýr-
ist sú aukning að mestu á aukn-
um loðnuafla. Verðmæti hans
var 15,5 milljarðar króna sem
er 18,4% aukning. –sko
Aflatölur fyrir
Vesturland
9. – 15. feb.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 17 bátar.
Heildarlöndun: 28.359 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 9.335
kg í þremur löndunum.
Strandveiði: Skírnir AK:
1.356 kg tveimur löndunum.
Arnarstapi 9 bátar.
Heildarlöndun: 11.606 kg.
Mestur afli: Sælaug MB:
2.235 kg í þremur löndunum.
Strandveiði: Enginn á strand-
veiðum.
Grundarfjörður 39 bátar.
Heildarlöndun: 121.382 kg.
Mestur afli: Farsæll SH:
19.100 kg í einni löndun.
Strandveiði: Sif SH: 906 kg í
einni löndun.
Ólafsvík 34 bátar.
Heildarlöndun: 72.596 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 13.554 kg í þremur lönd-
unum.
Strandveiði: Jón í Ártúni SH:
978 kg í einni löndun.
Rif 25 bátar.
Heildarlöndun: 211.414 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
87.319 kg í einni löndun.
Strandveiði: Jói á Nesi SH:
755 kg í einni löndun.
Stykkishólmur 41 bátar.
Heildarlöndun: 64.368 kg.
Mestur afli: Fjóla SH: 5.496
kg í einni löndun.
Strandveiði: Fákur SH: 748
kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Tjaldur SH – RIF:
87.319 kg. 18. júní.
2. Rifsnesi SH – RIF:
78.365 kg. 18. júní.
3. Örvar SH – RIF:
44.231 kg. 18. júní.
4. Farsæll SH – GRU:
19.100 kg. 16. júní.
5. Sóley SH – GRU:
18.806 kg. 18. júní.
sko
Byggðaráðið
eingöngu skipað
konum
DALIR: Í kosningum á fundi
sveitarstjórnar Dalabyggð-
ar á þriðjudag í liðinni viku
var kosinn nýr oddviti sveit-
arstjórnar og byggðaráð, en
í upphafi kjörtímabils var
ákveðið að skipta embættum
árlega. Nýtt byggðaráð verð-
ur eingöngu skipað konum í
Dalabyggð út kjörtímabilið,
eða til næsta vors. Í byggð-
aráð hlutu kosningu Ingveld-
ur Guðmundsdóttir, Guðrún
Jóhannsdóttir og Halla Stein-
ólfsdóttir. Jóhannes Haukur
Hauksson var áður formaður
byggðaráðs, en nýtt byggð-
aráð mun kjósa formann á
fyrsta fundi. Jóhannes Hauk-
ur var kjörinn oddviti og tek-
ur við því embætti af Eyþóri
Jóni Gíslasyni sem þakkaði
fyrir samstarfið þann tíma
sem hann gegndi oddvita-
starfinu. Eyþór var hins vegar
kosinn varaoddviti.
–þá
Ofurölvi stal bíl
AKRANES: Aðfararnótt
sunnudags barst lögreglunni
á Akranesi tilkynning um að
bíl hafði verið stolið. Eigandi
bílsins var að skemmta sér
en fékk símtal frá föður sín-
um sem furðaði sig á því að
hann hafði séð bílnum ekið
frá heimili þeirra. Eigandinn
hafði þegar samband við lög-
reglu sem hóf leit að bílnum.
Fannst hann utan við bæinn
og reyndist óskemmdur. Sáu
lögreglumenn mann á gangi
í átt að bænum. Sá reyndist
ofurölvi og mundi ekki mik-
ið eftir atburðum kvölds-
ins. Kannaðist þó við að hafa
tekið bílinn og ekið honum.
Var maðurinn færður til töku
blóðsýnis og að því loknu lát-
inn sofa úr sér mestu vímuna
í fangaklefa. Reyndist hann
ekki hæfur til skýrslutöku fyrr
en vel var liðið á morgun-
inn. Þá var brotist inn í nytja-
markaðinn Búkollu en engu
stolið. Virðist sem þeir er þar
voru að verki hafi komið sér
fyrir einhverja stund og far-
ið síðan.
–þá
Sóttu veikan
mann að Glymi
HVALFJ: Björgunarsveit
sótti um hádegið á laugar-
daginn veikan mann sem
hnigið hafði niður við foss-
inn Glym í Botnsdal í Hval-
firði. Maðurinn hafði hnig-
ið niður við Glymsgil vestan-
megin við Botnsá og var með
skerta meðvitund. Slökkvi-
liðið á höfuðborgarsvæðinu
sendi búnað, mannskap og
sérútbúin farartæki og kall-
aði auk þess út félaga í Björg-
unarfélagi Akraness. Bera
þurfti manninn niður gilið til
að koma honum í sjúkrabíl,
en alls tók um tugur björg-
unarsveitarmanna þátt í að-
gerðinni. Að sögn þeirra tók
björgunin alls um eina og
hálfa klukkustund. Maður-
inn var fluttur á Sjúkrahúsið á
Akranesi til aðhlynningar og
rannsókna. Að sögn vakthaf-
andi læknis þar er líðan hans
góð eftir atvikum.
–mm
Bílar og Dekk á Akranesi eru
komnir í hóp viðurkenndra þjón-
ustuaðila Chevrolet á landsbyggð-
inni. Starfsmenn frá Bílabúð Benna
og fyrirtækinu handsöluðu nýver-
ið samning þar að lútandi. „Þetta
kemur á besta tíma, við erum ný-
lega komnir með fullkomna bilana-
greiningu og höfum því tök á að
veita Chevrolet eigendum á svæð-
inu og ferðamönnum ennþá betri
þjónustu í framtíðinni,“ segja þeir
Óskar Rafn Þorsteinsson og Ólafur
Eyberg Rósantsson eigendur Bíla
og Dekk.
„Við höfum átt mjög gott sam-
starf við Bíla og Dekk undanfarin
ár og fögnum þessum nýja áfanga,“
segir Jóhannes Egilsson, þjónustu-
stjóri hjá Bílabúð Benna. „Þetta er
liður í að þétta þjónustunetið okkar
fyrir Chevrolet eigendur, en þeim
hefur fjölgað hratt undanfarin ár.“
Bílar og Dekk eru einnig umboðs-
aðilar fyrir dekk frá Bílabúð Benna,
s.s. Toyo, PFGoodrich, Interstate
og Maxxis. -fréttatilkynning
Pakkhúsinu í Ólafsvík barst á dög-
unum góð gjöf sem Gunnsteinn
Sigurðsson tók við fyrir hönd Pakk-
hússnefndar. Myndin er af Ólafsvík
og Enninu og er máluð árið 1923
af Þorsteini Hannessyni. Mynd-
in er gjöf til Minjasafns Ólafsvík-
ur til minningar um hjónin Sig-
urlín Þórðardóttir f. 06.08.1861
á Garðsenda í Eyrarsveit, hús-
móður í Mávahlíð d. 26.10.1928
á Akranesi og Kristján Þorsteins-
son f. 07.08.1856 í Skriðukoti,
bónda Norður Bár, Mávahlíð, síð-
ar Hjallabúð á Brimilsvöllum og
Akranesi d. 06.12.1924 á Akranesi.
Voru á milli 70 og 80 manns sam-
ankomnir á ættarmóti í Ólafsvík og
stundin tilfinningarík þegar mynd-
in var afhent enda skipaði hún stór-
an sess í lífi þeirra, hékk á vegg þar
sem hún sást um leið og fólk gekk
inn á heimili þeirra hjóna. Voru
taugar þeirra sterkar til átthaganna
og eitt af því sem gert var á hverjum
morgni var að líta út um gluggann
og kíkja á Snæfellsjökul sem sást út
um stofugluggann á góðum degi.
Þórdís Björgvinsdóttir þakkaði
fyrir þessa höfðinglegu gjöf um leið
og hún tilkynnti að myndinni yrði
fundinn verðugur staður. Eftir af-
hendingu myndarinnar var haldið
til Átthagastofu þar sem boðið var
upp á kaffi og konfekt áður en hóp-
urinn hélt af stað í göngu um Brim-
ilsvelli undir leiðsögn Sæmundar
Kristjánssonar. þa
Útibú PwC á Vesturlandi var opn-
að í Grundarfirði um miðjan maí
síðastliðinn. Fyrir rekur PwC
skrifstofur í Reykjavík, Selfossi,
Hvolsvelli, Akureyri og Húsavík
og hjá fyrirtækinu á Íslandi starfa
nú um 100 manns. Helga Hjálm-
rós Bjarnadóttir er í forsvari fyrir
starfsemi PwC á Vesturlandi. Hún
er fædd og uppalin í Grundarfirði
og hefur unnið á skrifstofu félags-
ins í Reykjavík í sex ár. Hún hef-
ur nú flutt aftur heim með sam-
býlismanni sínum og tveimur dætr-
um. Helga er löggiltur endurskoð-
andi og lauk því ferli í janúar síð-
astliðnum. „Upphaflega kom hug-
myndin frá mér. Mig langaði til
þess að flytja heim í Grundarfjörð
þar sem stór hluti fjölskyldunn-
ar býr og að veita börnunum mín-
um þau forréttindi að fá að alast
upp úti á landi. Forsvarsmenn fyr-
irtækisins tóku strax jákvætt í hug-
myndina og sáu mikil tækifæri í því
að opna skrifstofu á þessu svæði.
Ég er afar stolt af því að vera flutt
heim aftur og að geta nýtt menntun
mína, þekkingu og reynslu til þess
að koma með störf í mína heima-
byggð,“ segir Helga.
PwC býður upp á margskon-
ar þjónustu og hlakkar Helgu til
að takast á við verkefni hér á Vest-
urlandi. „Við bjóðum upp á þjón-
ustu á sviði endurskoðunar, reikn-
ingsskila, fyrirtækjaráðgjafar og
skatta- og lögfræðiráðgjafar. Í sér-
stökum verkefnum, ef þess þarf, hef
ég aðgengi að sérfræðingum PwC
bæði hér heima og erlendis. Fyrst
um sinn mun ég halda áfram að
sinna mínum verkefnum í fjarvinnu
en vonandi með tíð og tíma munu
þau verkefni skiptast út fyrir verk-
efni af svæðinu. Mér og fjölskyldu
minni líður vel í Grundarfirði og
ég hlakka til að takast á við spenn-
andi tíma framundan,“ segir Helga
að lokum. sko
Helga Hjálmrós Bjarnadóttir.
Útibú frá PwC opnað
í Grundarfirði
Bílar og Dekk þjónustuaðili
fyrir Chevrolet á Akranesi
Gáfu mynd til minningar um
forfeður sína