Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2013, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 26.06.2013, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013 Efnt verður til Brákarhátíðar í Borgarnesi um næstu helgi. Að vanda verður boðið upp á skemmti- lega dagskrá á hátíðinni sem kennd er við ambáttina Þorgerði Brák, fóstru Egils Skallagrímsson- ar. Formleg dagskrá hátíðarinnar fer fram á laugardaginn en Borg- nesingar munu þó hefja gleðina á föstudagskvöldið þegar götugrill- ið sívinsæla fer fram. Líkt og í fyrra hefur Borgarnesi og einnig Hvann- eyri verið skipt upp í hverfi sem fær sinn lit til skreytinga. Íbúar hverf- anna keppa síðan sín á milli um best skreytta hverfið sem sérstök dóm- nefnd mun velja. Það eru Neðri- bæjarsamtökin í bænum auk fjölda- annarra heimamanna sem standa að skipulagningu hátíðarinnar sem nú er haldin í fimmta skipti. Formleg hátíðarhöld hefjast kl. 09:30 á laugardeginum með vík- inga-skartgripagerð í Landnáms- setrinu. Klukkan 10 hefst Brák- arhlaupið sem hlaupahópurinn Flandri hefur umsjón með í ár. Hlaupið verður frá Landnámssetr- inu og keppt í aldursflokkum í 3 km. og 10 km hlaupi. Skrúðganga frá Brákarey í Skallagrímsgarð hefst kl. 13:30 en að henni lokinni hefst fjölskylduskemmtun í garðin- um sem stendur til kl. 17. Þar verða veitt verðlaun fyrir skreytingar í götugrilli, víkingar í víkingafélög- unum Rimmugýgur og Hring- horninu verða með uppákom- ur, listsýning ungmenna í Borgar- nesi og tónlistaratriði flutt þar sem m.a. leikskólabörn syngja vel val- in lög fyrir gesti. Ýmislegt verður einnig um að vera í Englendinga- vík. Frá kl. 11-13 býður Björgun- arsveitin Brák upp á siglingar um víkina og kringum Brákarey, klukk- an 15 fer þar fram leðjukörfubolta- leikur og kl. 16 leiksýningin Ástar- saga úr fjöllunum fyrir börn á aldr- inum 2-9 ára í boði Edduveraldar og Loftorku, en sýningin fer fram í Edduveröld. Um kvöldið verður farin skrúðganga frá Hjálmakletti til Englendingavíkur og hefst hún kl. 19:30. Í víkinni verður efnt til kvöldvöku sem stendur yfir til kl. 23. Brákarhátíð lýkur síðan með dansleik með hljómsveitinni Sál- inni hans Jóns míns í Hjálmakletti á miðnætti sem knattspyrnudeild Skallagríms skipuleggur. Listgjörningar og uppákomur Fjölbreyttir listgjörningar og upp- ákomur ungmenna í Borgarnesi munu setja svip sinn á Brákarhátíð í ár. Krakkar í vinnuskóla Borgar- byggðar og í frístundastarfi sveit- arfélagsins hafa unnið að undir- búningi atriða síðustu daga und- ir stjórn Ragnheiðar Hörpu Leifs- dóttur, ungrar listakonu úr Reykja- vík. Að sögn Ragnheiðar Hörpu ætla krakkarnir að standa fyrir fjöl- breyttum atriðum. „Krakkarnar verða með margskonar viðburði á hátíðinni. Lítið leikrit verður sett upp í Skallagrímsgarði og einn- ig listsýning þar sem myndir eftir krakkana innblásnar af sögunni af Brák, umhverfinu hér í kring og há- tíðinni verða sýndar milli trjánna. Sumir krakkar munu leika lifandi tónlist fyrir gesti og þá verður hægt að sjá málaða steina og önnur verk eftir þau hér og þar um bæinn, sér- staklega á leið beggja skrúðgangna sem þau leiða og taka þátt í,“ seg- ir Ragnheiður Harpa en að auki er fjöldi annarra atriða á dagskránni. Það eru krakkar á aldrinum 6-16 ára sem vinna að atriðunum og seg- ir hún að gleði og fjör verði í fyr- irrúmi. „Krakkarnir verða svo að sjálfsögðu í skemmtilegum búning- um í tilefni dagsins og munu atriði þeirra vafalaust setja ánægjulegan svip á hátíðina.“ Nánari dagskrá Brákarhátíðar má sjá á vefsíðunni www.brakarhatid.is og í auglýsingu hér í blaðinu. hlh Sigurgeir Agnarsson hefur tekið við af Auði Hafsteinsdóttur sem listrænn stjórnandi Reykholtshá- tíðar sem fram fer í sextánda sinn í Reykholti í júlílok. Sigurgeir tók við stjórn hátíðarinnar í vetur en hann er sellóleikari að mennt og hefur leikið með Sinfóníuhljóm- sveit Íslands frá 2003. Hann segir það vera frábært tækifæri fyrir sig að fá að skipuleggja Reykholtshá- tíð sem sé tónlistarhátíð sem hafi fest sig í sessi. „Verkefnið leggst mjög vel í mig. Reykholtshátíð er þekkt hátíð hjá tónlistarfólki á Ís- landi og sömuleiðis heimamönn- um í héraði, þannig að ég tek við góðu og vel kynntu verkefni,“ segir Sigurgeir. Reykholtshá- tíð er fyrsta verkefnið af þess- ari stærðargráðu sem hann stýrir og segir hann það vera krefjandi áskorun. „Ég hef oft verið viðloðandi ýmsa skipulagningu tónlist- arviðburða í gegnum tíðina. Að auki hef ég reglulega komið fram á tónleikum bæði hér heima og erlendis,“ bætir hann við. Sigurgeir lauk e in le ikarapróf i frá Tónlistarskól- anum í Reykjavík árið 1995 og hélt til frekara náms í Boston í Bandaríkjunum, þaðan sem hann lauk bæði Bachelor of Music og Mast- er of Music gráðum. Síðan lá leiðin til Þýskalands þar sem hann útskrifaðist með Kon- zertexamen árið 2002 frá Robert Schumann Tónlist- arháskólann í Düsseldorf. Auk starfa við Sinfón- íuhljómsveitina starfar Sigurgeir sem deild- arstjóri strengja- deildar Tón- listarskólans í Reykjavík. Reykholts hátíð fer fram dag- ana 26. – 28. júlí nk. og seg- ir Sigurgeir að alls fari fram fjórir tónleikar í ár. Verið sé að leggja lokahönd á dagskrá nú um stundir og reiknar hann með að endanleg dagskrá verði kynnt um mánaðamót- in. Nánar er hægt að fræðast um Reykholtshá- tíð á vefsvæð- inu www. reykholtsha- tid.is. hlh Eftir messu í Hvanneyrarkirkju sunnudaginn 23. júní sl. var hald- ið kveðjusamsæti til heiðurs þeim sæmdarhjónum Jakobínu Jónas- dóttur og Trausta Eyjólfssyni á Hvanneyri. Trausti tók við með- hjálparastarfi við Hvanneyrarkirkju haustið 1972 og sá um það með miklum ágætum til ársins 2012. Í kveðjuhófinu, sem stjórnað var af Guðmundi Sigurðssyni formanni sóknarnefndar, töluðu Magnús B. Jónsson fyrrverandi skólastjóri sem réði Trausta til Hvanneyrar á sínum tíma, séra Flóki Kristinsson sóknar- prestur auk Guðmundar Sigurðs- sonar sem færði Trausta blóm og bækur ásamt mynd af þeim hjón- um sem tekin var fyrir framan altari Hvanneyrarkirkju. Fjölmenni var og hvert sæti setið í gömlu Skemm- unni þennan sólríka dag. dp Sigurgeir Agnarsson er nýr list- rænn stjórnandi Reykholtshátíðar Trausti kvaddur eftir 40 ára meðhjálparastarf Trausti flytur bæn við guðsþjónustuna. Guðmundur Sigurðsson sóknarnefndarformaður ásamt þeim Trausta og Jakobínu. Sigurgeir Agnarsson. Lið Rafta og hestamanna áttust við í leðjukörfunni í Englendingavík á síðustu Brákarhátíð. Gleði og fjör á Brákarhátíð um helgina Frá skrúðgöngunni á Brákarhátíð í fyrra. Ragnheiður Harpa Leifsdóttir (efst til vinstri) og starfsfólk frístundastarfs ásamt nokkrum af þeim krökkum sem ætla að standa fyrir skemmtilegu atriðum á Brákarhátíðinni á laugardaginn.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.