Skessuhorn - 26.06.2013, Side 11
11MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
S m á a u g l ý s i n g a r - a t b u r ð a d a g a t a l - f r é t t i r
www.skessuhorn.is
Meira í leiðinniWWW.N1.IS
HELSTU VERKEFNI
• Almenn afgreiðsla
• Þjónusta við viðskiptavini
• Almenn störf í eldhúsi
• Önnur tilfallandi verkefni á stöðinni
HÆFNISKRÖFUR
• Almenn þekking á verslun og þjónustu
• Samskiptafærni
• Þjónustulund
• Stundvísi og reglusemi
STARFSMAÐUR ÓSKAST
N1 hefur opnað nýja og stórglæsilega þjónustustöð í Borgarnesi. Því getum við bætt
við okkur kraftmiklum og áreiðanlegum liðsmönnum í fullt starf til framtíðar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðmundsson, stöðvarstjóri í síma 440 1333.
Áhugasamir sæki um á www.n1.is
Hæfniskröfur:
Leiðtogahæfileikar með áherslu á frumkvæði, sveigjanleika, jákvætt viðmót,
samskiptafærni og skipulögð vinnubrögð. Reynsla í starfi með unglingum. Hreint
sakavottorð. Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði tómstunda og- eða
kennslu er æskileg.
Í Ungmenna- og tómstundabúðunum dvelja nemendur í 9. bekk við leik og störf
frá hádegi á mánudögum til hádegis á föstudögum.
Nánari upplýsingar á www.ungmennabudir.is
Umsóknarfrestur er til 30. júní. Umsóknum skal skilað
rafrænt á laugar@umfi.is
Tómstundaleiðbeinandi óskast í Ungmenna-
og tómstundabúðirnar Dalabyggð
Guðsþjónusta sunnudaginn
30. júní, 5. sd. e. trin. kl. 14.00
Reykholtskirkja
Óskilahross
Mósótt tveggja –
þriggja vetra meri er
í óskilum, kom fyrir í
Stafholtsey. Ómörkuð
og ekki örmerkt.
Uppl. gefur
Jón Eyjólfsson
s: 893-6538.
Bókaforlagið Uppheimar er inn-
an skamms að fá úr prentun bók-
ina Sauðfjárrækt á Íslandi og er for-
sala hafin á vef útgáfunnar. „Sauð-
fjárrækt byggir á aldagömlum merg
og hefur verið samofin lífi Íslend-
inga frá öndverðu. Með því að nýta
nánast allt sem sauðkindin gefur af
sér hefur þjóðin lifað af marghátt-
aða erfiðleika. Öflug sauðfjárrækt
er stunduð á Íslandi og margvísleg
nýsköpun henni tengd. Þrátt fyrir
að fjárbúskapur eigi sér langa sögu
sem mikilvæg atvinnugrein, er það
ekki fyrr en með þessari bók að gef-
ið er út alhliða fræðslurit um sauð-
fjárrækt á Íslandi,“ segir í tilkynn-
ingu um útgáfuna. Þá segir að bók-
in nýtist bæði starfandi bændum og
öðru áhugafólki um sauðfé, sem og
nemendum í búfræði, búvísindum
og á námskeiðum um sauðfjárrækt.
Bókin er fróðleiksbrunnur öllum
þeim sem áhuga hafa á atvinnusögu
Íslands og tengslum sauðfjár við ís-
lenska menningu. Ritið er aðgengi-
legt og prýtt fjölda ljós- og skýring-
armynda.
Ragnhildur Sigurðardóttir rit-
stýrði bókinni en höfundar efnis í
henni eru: Árni Brynjar Bragason,
Bjarni Diðrik Sigurðsson, Emma
Eyþórsdóttir, Eyjólfur Kristinn
Örnólfsson, Guðmundur Hall-
grímsson, Jóhannes Sveinbjörns-
son, Jón Viðar Jónmundsson, Ólaf-
ur R. Dýrmundsson, Sigurður Þór
Guðmundsson og Svanur Guð-
mundsson. Bókin er gefin út í sam-
starfi við Landbúnaðarháskóla Ís-
lands og er 300 blaðsíður í veg-
legu broti. Eins og fyrr segir stytt-
ist í að hægt verði
að dreifa bókinni,
en útgáfutími er
áætlaður í lok júlí
að sögn Kristjáns
Kristjánssonar hjá
Uppheimum.
Samhliða þessari
útgáfu er von á ann-
arri bók um svipað
leyti frá Uppheim-
um, eftir Bjarna
Guðmundsson á
Hvanneyri. Hún nefnist Frá hest-
um til hestafla. Í henni segir Bjarni
sögur af vinnuhestum og hest-
anotkun við bú-
störf, fyrstu drátt-
arvélinni sem til
Íslands kom, Akra-
nesstraktornum
svonefnda, Lanz-
þúfnabananum og
loks af landbúnað-
arjeppunum, Wil-
lys og Land Ro-
ver. Þá rifja átta
einstaklingar upp
minningar sínar
frá þessum breytingatímum. Nán-
ar verður sagt frá Hestum til hest-
afla síðar hér í Skessuhorni. mm
Nú stendur yfir fornleifauppgröft-
ur á Gufuskálum á Snæfellsnesi.
Sagt var frá áframhaldi verkefn-
isins í síðasta Skessuhorni. Verið
er að grafa upp gamla verbúð sem
er við það að hverfa vegna land-
rofs. Nýverið fundust ýmsir mun-
ir í jarðlögum frá því snemma á 15.
öld í uppgreftrinum og hafa þeir
legið í jörðu í tæplega 600 ár. Þar
má nefna hvalbein, taflmann, lýsis-
lampa eða ausu, hníf og fleira. Þar
sem enn er mjög skammt frá því að
munirnir fundust eru ekki til mikl-
ar upplýsingar um þá.
Hægt er að fylgjast með upp-
greftrinum á Facebook undir nafn-
inu Gufuskálar Archaeology og
áhugasömum er einnig velkomið
að kíkja á svæðið við Írskrabrunn
og skoða sig um og ræða við forn-
leifafræðingana en þeir eru á svæð-
inu frá klukkan átta til fimm.
sko
Þetta er kubbur úr Kotru sem skorinn er út úr hvalbeini.
Munir frá fimmtándu öld
fundust á Gufuskálum
Þessi hringur er gerður úr koparblöndu, útskorinn og er með
steini sem mögulega er úr gleri.
Taflmaður þessi er skorin úr ýsubeini og er líklega biskup.
Þetta hnífsblað úr járni fannst einnig í verbúðinni.
Bókin Sauðfjárrækt á Íslandi
væntanleg í sölu