Skessuhorn - 26.06.2013, Page 13
13MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
RARIK • Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík
Sími 528 9000 • www.rarik.is
Rafiðnaðarmaður
RARIK óskar eftir rafvirkja í vinnuflokk framkvæmda-
sviðs fyrirtækisins í Borgarnesi. Hér er um fjölbreytt
starf að ræða við nýbyggingar, breytingar og viðhald
á dreifikerfi fyrirtækisins. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
• Almenn störf við dreifikerfi fyrirtækisins
Hæfniskröfur
• Sveinspróf í rafvirkjun
• Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
rafveitustörfum
Nánari upplýsingar veita Sturla Rafn Guðmundsson
og starfsmannastjóri RARIK í síma 528 9000.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
starfsmannaþjónustu fyrirtækisins fyrir 9. júlí n.k.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk
RARIK er að flytja og dreifa raforku, afla, dreifa og annast sölu
á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í
Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar vítt og breytt um
landið.
Síðastliðinn föstudag var undirrit-
aður í bæjarþingsalnum á Akranesi
samningur um verkefnið Fræðslu-
stjóri að láni. Markmiðið með
samningnum er að gera þarfagrein-
ingu og móta heildstæða fræðslu-
áætlun fyrir almenna starfsmenn
Akraneskaupstaðar, aðallega þá sem
eru félagar í Verkalýðsfélagi Akra-
ness og Starfsmannafélagi Reykja-
víkurborgar. Það er Símenntun-
armiðstöð Vesturlands sem hefur
umsjón með framkvæmd verkefn-
isins. Regína Ásvaldsdóttir bæjar-
stjóri sagði áður en hún undirritaði
samninginn að full þörf væri á verk-
efni sem þessu og nauðsynlegt að
sinna sí- og endurmenntun starfs-
fólks sveitarfélagsins. Það væri því
fagnaðarefni að kaupstaðurinn tæki
þátt í þessu verkefni. Samningur-
inn um verkefnið „Fræðslustjóri að
láni“ var undirritaður af Ingu Dóru
Halldórsdóttur framkvæmdastjóra
Símenntunarmiðstöðvar Vestur-
lands, Kristínu Njálsdóttur hjá
Sveitamennt, Regínu Ásvaldsdótt-
ur bæjarstjóra og Ernu Jakobínu
Björnsdóttur fyrir hönd Mann-
auðssjóðs Kjalar. þá
Steinunn Matthíasdóttir ljósmyndari
frá Búðardal var að ljósmynda við
Kirkjufellsfoss í Grundarfirði sl.
mánudag. Þar sá hún að einhver hafði
komið gleraugum haganlega fyrir
á steypukantinum á gömlu brúnni.
Gleraugun eru þar enn ef eigandinn
saknar þeirra.
mm
Þau voru viðstödd undirritun samningsins.
Fræðslustjóri að láni
hjá Akraneskaupstað
Gleraugu hafa
gleymst við
Kirkjufellsfoss