Skessuhorn - 26.06.2013, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Stjórn Sjóbaðsfélags Akraness
heiðraði síðastliðinn sunnudag
þá félaga Helga Hannesson og
Tryggva Björnsson fyrir þeirra þátt
í að kveikja áhuga fyrir sjósundi á
Akranesi. Var þeim afhent viður-
kenningarskjal og blóm við stutta
athöfn á Aggapalli. Í ávarpi sem
Guðmundur Sigurbjörnsson for-
maður sjóbaðsfélagsins hélt sagði
hann m.a: „Við sem erum í þess-
um félagsskap lítum á þá Helga og
Tryggva sem frumkvöðla á þessu
sviði þó svo að sjósund hafi byrj-
að fyrir rúmum 100 árum síðan.
Það var fyrir nærri tveimur árum
sem við hjá sjóbaðsfélaginu héldum
upp á þessi tímamót með sjósundi
í Lambhúsasundi þar sem fyrsta
sundkeppnin á Akranesi fór fram.
Við munum flest eftir því þegar
Helgi og Tryggvi voru að synda hér
í sjónum á Langasandi og það vakti
aðdáun okkar. Við sem stundum
sjósund í dag vitum vel hversu góð
tilfinning það er að synda í sjónum
við Langasand. Það er í senn áskor-
un og vellíðan og færir okkur auk-
inn kraft,“ sagði Guðmundur.
Skömmu eftir að þeim köpp-
um var veitt þessi viðurkenning
var þreytt svokallað Skarfavarar-
sund í annað sinn, en það er um
1600 metra sjósund frá Skarfavör
að Langasandi. Hátt í 30 manns
stunda sjósund á Akranesi á hverju
ári. Þátttakan er eins og gengur
meiri á sumrin, en þó er hópur hátt
í tíu sundkappa sem fer allt árið í
sjóinn, hvernig sem viðrar.
Fer daglega í sund
Það var létt yfir þeim Tryggva og
Helga eftir stutta athöfn á Langa-
sandi. Aðspurðir sögðust þeir ekki
muna hvor þeirra hafi byrjað að
synda meðfram ströndinni við
Langasand, en oft hafi þeir synt þar
saman. „Ég fylgdist með því þeg-
ar Tryggvi var að fara þetta upp í
þrisvar á dag niður í sjó til að kæla
sig,“ rifjar Helgi upp. Tryggvi, sem
er Strandamaður, kveðst snemma
hafa byrjað að iðka sjósund. Það sé
hressandi og nærandi. Sjálfur fer
hann enn í sund á hverjum degi, að
vísu í sundlaugina á Jaðarsbökkum,
enda er hann líkamlega vel á sig
kominn þótt árin séu orðin mörg.
Á fimmtán ára afmæli Jaðarsbakka-
laugarinnar, haustið 1998, fékk
Tryggvi sérstaka viðurkenningu
fyrir góða ástundun í laugina og
væri ástæða til að endurtaka leikinn
nú 30 árum eftir vígslu hennar því
iðulega er Tryggvi að ganga heim
úr sundlauginni í hvaða veðri sem
er þegar nágrannar hans við Jaðar-
sbrautina eru að vakna um sjöleyt-
ið á morgnana.
Hreinsar hugann
Helgi Hannesson sundkennari kenndi
flestum þeim að synda sem nú stunda
sjósund á Langasandi. Helgi kveðst
ekki hafa farið í sjóinn síðustu tvö
árin enda verið að kljást við veikindi.
„Sjósund er hins vegar allra meina
bót og ekkert er betra til að hreinsa
hugann en að synda í sjónum,“ seg-
ir hann. Helgi á enn gildandi Íslands-
met í sundi, en það setti hann árið
sem hann varð 55 ára, eftir að hann
fékk fyrsta hjartaáfallið. Metið er í
400 metra skriðsundi í flokki 50 ára
og eldri og var sett fyrir 18 árum. mm
Á viðurkenningarskjalinu sem Helgi
fékk er m.a. mynd af honum sjálfum á
sundi við Langasand.
Heiðruðu aldna sjósundskappa
Stjórn Sjóbaðsfélags Akraness og þeir félagar Helgi Hannesson og Tryggvi Björnsson.
Langisandur er orðinn bláfána-
strönd og var bláfáninn dreginn í
fyrsta skipti að húni við sandinn síð-
astliðinn fimmtudag. Athöfnin hófst
með söng leikskólabarna og ávarpi
Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra. Í
ávarpi hennar kom fram að Langis-
andur hefði staðist allar þær kröf-
ur sem gerðar eru til þeirrar alþjóð-
legu umhverfisvottunar sem bláf-
áninn er, svo sem til vatnsgæða og
hreinleika. Í umsóknarferlinu voru
meðal annars tekin sýni úr flæðar-
málinu við sandinn og komu þau
vel út, þannig að sjósundsfólk og
aðrir baðstrandargestir þurfa ekk-
ert að óttast að baða sig á sandinum
og synda í sjónum. Þá gat Regína
þess að byrjað væri að nýta Langa-
sand, bláfánaströnd til fræðsluverk-
efna sem börn og unglingar á Akra-
nesi koma að. Nemendur í 6. bekk
beggja grunnskólanna sjá um vor-
hreinsun, þ.e. að hreinsa strand-
lengjuna. Hópurinn Gaman saman
fyrir fötluð og ófötluð börn á aldr-
inum 10-12 ára, stundar leiki og
útivist á Langasandi og þá stendur
leikskólinn Akrasel fyrir verkefninu
Ströndin okkar Langisandur.
Umsóknarferlið var unnið af Írisi
Reynisdóttur garðyrkjustjóra Akra-
neskaupstaðar. Landvernd hefur
yfirumsjón með bláfánavottuninni
á Íslandi og var Salome Hallfreðs-
dóttir mætt með viðurkenninguna
og bláfánann sem hún afhendi
Regínu og Írisi. Þær þrjár hjálp-
uðust síðan að við að flagga fánan-
um. Langisandur er þriðji náttúru-
legi baðstaðurinn á Íslandi sem fær
bláfánavottun, hinir eru Bláa lón-
ið og Ylströndin í Nauthólsvík. Þá
eru fjórar smábátahafnir í landinu
með bláfánavottun, en erlendis er
hún mjög eftirsótt og til marks um
hreinleika og heilnæmi náttúru og
umhverfis. þá
Langisandur orðinn
bláfánaströnd
Salome Hallfreðsdóttir hjá Landvernd afhendir Regínu bæjarstjóra og Írisi garðyrkjustjóra bláfánann og skjal með stað-
festingunni um umhverfisvottun fyrir Langasand.
Leikskólabörn sungu við athöfnina á Langasandi.
Leikskólabörnin voru orðin þyrst
í veðurblíðunni og fengu sér að
drekka úr steinskálunum sem eru á
grasflötinni fyrir ofan sturturnar á
Langasandi.