Skessuhorn - 26.06.2013, Page 15
15MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Fyrirtækið Ísland Treasures fékk
nýverið einnar milljónar króna
styrk frá Sóknaráætlun Vesturlands
vegna verkefnisins „Norðurljós
yfir Snæfellsjökli.“ Verkefnið snýst
um hönnun og framleiðslu spari-
bauka með smekklegum mynd-
um af norðurljósum yfir Snæfells-
jökli. Ísland Treasures var stofn-
að um framleiðslu á minjagripasæl-
gæti í mars á síðasta ári. „Áður en
við stofnuðum fyrirtækið var hvergi
hægt að kaupa minjagripasælgæti á
Íslandi. Ég held að það sé mikil-
vægt að það sé hægt. Þegar þú ferð
til Parísar getur þú keypt minja-
gripi með myndum af Eiffel turn-
inum og í New York er það frels-
isstyttan. Það eina sem hægt var að
kaupa hér voru risastórir konfekt-
kassar frá Nóa Síríus,“ segir Paul-
ine McCarthy á Akranesi, fram-
kvæmdastjóri og stofnandi Island
Treasures, í samtali við Skessu-
horn.
Snæfellsjökull tákn
Vesturlands
Pauline er nú þegar byrjuð að selja
vörur undir merkjum Icelandic
Northern Lights sem eru handgerð
náttúruleg piparmintu minjagripa-
sælgæti. Icelandic Puffin Eggs, Ice-
landic Lava Sparks og Icelandic
Lava Pebbles. Allt er þetta minja-
gripasælgæti í öskjum sem skreyttar
eru fallegum myndum af íslenskri
náttúru og henta vel sem gjafir til
vina erlendis og sem minjagrip-
ir fyrir ferðamenn. „Ég spurði að-
standendur Duty Free í Leifsstöð
hvort þeir vildu fá fallega hannaða
smápakka af nammi til sölu og þeir
svöruðu einfaldlega; „Loksins!“ Þá
höfðu þeir reynt lengi að fá fram-
leiðendur til að gera slíkar vörur en
enginn var til í það, því það þótti
ekki hagkvæmt,“ segir Pauline.
Nýja varan mun heita Northern
Lights. Sparibaukarnir sem Pauline
fékk styrkinn til að framleiða verða
undir merkjum Northern Lights
svo auðvelt sé að markaðssetja þá
á alþjóðavísu og á hvern bauk er
áletrað á ensku: „Norðurljós yfir
Snæfellsjökli á Vesturlandi, Ísland.“
Inni í bauknum eru auk handgerðs
sælgætis, áhugaverðar upplýsingar
um Snæfellsjökul í litlum bæklingi.
„Þar stendur til dæmis að Snæfells-
jökull sé að minnka og ef fólk vilji
sjá hann þurfi það að drífa sig og
koma. Snæfellsjökull er að mörgu
leyti tákn Vesturlands og mér þyk-
ir þetta góð leið til að laða fólk að
Vesturlandi. Ferðamenn geta svo
notað sparibaukinn til að spara
til næstu ferðar til Íslands,“ seg-
ir Pauline og hlær. Hún segir fólk
vilja eiga fallegar umbúðir og það
að hanna fallegar umbúðir úr nátt-
úru Íslands hafi ekki reynst erfitt. „Í
rauninni má segja að náttúran hafi
hannað þetta fyrir mig.“
Pauline er listamaður og hef-
ur búið hér á landi sl. 20 ár. Hún
fer mikinn í samfélagi innflytjenda
á Íslandi og stendur sem dæmi fyr-
ir Þjóðahátíð sem haldin verður
í Borgarnesi í október. Þar munu
innflytjendur á Vesturlandi koma
saman. Hvert þjóðerni verður með
borð þar sem kynntur verður matur
frá heimalandinu, minjagripir verða
sýndir, auk skemmtiatriða.
sko
Pauline framleiðir minjagripasælgæti
með myndum úr íslenskri náttúru.
Fékk styrk til framleiðslu minjagripa um Vesturland
Pauline er hér með vörur sínar. Ljósm. hlh.
Sparibaukurinn sem um ræðir er
prýddur fallegum myndum af norður-
ljósum yfir Snæfellsjökli.