Skessuhorn - 26.06.2013, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Nafn: Íris Reynisdóttir.
Starfsheiti/fyrirtæki: Garðyrkju-
stjóri Akraneskaupstaðar.
Fjölskylduhagir/búseta: Á einn
yndislegan dreng, Sindra Frey
Daníelsson, og er hann að verða 9
ára. Við búum á Akranesi.
Áhugamál: Náttúran í allri sinni
dýrð. Mér finnst mjög gaman að
ferðast og upplifa nýja hluti og
menningu, mætti þó gera meira
af því. Finnst líka mjög gaman að
taka ljósmyndir. Í námi mínu hef
ég líka fylgt því sem ég haft mik-
inn áhuga á, gróður, hönnun,
mótun umhverfis og hvernig það
hefur áhrif á okkur öll. Síðast en
ekki síst eru samverustundir með
syni mínum ómetanlegar. Hann er
algjör gullmoli.
Vinnudagurinn: Fimmtudagur-
inn 20. júní 2013.
Mætti í vinnuna klukkan átta.
Hitti þá verkstjórana Anítu Ósk
Áskelsdóttur og Sindra Birgisson
og fór yfir verkefni dagsins með
þeim. Þau stýra hópi fólks, aðal-
lega ungmennum, sem sinna garð-
yrkjunni og öðrum umhverfismál-
um yfir sumartímann og fram á
haust.
Eftir það var ég að sinna ýmsum
erindum t.d. svara og senda tölvu-
pósta og upp úr klukkan 11 fór ég
að kanna hvort allt væri ekki í fínu
standi á Langasandi fyrir afhend-
ingu Bláfánans sem var á dagskrá
kl. 13.
Hádegið: Skaust heim að bregða
mér í betri gallann fyrir Bláfána-
afhendingu og borða hádegismat.
Fór svo niður á Langasand að taka
á móti fulltrúum frá Landvernd,
fulltrúum frá Akraneskaupstað og
leikskólanum Akraseli sem voru
viðstaddir afhendinguna.
Klukkan 13 var ég viðstödd af-
hendingu Bláfánans fyrir Langa-
sand, Bláfáninn er alþjóðleg um-
hverfisviðurkenning fyrir bað-
strendur og smábátahafnir. Virki-
lega skemmtileg stund og gerir
mann stoltan af vinnu sinni. Gam-
an þegar góðir hlutir verða að
veruleika.
Eftir það fór ég að sinna öðrum
verkefnum, s.s. fylgjast með gras-
slætti og fara yfir verkefni á einni
leikskólalóðinni hér í bæ. Hætti í
vinnunni rétt fyrir 17. Það síðasta
sem ég gerði var að skrifa nið-
ur allt sem ég þurfti að muna fyr-
ir næsta dag og einnig skipuleggja
þann dag.
Fastir liðir alla daga? Hitta verk-
stjórana og leggja á ráðin með
þeim.
Hvað stendur upp úr eftir
vinnudaginn? Klárlega Bláfána-
afhendingin. Búin að vinna lengi
að þessu og mikil upphefð fyrir
Langasand og Akranes.
Var dagurinn hefðbundinn?
Ekki á allan hátt. Maður flagg-
ar ekki Bláfána á hverjum degi,
en það er mikill erill í vinnunni
og þarf að sinna mörgu þannig á
þann hátt var hann hefðbundinn.
Hvenær byrjaðir þú í þessu
starfi? Ég byrjaði í apríl 2011.
Er þetta framtíðarstarfið þitt?
Hef ekki hugmynd, allt er breyt-
ingum háð í þessu lífi en ég mun
gera mitt allra besta meðan ég
sinni starfi garðyrkjustjóra.
Hlakkar þú til að mæta í vinn-
una? Stundum, stundum ekki.
Eitthvað að lokum? Það má
alltaf við sig blómum bæta... og
trjám.
Dag ur í lífi...
Garðyrkjustjóra
Skátarnir Anna Margrét og Inga
Lilja Þorsteinsdætur, Karen Alda
Þorvaldsdóttir, Margrét Helga
Magnúsdóttir, Unnur Helga Víf-
ilsdóttir og Jón Örn Vilhjálms-
son úr Skátafélagi Borgarness
fengu boð um að fara til Svíþjóð-
ar á vinabæjamót. Boðið var þeg-
ið og með í för var einnig Bjarni
Heiðar Johansen frá Norræna fé-
laginu í Borgarfirði, en hann tók
þátt í annarri dagskrá sem fram
fór á sama tíma. Eftirfarandi frá-
sögn byggist á skrifum skátanna
að lokinni heimferð:
Aðfararnótt föstudagsins 14.
júní flaug hópurinn til Kaup-
mannahafnar og tók þaðan lest
til Svíþjóðar. Á meðan beðið var
eftir lestinni skemmti hópurinn
sér með söngvum og bröndur-
um. Með þeim í lestinni var hóp-
ur af skátum frá Færeyjum sem
var á leið á sama mót. Skátarn-
ir gistu í gamalli myllu sem hafði
verið breytt í veiðikofa. Á kvöld-
vöku á föstudagskvöldinu stálu
íslensku skátarnir senunni með
miklum látum og hressandi lög-
um sem þeir sungu saman í rign-
ingunni í kringum varðeld og
notalegheit.
Vel heppnað mót
Á laugardeginum vaknaði hópurinn
snemma og farið var beint með rútu
til Fagens þar sem vinabæjarmót-
ið var sett, fánar dregnir að húni og
þjóðsöngvar sungnir. Að því loknu
var farið í ratleik með GPS-staðsetn-
ingartækjum á kanóum á vatni nærri
mótssvæðinu. Um kvöldið fóru skát-
arnir í sturtu en því miður kláruðu
Svíarnir og Færeyingarnir allt heita
vatnið svo íslensku skátarnir neydd-
ust til að fara í kalda sturtu. Að því
loknu var farið í fínan kvöldverð í
Fagens með fólki frá Norræna fé-
laginu frá hinum Norðurlöndunum.
Skátarnir stóðu heiðursvörð í kirkj-
unni í Falkenberg á sunnudeginum.
Síðar um daginn var mótinu slitið í
samkomuhúsi í Falkenberg. Þar voru
sænskir þjóðdansar sýndir og ákváðu
Færeyingarnir að dansa þjóðdans-
inn sinn, Vikivaka, og allir tóku þátt.
Þegar heim var komið voru allir með
bros á vör eftir vel heppnaða helgi.
Rætt var um að halda sambandi við
hina skátana og stefnt að því að hitt-
ast að ári liðnu á Landsmóti skáta á
Akureyri. Skátarnir vilja þakka Nor-
ræna félaginu og Borgarbyggð fyrir
vel heppnaða ferð. sko
Eins og Skessuhorn greindi frá í
síðustu viku er sláttur víða haf-
inn í sveitum á Vesturlandi. Ágæt
spretta virðist vera í túnum og víða
afar góð miðað við sprettu síðustu
ára sem varð fyrir barðinu á tölu-
verðum þurrkum fyrri hluta sum-
ars. Að sögn Torfa Guðlaugssonar
bónda í Hvammi í Hvítársíðu, sem
hóf slátt á þriðjudaginn í liðinni
viku, koma tún hans mjög vel und-
an vetri. Torfi segir undangengið
vor hafa verið það besta í töluverð-
an tíma, alla vega síðan 2007. Vorið
hafi að vísu þróast misjafnlega, ekki
var mjög hlýtt í fyrstu en síðan hafi
hitastigið farið hækkandi. Þá hafi
nánast rignt annan hvern dag síð-
ustu vikur og tryggi þessi góða væta
aukna sprettu og gott gras. Fyrsta
túnið sem Torfi slær í ár er heima-
túnið í Hvammi en þegar blaða-
maður Skessuhorns leit við á bæn-
um um miðjan dag á fimmtudag-
inn var góður þurrkur og unnið
við að snúa ilmandi töðunni. „Að
vísu gekk á með skúrum á miðviku-
daginn í þrjá tíma, en blessunar-
lega er þurrkur í dag svo heyskap-
urinn er allur á áætlun,“ sagði Torfi
á fimmtudaginn.
Á næstu dögum verður slætti á
fram haldið en alls eru túnin sem
slegin verða í Hvammi í fyrri slætti
um 40 hektarar að stærð, allt frið-
uð tún. Þrjú tún eru síðan í rækt-
un hjá Torfa og verður eitt þeirra
slegið í sumar. Torfi reiknar með að
fyrri slætti verði lokið um 10. júlí
en hann býst við að seinni sláttur
hefjist eftir Verslunarmannahelgi. Í
Hvammi eru nú tuttugu mjólkandi
kýr að sögn Torfa en auk búskap-
arins vinnur hann við járnsmíð-
ar í smiðju sinni á bænum, sérstak-
lega yfir vetrartímann. Hann seg-
ir bændur í nágrenninu almennt
ánægða með tíðarfarið og megi
fastlega búast við að fleiri hefji slátt
á allra næstu dögum.
hlh
Íris á spjalli við Salome frá Landvernd þegar Bláfánanum var flaggað á Langa-
sandi sl. fimmtudag.
Ilmandi töðu snúið á heimatúninu í Hvammi. Fremst á myndinni má sjá nýrækt
sem Torfi hyggst slá í fyrsta skipti í sumar.
Tún koma vel undan vetri og sprettutíð er góð í Síðunni
Torfi Guðlaugsson bóndi í Hvammi ásamt Heklu dóttur sinni við nýslegið heimatúnið.
Skátar úr Borgarnesi á
vinabæjamóti í Svíþjóð
Hér eru íslensku skátarnir hressir í myndatöku með öðrum skátum á vinabæja-
mótinu.