Skessuhorn - 26.06.2013, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Upplýsingamiðstöð ferðamála á
Akranesi var opnuð á nýjum stað í
bænum 1. maí sl. Það er á jarðhæð
gamla Landsbankahússins á Suð-
urgötu 57. Tvö síðustu sumur var
upplýsingamiðstöðin í Skagamoll-
inu á Kirkjubraut 54, en áður var
hún um tíma tengd rekstri kaffi-
hússins Skrúðgarðsins og þar áður
lengi á Safnasvæðinu. „Þetta er
náttúrlega ekta staður hérna við
Akratorgið til að miðla upplýs-
ingum til ferðamanna. Miðað við
skráningu heimsókna fyrir ári virð-
ast ferðamenn vera fyrr á ferðinni
núna,“ segir Ingibjörg Gestsdótt-
ir sem kom til starfa í upplýsinga-
miðstöðinni í vor. Ingibjörg seg-
ir greinilegt að Akranes sé að koma
sterkar inn sem ferðamannastað-
ur. „Ég held það sé bæði í hugum
ferðamannanna og líka breytt við-
horf Skagamanna sjálfra. Hér á
árum áður sögðu margir Akurnes-
ingar gjarnan, hvað skyldu svo sem
ferðamenn vilja sjá hér,“ segir Ingi-
björg.
Glöggt er gests augað
Ingibjörg segir að bæði innlend-
ir og erlendir ferðamenn kíki við
í upplýsingamiðstöðina eða hafi
samband og leiti ráða um hvernig
best sé að verja degi eða dagsparti
á Akranesi. „Það er vandalaust að
finna eitthvað áhugavert fyrir fólk,
enda hefur Akranes af mörgum
perlum að státa. Við gleymum því
oft að það sem okkur finnst sjálf-
sagt mál og ekkert merkilegt finnst
gestunum sem koma í bæinn alveg
meiriháttar. Við búum til dæmis
svo vel að eiga mjög fallega strand-
lengju þar sem fólk getur fang-
að fuglalífið, hljóðið frá fuglunum
og sjónum. Það þarf ekki langt að
fara til þess, bara í varirnar hérna
innanbæjar eða í Kalmansvíkina
og þar inn af. Það hafa komið til
mín ferðamenn sem eru alveg upp-
ljómaðir yfir fuglalífinu við Innst-
avog og við ströndina inn að Blaut-
ós. Svo er það að sjálfsögðu Lang-
isandurinn og það sem hann hefur
upp á að bjóða, Safnasvæðið og nýj-
asta trompið, sem er Akranesvitinn
á Breið og leiðsögn frábærra vita-
varða þar. Það er boðið upp á ferðir
á Akrafjall tvisvar í viku, sem unga
fólkið í Björgunarfélagi Akraness
hefur verið svo vinsamlegt að taka
að sér, síðan er það Garðalundur og
ýmis afþreying sem í boði er eins og
til dæmis frábær golfvöllur.“
Dagsferð með strætó
Margir ferðamenn koma á eig-
in vegum á Akranes að sögn Ingi-
bjargar. „Eftir að strætóferðir byrj-
uðu á Akranes er þó nokkuð um að
ferðafólk nýti sér strætóferðirn-
ar og fari dagsferð á Skagann með
strætó. Svo má ekki gleyma því
að margir ferðamenn sem hingað
koma hrífast af kyrrðinni sem oft
er hérna á Akranesi og því frjáls-
ræði sem börnin hérna búa við, svo
sem í leikjum langt fram á kvöld
yfir sumartímann. Það eru marg-
ir útlendingar sem taka eftir þessu
og furða sig á því, enda komn-
ir margir hverjir úr stórborgar-
lífinu og þekkja lítið annað. Við
hérna á Akranesi getum verið stolt
af bænum okkar og því góða starfi
sem hefur verið unnið í ferðamál-
um og er að eflast enn frekar. Allt-
af má gera betur og því vona ég að
á næstu árum verði haldið áfram að
markaðssetja bæinn okkar á allan
þann hátt sem hægt er,“ segir Ingi-
björg Gestsdóttir í upplýsingamið-
stöð ferðamála á Akranesi.
þá
Krían hefur lengi verið táknræn
fyrir byggðina á utanverðu Snæ-
fellsnesi og var hún á skjaldarmerki
Neshrepps utan Ennis. Lengi hef-
ur verið kríuvarp í Rifi og á fleiri
stöðum á Snæfellsnesi. Kríuvarp-
ið í Rifi var undir miklum ágangi
fólks og vargs áður en hugað var
að því að verja varpið. Sæmundur
Kristjánsson í Rifi er með kríuvarp-
ið við gluggann hjá sér og fylgist
vel með því. „Ég sé þetta oft á dag,
bæði hjólandi og gangandi. Það er
talsvert minna af fugli nú en þeg-
ar mest var. Núna er heilmikið af
fugli búinn að verpa, en maður sér
kríuna ekki með mikið æti,“ seg-
ir Sæmundur. Hann segir þróunina
hafa verið á þessa lund í þó nokkurn
tíma. „Varpið lítur ekki öðruvísi út
en undanfarin ár. Það er heilmik-
ið af geldfugli á svæðinu sem hef-
ur ekki æti. Þetta hefur verið svona
meira og minna í sex ár og fer að
segja til sín á fjölda fugla. Það er
dapurlegt að upplifa þetta,“ segir
Sæmundur
Annað varp, hjá mófugli, spör-
fugli og sjófugli, er í fínu standi á
svæðinu samkvæmt Sæmundi. „Það
er talsvert meira af spörfugli við
ströndina og hefur orðið meira ár
frá ári. Skordýralífið hefur verið
í vexti með hlýnandi veðurfari og
auknum gróðri vegna minni sauð-
fjárbeitar,“ segir Sæmundur og
bætir við: „Það er búið að vinna
mikið á minkinum undanfarin ár og
það hefur skilað stórkostlegum ár-
angri hjá öndum, spörfugli og mó-
fugli. Nú er að vísu búið að slaka á
átakinu og ég verð var við mink en
það er sama því ég sé stóran mun á
fuglalífinu og hvað fuglinn er spak-
ari.“
sko/ Ljósm. ras.
Þeir Sveinn Haukur Valdimars-
son og Ægir Snær Sigmarsson hafa
tekið við rekstri Kaffi Prímuss á
Hellnum, sem opnað var í byrjun
júní, en þeir eru báðir úr Reykja-
vík. „Við komum hingað til að taka
skurkinn í sumar eftir að eigandinn
bað mig um að reka þetta fyrir sig.
Við erum með einfalt kaffihús og
bjóðum upp á kökur, vöfflur, súpur,
samlokur og pylsur. Þetta er í raun
blanda af kaffihúsi og sjoppu,“ seg-
ir Sveinn. Aðspurður hvernig sum-
arið fari af stað svarar hann: „Það
hefur verið góður reytingur. Mér
skilst að það eigi að aukast mikið í
næsta mánuði, en það byrjar mjög
vel og allt gengið snurðulaust fyr-
ir sig. Þegar veðrið er svona gott þá
koma að vísu færri hérna inn, það er
betra fyrir okkur að hafa rigningu
og grátt yfir því þá kemur mann-
skapurinn í súpuna og kaffið,“ segir
Sveinn. Hann og Ægir félagi hans
vinna einir á Kaffi Prímus í sumar.
„Þetta er bara vertíð og mann mun-
ar ekki um að vaka eina slíka,“ seg-
ir Sveinn.
Kaffi Prímus er í sama húsi og
Gestastofa Þjóðgarðsins Snæfells-
jökuls. „Það er komið á mörgum
rútum til okkar og fólkið sem geng-
ur frá Arnarstapa hingað yfir dett-
ur inn til okkar og á Gestastofuna
eftir góðan göngutúr. Núna höfum
við fengið mikið af fólki frá Kanada
til okkar og Þjóðverjarnir eru allt-
af margir,“ segir Sveinn. Ekki væs-
ir um þá félaga við rætur Snæfells-
jökuls. „Jökullinn er aðal aðdrátt-
araflið og flestir ferðamenn koma
til að sjá hann,“ segir Sveinn og við
það bætir Ægir: „Svo batnar heils-
an vegna kraftsins frá jöklinum og
þess vegna er mjög gott að vera á
Snæfellsnesi.“ sko
Mikið af geldfugli í Rifi
Kaffi Prímus er í sama húsi og Gestastofa þjóðgarðsins.
Sumarið farið vel af stað á Kaffi Prímus
Sveinn Haukur Valdimarsson og Ægir Snær Sigmarsson standa vaktina á Kaffi
Prímus í sumar.
Ingibjörg Gestsdóttir í Upplýsingamiðstöð ferðamála á Akranesi.
Ferðamennirnir fyrr á ferðinni
Þrátt fyrir góða sprettutíð og ágæt-
is vorveðráttu á Vesturlandi, hafa
margir saknað sólarinnar og saman-
burður þetta vorið við nokkur þau
síðustu stenst illa samanburð, enda
sólríki þeirra trúlega nokkuð yfir
meðallagi á Vesturlandi. Það var þó
sumar og sól á Akranesi og víða um
Vesturland í síðustu viku og fram
á helgina. Þessi mynd var tekin á
Akratorgi á Akranesi sl. fimmtudag.
Bragi Þór og Lilja Guðríður voru
þá að snyrta eitt af blómabeðunum
við torgið og börnin í parís á stétt-
inni þar rétt við. Ekta sumarstemn-
ing í gamla viðbænum á Akranesi
þennan dag.
þá
Víkingaþorpið í Grundarfirði er
byrjað að taka á sig mynd. Á sunnu-
dagskvöldið síðasta þegar ljós-
myndara bar að garði voru nokkr-
ir fræknir víkingar í óða önn að slá
upp þorpinu sem verður staðsett
miðsvæðis í bænum. Það verður
gaman að fylgjast með þegar loka-
hönd verður lögð á verkið því búast
má við að þorpið setji skemmtileg-
an svip á bæinn.
tfk
Sumar og sól á Akratorgi
Víkingaþorp rís í Grundarfirði