Skessuhorn - 26.06.2013, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Century Aluminum, móðurfélag
Norðuráls á Grundartanga, keypti
nýverið Sebree álverið í Kentucky
af Rio Tinto Alcan móðurfélagi ál-
versins í Straumsvík. Í tilkynningu
um kaupin kom fram að Century
hefur eignast allar eignir Sebree
álversins. Framleiðslugeta á árs-
grundvelli eru 205 þúsund tonn og
þar vinna yfir 500 starfsmenn. Til
samanburðar voru framleidd yfir
280.000 tonn af áli á Grundartanga
á síðasta ári.
Michael Bless forstjóri Century
Aluminum segir í tilkynningu vegna
kaupanna að með þeim breytingum
sem eru að verða á orkumarkaðin-
um í Bandaríkjunum hafi stjórn-
endur fyrirtækisins fulla trú á sam-
keppnishæfni CA á alþjóðamark-
aði. „Álver Century Aluminum
í Hawesville er í um 100 km fjar-
lægð frá Sebree og því eru tækifæri
til samvinnu í öryggis- og rekstrar-
málum þar sem stefnt er að fyrsta
flokks árangri. Aðgangur að opn-
um orkumarkaði er mikilvægur fyr-
ir starfsemi okkar í Bandaríkjunum.
Við teljum að þeir samningar sem
gerðir voru vegna orkukaupa fyr-
ir Hawesville muni þjóna sem fyr-
irmynd fyrir Sebree.“ Century Al-
uminum Company er eigandi ál-
vera í Bandaríkjunum og á Íslandi.
Höfuðstöðvar Century eru stað-
settar í Chicago, Illinois. þá
Tímabil ferðaþjón-
ustunnar er nú í
hámarki víða um
land. Ferðamáti fólks
er ólíkur, en þessi
skoska fjölskylda
var í hjólaferð um
Snæfellsnes í vikunni
sem leið þegar ljós-
myndari Skessuhorns
hitti þau.
sk
Írskir dagar fara fram helgina 4. –
6. júlí nk. á Akranesi og venju sam-
kvæmt verður slegið upp glæsilegu
Lopapeysuballi í Sementsgeymsl-
unni við hlið gömlu Akraborgar-
bryggjunnar. Þetta er í tíunda skipti
sem Lopapeysan fer fram en hún er
með stærstu böllum sem haldin eru
hér á landi og ætíð notið fádæma
vinsælda. Í tilefni tíu ára afmæl-
is Lopapeysunnar ætla skipuleggj-
endur ballsins, með Ísólf Haralds-
son hjá Vinum hallarinnar í broddi
fylkingar, að tjalda öllu til og verða
tvö svið á ballinu í ár. „Sem fyrr
verður spilað á sviðinu inni í Sem-
entsgeymslunni og til viðbótar á
stóru sviði í risatjaldi á útisvæðinu.
Þetta þýðir að rýmra verður um
gesti og meiri fjölbreytni, þannig
að allir ættu að finna eitthvað við
sitt hæfi,“ sagði Ísólfur í samtali við
Skessuhorn.
„Lopapeysan er fyrir löngu orð-
inn einn stærsti einstaki tónlist-
arviðburður ársins á landsbyggð-
inni. Hún dregur til sín fjölda fólks,
unga jafnt sem gamla, alls staðar
af landinu. Aðsóknin hefur ávallt
verið framar vonum enda hefur í
gegnum tíðina verið kappkostað
við að bjóða upp á fjölbreytta tón-
listardagskrá með helstu stjörnum
landsins, og í þægilegu og öruggu
umhverfi,“ bætir hann við. Og
ekki er dagskráin af verri endan-
um í ár. „Á öðru sviðinu koma fram
helstu stjörnur íslenskrar tónlistar-
sögu, þau Bubbi Morthens, Helgi
Björnsson, Matti Papi, Jón Jóns-
son, ásamt fleirum. Hljómsveit ís-
lenska lýðveldisins sér um að spila
undir en hljómsveitin var sérstak-
lega sett saman fyrir þennan við-
burð. Á hinu sviðinu verður sjálf-
ur Páll Óskar, poppstjarna Íslands í
aðalhlutverki, en honum til aðstoð-
ar verða þeir Ágúst Bent, Steindi
jr. og fleiri. Gríðarlegt stuð er því
í vændum á tíu ára afmælinu,“ bæt-
ir Ísólfur við.
Miðasala á Lopapeysuna hófst
föstudaginn 21. júní sl. Hægt er að
kaupa miða á midi.is, hjá Eymunds-
son Akranesi, Omnis í Borgarnesi
og í verslun Jack & Jones Kringl-
unni og Smáralind. Lopapeysan
hefst eins og alltaf stundvíslega kl.
23.59 á laugardagskvöldinu.
hlh
Það er orðinn fastur liður eins og
venjulega að haldnar séu hlutaveltur
til söfnunar fyrir góð málefni. Þessar
dugmiklu stúlkur voru fyrir utan
Samkaup í Grundarfirði þegar
ljósmyndara bar að garði. Þær voru
að selja hlutaveltumiða til styrktar
Rauða krossinum. Frábært framtak
hjá þessum dugnaðarforkum.
tfk
Á laugardaginn heldur Vélhjóla-
íþróttafélag Akraness annað mót-
ið á Íslandsmeistaramótaröðinni
í Moto-crossi á Akrabrautinni í
gamla moldarpyttinum, rétt inn-
an við athafnasvæði Gámaþjón-
ustu Vesturlands við Akrafjallsveg.
Að sögn Jóhanns Péturs Hilmars-
sonar, formanns VÍFA, má búast
við hörkukeppni en þetta er í ann-
að skipti sem félagið heldur mót í
mótaröðinni. „Tímatakan hefst kl.
10:30 um morguninn en keppni
kl. 12 og stendur hún yfir til um
kl. 16:30. Keppt er í fimm keppn-
isflokkum, 85 cc. flokki, kvenna-
flokki, unglingaflokki, B-flokki og
A-flokki. Innan B-flokks er keppt í
flokki 40 ára og eldri og í A-flokki í
MX1 og MX2,“ segir Jóhann.Tvær
umferðir fara fram í hverjum flokki
þar sem ekið verður í 20. mínútur
og loks tvo hringi að þeim loknum.
Alls taka þátt um 70 keppendur í
mótinu sem koma víða að af land-
inu. Þar af eru átta Skagamenn sem
taka þátt. Jóhann segir um 30 fé-
laga í VÍFA koma að skipulagningu
mótsins en unnið hefur verið að því
að gera Akrabrautina klára undan-
farna daga og vikur. Hann gerir ráð
fyrir að töluvert af gestum eigi eft-
ir að leggja leið sína á mótið til að
fylgjast með gangi mála og hvet-
ur hann allt hjólaáhugafólk til að
mæta og hvetja sína menn áfram.
hlh
Glaðbeittir Norðurálsmenn að störfum. Ljósm. Ása Birna Viðarsdóttir.
Century Aluminum kaupir
álver af Rio Tinto Alcan
Sjón er sögu ríkari í Moto-crossi.
Íslandsmeistaramótaröðin
í Moto-crossi fer fram á
Akranesi á laugardaginn
Jóhann Pétur Hilmarsson, formaður
VÍFA.
Héldu hlutaveltu í sumarblíðunni
Fjölskylda á hjólum
Ísólfur Haraldsson.
Glæsileg dagskrá á tíu ára
afmæli Lopapeysunnar
Dúndurfréttir og Eyþór Ingi á Lopapeysunni á Írskum dögum síðasta sumar.