Skessuhorn - 26.06.2013, Síða 27
27MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013
Eva Karen Þórðardóttir eigandi og
skólastjóri Dansskóla Evu Karenar
í Borgarnesi hefur hætt við að loka
skólanum og hætta starfsemi. Skól-
inn verður því áfram starfræktur
næsta haust en Eva tilkynnti í lok
apríl að skólanum yrði lokað 1. júlí
nk. Eva segir í samtali við Skessu-
horn að skólinn verði ekki eins stór
og hann hefur verið næsta vetur en
hún hyggst finna leið til að tryggja
rekstur hans. „Eftir á að ganga frá
húsnæðismálum skólans og eigum
við í viðræðum við Borgarbyggð
um áframhaldandi leigu á kjallara
Hjálmakletts í Borgarnesi þar sem
við höfum starfrækt skólann síð-
ustu ár. Helst af öllu vil ég að skól-
inn verði þar áfram þar sem hann
er en við sjáum hvað setur þeg-
ar samningar um húsnæði hefjast,“
segir Eva.
Hún segist hafa fengið mjög sterk
viðbrögð frá fólki í héraðinu þegar
hún tilkynnti að dansskólanum ætti
að loka og var hún hvött til að end-
urskoða ákvörðun sína. „Þegar ég
tók þessa ákvörðun í vor fékk ég
sent gríðarlega mikið af tölvupósti
og veit ég að undirskriftalisti fór í
gang til að styðja við bakið á skól-
anum. Ég þakka öllum þau fallegu
hvatningarorð sem skólinn fékk.
Vandamál eru til að leysa þau og
við finnum leið til að dansa áfram
næsta vetur,“ sagði Eva að lokum
bjartsýn í bragði. hlh
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð-
ar sl. fimmtudag var framúrkeyrsla
í rekstri Grunnskólans í Borgar-
nesi rædd. Lögð var fram skýring
Kristjáns Gíslasonar, skólastjóra
grunnskólans á framúrkeyrsl-
unni m.v. fjárhagsáætlun á fyrstu
mánuðum ársins 2013. Að sögn
Páls S. Brynjarssonar sveitarstjóra
er ástæða framúrkeyrslunnar að
stórum hluta mistök við gerð fjár-
hagsáætlunar. Hún gerði ráð fyr-
ir að launakostnaður grunnskól-
ans yrði tæpar 87 milljónir króna
á fyrstu fjórum mánuðum ársins
en raunin varð sú að kostnaðurinn
nam um 93,3 milljónum króna eða
um 7,2% hærri upphæð en áætl-
un gerði ráð fyrir. Skoðun gagna
leiddi í ljós að um 3,8 milljónir
væru vegna mistaka við gerð fjár-
hagsáætlunar og 900.000 kr. vegna
uppgjörs við kennara sem vafi lék á
um að ætti rétt á lækkun kennslu-
skyldu vegna aldurs og starfsaldurs.
Álitaefninu var vísað til samstarfs-
nefndar KÍ og Sambands ísl. sveit-
arfélaga sem úrskurðaði ekki fyrr
en eftir áramót og þá kennara í vil.
Því þurfti að leiðrétta laun kennar-
ans aftur til 1. ágúst 2012. Þá bætt-
ust við 700.000 kr. vegna langtíma-
veikinda kennara og einnig lífeyr-
isgreiðslur sem voru hærri en áætl-
að var.
Byggðarráð ákvað að óska eftir frek-
ari skýringum frá fræðslustjóra Borg-
arbyggðar um málið og tillögum um
hvernig hallanum yrði mætt. Að sögn
Páls verður málið tekið fyrir á nýjan leik
á fundi ráðsins á fimmtudaginn. hlh
Ferðaskrifstof-
an Þemaferð-
ir stendur fyr-
ir gönguferð
sem fara á um
Strandir dagana
1.-5. ágúst nk.
Gengið verður
frá Norðurfirði
í Árneshreppi
til Drangsness í
Kaldrananeshreppi. Farnar verða
tiltölulega auðveldar gönguleiðir
þó sumar þeirra séu svolítið lang-
ar. Gengið verður upp gróðursæla
dali og upp í háfjallaauðnina þar
sem stórkostlegt útsýni er til allra
átta. Göngunni sjálfri líkur 4. ágúst
en þann fimmta verður siglt með
Sundahana um-
hverfis Gríms-
ey og þar verð-
ur farið í land og
rölt um lunda-
byggðina. Á
b a k a l e i ð i n n i
verður jafnvel
prófað að veiða
á sjóstöng. Verð
fyrir ferðina er
85.000 á mann. Innifalið er leið-
sögn og trúss, öll gisting, morgun-
matur, hádegisnesti og kvöldmat-
ur, sund og sigling. Frekari upplýs-
ingar veitir Arnlín Óladóttir í síma
451-3384 og 865-1399 og í net-
fangi themaferdir@themaferdir.is.
Fréttatilkynning
Hið árlega púttmót Flemming
open, hið þriðja í röðinni, var hald-
ið á púttvellinum á Hvammstanga
föstudagskvöldið 21 júní. Mótshald-
ari og gefandi verðlauna er Flemm-
ing Jessen fyrrverandi skólastjóri
á Hvammstanga og Varmalandi.
Alls voru 23 þátttakendur skráðir
til leiks og léku þeir þrjá hringi, 27
holur, en par vallarins er 21.
Úrslit urðu sem hér segir:
Kvennaflokkur:
1. Helga Rakel Arnardóttir,
Hvammstanga, 75 högg
2. Margrét Guðmundsdóttir,
Hvammstanga, 76 högg
3. Ragnheiður Jónsdóttir, Borgar-
nesi, 77 högg
Karlaflokkur:
1. Ingimundur Ingimundarson,
Borgarnesi, 63 högg á pari
2. Páll Sigurðsson, Hvammstanga,
65 högg
3. Þórhallur Teitsson, Hvanneyri,
67 högg
Þess má geta að púttvöllurinn á
Hvammstanga er á lóð Heilsugæslu-
stöðvarinnar og er á vegum Húna-
þings vestra og Keilbrigðisstofnun-
arinnar. Hann er til frjálsra afnota
fyrir almenning án endurgjalds. mm
Héraðssamböndin UDN, HSH,
UMSB, HSS og HHF ásamt
Ungmennafélaginu Skipaskaga
og Ungmennasambandi Kjal-
nesinga blása til SamVestmóts
fyrir 11 ára og eldri í frjálsum
íþróttum. Mótið verður hald-
ið á Skallagrímsvelli í Borgarnesi
og hefst kl. 18 í kvöld, miðviku-
daginn 26. júní og annað kvöld,
fimmtudagskvöld á sama tíma.
Í kvöld er keppnin fyrir þá sem
fæddust 2001-2002, en fyrir þá
sem fæddust á árinu 2000 og fyrr
er keppni báða dagana. Á mótinu
verður keppt í algengustu grein-
um frjálsra íþrótta.
þá
Eva Karen Þórðardóttir.
Dansskóli Evu Karenar
mun starfa áfram
Gengið um Strandir á
vegum Þemaferða
Helga Rakel og
Ingimundur sigurvegarar
Framúrkeyrsla í rekstri
Grunnskólans í Borgarnesi
Frá æfingu vestlenskra ungmenna í frjálsum. Ljósm. sko.
SamVestmót í frjálsum í Borgarnesi