Skessuhorn


Skessuhorn - 26.06.2013, Side 30

Skessuhorn - 26.06.2013, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2013 Hvernig líkar þér Vesturland? Peter Gonzalez, Bandaríkjunum Mjög vel, þetta er dýrlegur landshluti. Nancy Gubman, Bandaríkjunum Afar vel, náttúran er stjarn- fræðilega falleg. François Chauveau, Frakklandi Vel, landslagið er ótrúlegt. Guillaume Dubois, Frakklandi Mjög vel, fjöllin og strandlengj- an eru eftirtektarverð. Cyrille Honore, Frakklandi Mér líkar vel við náttúruna og svo er sagan hér heillandi. Spurning vikunnar How do you like West Iceland? (Spurt í Landnámssetrinu og á Farfuglaheimilinu í Borgarnesi) Unglingameistaramót Íslands í sundi var endurvakið á dögunum, en á því móti keppa sundmenn í aldursflokkunum 15-17 ára og 18- 20 ára. Sundfélag Akraness sendi sjö keppendur á mótið í Hafnar- firði og náðu þeir ágætum árangri. Sævar Berg Sigurðsson sigraði í 200 metra bringusundi 18-20 ára, Í yngri flokknum fékk Atli Vikar Ingimundarson silfurverðlaun í 50 m skriðsundi og brons í 100 m flug- sundi og Sólrún Sigþórsdóttir varð þriðja og fékk brons í 50 m skrið- sundi og 200 m fjórsundi. þá Sameiginlegt lið Snæ- fells/Geislans lék gegn liði Stál-Úlfs í B-riðli 4. deildar karla í knatt- spyrnu á laugardaginn í Kópavogi. Gestirnir byrjuðu mun betur í leiknum og kom Þröst- ur Friðberg Gíslason þeim yfir með marki á 19. mínútu. Jóhann- es Helgi Alfreðsson bætti um bet- ur á 38. mínútu fyrir Snæfell/Geisl- ann þegar hann skoraði annað mark liðsins. Staðan var því 0-2 í hálfleik. Liðsmenn Stál-Úlfs sóttu hins veg- ar í sig veðrið í seinni hálfleik og náðu með ótrúlegum hætti að skora þrjú mörk á síðustu andartökum leiksins, þar af tvö mörk í uppbót- artíma. Úrslit leiksins því 3-2 fyr- ir heimamenn. Tap Snæfells/Geisl- ans var því býsna grátlegt en liðið vermir eftir leikinn sjöunda sæti B- riðils með fjögur stig. Næsti leikur þess er á heimavelli í Stykkishólmi gegn Skallagrími, þriðjudaginn 2. júlí nk. hlh Íslandsmótið í holukeppni á Eim- skipsmótaröðinni í golfi fór fram á Hamarsvelli í Borgarnesi um helgina. Þetta er fyrsta mót- ið á mótaröðinni sem Golfklúbb- ur Borgarness heldur en Hamars- völlur var stækkaður í 18 holur árið 2007. Úrslit mótsins urðu þau að í karlaflokki bar sigur úr bítum Guð- mundur Á. Kristjánsson frá Golf- klúbbi Reykjavíkur en hann sigraði andstæðing sinn, Rúnar Arnórsson Golfklúbbnum Keili Hafnarfirði, á 16. holu 3:2. Í kvennaflokki sigr- aði hins vegar Ólafía Þórunn Krist- insdóttir GR Tinnu Jóhannsdóttur GK 2:0 á 17. holu. Hamarsvöllur skartaði sínu feg- ursta á mótinu og munaði ekki síst um að gott veður var alla helgina, sólskin og hæg vestlæg átt. Fram- kvæmd mótsins gekk yfir heildina vel og óskuðu fulltrúar Golfsam- bands Íslands Golfklúbbi Borgar- ness sérstaklega til hamingju með vel unnið verk í mótslok. hlh Á laugardaginn héldu Golfklúbb- urinn Leynir og Norðurál tvö opin golfmót á Garðavelli á Akranesi. Fyrra mótið var Texas scramble keppni með forgjöf þar sem tveir léku saman í liði og stóð mótið yfir frá laugardagsmorgni fram á síðdegi. Sigur úr bítum báru þeir Hannes Marinó Ellertsson og Al- exander Högnason á 65 höggum. Í öðru sæti urðu feðgarnir Ómar Örn Ragnarsson og Jón Örn Ómarsson á 68 höggum og í því þriðja Pétur Pétursson og Auður Kjartansdóttir á 69 höggum. Um kvöldið fór síð- an fram seinni mótið. Leikin var punktakeppni með forgjöf og var ræst út af öllum teigum kl. 20. Leik- ið var í tveimur forgjafarflokkum. Í fyrri flokknum, forgjafarflokki 0 – 10,1 sigraði Birgir A. Birgisson á 36 punktum. Í öðru sæti var Ragn- ar Þór Gunnarsson á 35 punktum og í því þriðja Ingi Fannar Eiríks- son einnig á 35 punktum. Í forgjaf- arflokki 10,2 – 28 varð Valdimar Geirsson efstur á 41 punkti. Í öðru sæti hafnaði Svandís Rögnvalds- dóttir á 39 punktum og í því þriðja Hafsteinn Þórisson á 38 punktum. Alls tóku þátt 137 kylfingar í báðum þessum mótum en vallar- aðstæður voru með besta móti að sögn Guðmundar Sigvaldason- ar framkvæmdastjóra Golfklúbbs- ins Leynis. Hann vildi að lokum fyrir hönd Leynis koma á framfæri þökkum til Norðuráls fyrir stuðn- inginn við mótið og öllum kepp- endum fyrir þátttökuna. hlh Golfspekingar hafa velt því fyrir sér að undan- förnu af hverju ríkjandi Íslandsmeistari kvenna í höggleik í golfi, Val- dís Þóra Jónsdótt- ir GL, hafi ekki tekið þátt í Eimskipsmóta- röðinni það sem af er sumri. Meðal annars var hún ekki með á Ís- landsmótinu í holu- keppni sem fram fór á Hamarsvelli í Borgar- nesi um liðna helgi. Ástæðan fyrir þessu er sú að Valdís Þóra er nú að ljúka námi við Texas State Univer- sity og kemst því ekki til keppni hér á landi fyrr en eftir miðjan júlí. Valdís Þóra hefur á liðnu ári tekið þátt í öflugum golfmótum í Bandaríkjunum og sigraði meðal annars á háskólamóti í USA síðasta haust. Valdís Þóra kveðst í sam- tali við Skessuhorn vera í góðu formi og mun mæta til keppni og gera tilraun til að verja Íslands- meistaratitil sinn í höggleik á Korp- uvelli helgina 25.-28. júlí. mm Víkingar frá Ólafsvík voru óheppn- ir að ná ekki stigi gegn KR, topp- liði Pepsídeildarinnar, þegar liðin mættust í Kaplaskjólinu á sunnu- daginn. Víkingar börðust vel í leiknum og gáfu KR-ingum lít- inn tíma til að athafna sig. Öfugt við aðra leiki Víkingsliðsins í sum- ar voru það þeir sem komust yfir snemma leiks. Á 4. mínútu átti Guðmundur Magnússon gott skot á mark KR-inga eftir hornspyrnu. Boltinn átti viðkomu í Alfreð Má Hjaltalín áður en hann fór í mark- ið og skrifast markið á Alfreð. KR- ingar blésu til stórsóknar og hugð- ust strax jafna metin en Víkingar vörðust vel og voru betra liðið fram að leikhléi án þess þó að skapa sér færi til að bæta við mörkum. Í seinni hálfleiknum bættu KR- ingar sinn leik og pressuðu stíft á gestina þegar á leið. Þeir fengu dæmda vítaspyrnu á 67. mínútu, sem Víkingar voru afar ósáttir við, en stuðningsmannalið gestanna lét mikið í sér heyra á pöllunum í Frostaskólinu. Garry Martin hafði heppnina með sér og skoraði úr vít- inu fyrir KR. Einar hálfvarði spyrn- una en boltinn snérist inn í markið. Sex mínútum síðar skoruðu síðan KR-ingar aftur og reyndist það sig- urmark liðsins. Óskar Örn Hauks- son átti þá þrumuskot á mark Vík- inga sem Einar réði ekki við. Ljóst er að þrátt fyrir þetta enn eitt 1:2 tap geta Víkingar tekið ýmislegt já- kvætt með sér úr leiknum í næsta leik í Pepsídeildinni sem verð- ur á Ólafsvíkurvelli nk. sunnudag. Þá verður Vesturlandsslagur þegar Skagamenn koma í heimsókn. þá Fjölmargir áhorfendur á Ólafsvík- urvelli sl. miðvikudag fengu mik- ið fyrir peninginn þegar Víkingar tóku á móti Fram í 16 - liða úrslitum Borgunarbikarsins. Leikurinn bauð upp á hörkuspennu og ágætis fót- bolta á köflum. Fram hefur verið á mikilli siglingu undanfarið og skor- að talsvert. Víkingar gáfu þeim lítið ráðrúm til þess en þó tókst Almari Ormarssyni að koma gestunum yfir á 29. mínútu. Framarar voru sterk- ari í byrjun seinni hálfleiks og voru þá klaufar að bæta ekki marki við og bæta stöðuna. Fátt markvert gerð- ist síðan fyrr en á 70. mínútu að Tomasz Luba stakk inn fyrir vörn- ina á Fannar Hilmarsson sem klár- aði færið mjög vel, vippaði boltan- um yfir Ögmund í markinu. Fyrsta mark Víkinga í töluverðan tíma og leikurinn orðinn jafn, 1:1. Heima- menn fengu aukið sjálfstraust og sóttu nokkuð stíft að marki gest- anna án þess að fleiri yrðu mörkin í venjulegum leiktíma. Lítið gerðist í framlengingu grípa þurfti því til vítaspyrnukeppni sem var í drama- tískara lagi. Víkingurinn Dam- ir byrjaði á því að misnota víti en það kom ekki að sök þar sem Ein- ar Hjörleifsson vítabaninn í marki Víkinga varði frá Hauki Baldvins- syni. Aðrir skoruðu í spyrnunum fimm og því þurfti bráðabana. Þar brást Alfreð Már Hjaltalín boga- listin en Frammarinn Alan Lowing, skoraði þannig að Frammarar kom- ust naumlega í 8-liða úrslitin með lokatölurnar 5:6. þá/ Ljósm. af. Víkingar naumlega úr leik í Borgunarbikarnum Farid Sato varnarmaður Víkinga í baráttu við sóknarmenn Fram. Grátlegt tap Snæfells/Geislans Alfreð Már Hjaltalín markaskorari Víkings. Víkingar misstu af stigi gegn KR Valdís Þóra mun mæta til keppni á Íslandsmótinu í höggleik Góður árangur á UMÍ í sundi Guðmundur og Ólafía með sigur- launin. Ljósm. Stefán Garðarsson. Reykvíkingar hlutskarpastir á Hamarsvelli Tvö opin golfmót Norðuráls fóru fram á Garðavelli

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.