Skessuhorn - 03.09.2014, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2014
Tveir
sjálfboðaliðshópar
DALIR: Tveir sjálfboðaliðahóp
ar voru að störfum í Dalabyggð
á liðnu sumri í samstarfi sveitar
félagsins og alþjólegu sjálfboða
liðasveitanna SEEDS. Fyrri hóp
urinn vann að ýmsum umhverf
ismálum í Búðardal fyrir hátíðina
„Heim í Búðardal“og á Eiríksstöð
um. Sá seinni endurmerkti göngu
leiðir að Laugum í Sælingsdal.
Þá var einn starfsmaður að störf
um á skrifstofu Dalabyggðar með
stuðningi Vinnumálastofnunar og
vann hann að frekari undirbúningi
verkefnisins „Áfangastaðir í Dala
byggð“. Þetta var meðal þess sem
fram kom í yfirliti Sveins Pálsson
ar sveitarstjóra frá sumrinu á fundi
sveitarstjórnar Dalabyggðar á dög
unum. –þá
Hrapaði í
Helgafelli
HELGAFELLSSVEIT: Mik
il mildi þykir að kona sem hrap
aði fimmtán metra í Helgafelli í
Helgafellssveit skuli einungis hafa
slasast lítilsháttar. Hún var þó með
áverka á höfði og meidd á fæti en
með meðvitund þegar komið var
að henni. Konan, sem er á sjö
tugsaldri, var í allstjórum hópi er
lendra ferðamanna sem gengu á
fjallið í prýðilegu veðri síðdegis á
fimmtudaginn. Þurfti að bera hana
nokkurn spöl í sjúkrabíl sem flutti
hana til aðhlynningar á sjúkrahús í
Reykjavík. Ekki er vitað með vissu
hvernig slysið atvikaðist þar sem
ekki voru sjónarvottar að því.
-mm
Gamla skólahúsið
auglýst til sölu
STYKKISHÓLMUR: Til stend
ur að gamla skólahúsið í Stykkis
hólmi verði selt ásamt húsi Amts
bókasafnsins og byggingarétti á
lóð skólans. Á bæjarstjórnarfundi í
Stykkishólmi 21. ágúst síðastliðinn
var sú tillaga samþykkt að Sturlu
Böðvarssyni bæjarstjóra verði fal
ið að setja upp kynningu á þeim
áformum í auglýsingu þar sem
fram komi að gamli skólinn verði
til sölu ásamt byggingarétti á lóð
skólans. Lóðar og byggingaréttur
verður skýrt afmarkaður í kynn
ingunni og hús Amtsbókasafnsins
verður auglýst til sölu með sama
hætti. –grþ
Engin dagvistun í
heimahúsum
DALIR: Horfur eru á að dag
vistun í heimahúsum í Dalabyggð
leggist af um næstu mánaðamót.
Þetta kom fram á fundi sveitar
stjórnar 26. ágúst síðastliðinn.
Sveinn Pálsson sveitarstjóri seg
ir þetta ekki vera í fyrsta sinn sem
slíkt kemur upp. „Sem betur fer
er svolítið af ungabörnum hérna
en nú virðist framboðið ekki vera
nægilegt til að halda úti dagvistun.
Börnin sem dagmóðirin var með
eru komin á leiksóla og lítil eftir
spurn er því eftir þjónustunni. Það
gæti hins vegar breyst eftir nokkra
mánuði en ekki víst að dagmóðirin
geti beðið eftir því,“ segir Sveinn í
samtali við Skessuhorn. Hann seg
ir sveitarstjórnina ekki hafa komið
augu á nein úrræði enn sem kom
ið er og var honum falið að kanna
eftirspurn eftir þjónustunni meðal
foreldra ungbarna á svæðinu. „Við
erum að reyna að kortleggja hve
nær ungbarnaforeldrum vantar
þessa þjónustu. Málið er í skoð
un og við erum að reyna að finna
lausn á vandanum.“ -grþ
Tekið tillit til at-
hugasemda íbúa
við Heiðarbraut
AKRANES: Á fundi bæjarráðs
Akraness á dögunum var tekið
fyrir erindi er snertir deiliskipu
lag vegna reitar Heiðarbrautar
40, gamla bókasafnshússins. Það
var bréf skipulags og umhverf
isnefndar frá því í lok júlí og at
hugasemdir íbúa við deiliskipu
lagsbreytingu á lóðinni. Einn
ig svar Draupnis lögmannsstofu
fyrir hönd Skarðseyrar ehf. eig
anda hússins. Áformað er að
breyta gamla bókasafnshúsinu í
íbúðarhúsnæði eftir að það gekk
ekki eftir að eigendur fengju að
breyta því í hótel. Skipulags og
umhverfisnefnd leggur til að
tekið verði tillit til athugasemda
nágranna með því að felldur
verði niður fyrirhugaður bygg
ingarhluti suðvestan við núver
andi byggingu og fyrirhugaður
byggingarhluti norðaustan við
núverandi byggingu verði tvær
hæðir í stað þriggja. Þá verði
bílastæði a.m.k jafnmörg og
fjöldi væntanlegra íbúða. Bæjar
ráð vísaði erindinu til afgreiðslu
bæjarstjórnar. –þá
Sjö í bílaveltu í
Norðurárdal
BORGARFJ: Þyrla Land
helgisgæslunnar sótti síðdeg
is á fimmtudaginn þrjá ítalska
ferðamenn sem slösuðust þeg
ar bíll þeirra lenti utan vegar
við bæinn Háreksstaði í Norð
urárdal. Sjö voru í bílnum og
slösuðust allir í óhappinu. Þre
menningarnir sem fluttir voru
með þyrlunni voru lagðir inn á
slysadeild Landspítalans en hin
ir fjórir voru fluttir með sjúkra
bifreiðum á slysavarðstofu í
Reykjavíkur. Að sögn lögregl
unnar í Borgarfirði og Dölum
átti áhappið sér stað á fimmta
tímanum. Ferðamennirnir fóru
á bíl sínum út af þjóðvegi eitt
inn á malarveginn í sunnanverð
um Norðurárdalnum og misstu
stjórn á bílnum með þeim af
leiðingum að hann valt og lenti
úti í skurði. -þá
Hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur
á fyrri helmingi ársins 2014 nam
3,8 milljörðum króna en rekstr
arhagnaður var 7,5 milljarðar fyr
ir afskriftir, skatta og fjármagns
liði (ebita). Eigið fé OR nemur nú
83,5 milljörðum og hefur meira en
tvöfaldast frá árslokum 2009. Í til
kynningu frá fyrirtækinu segir að
bætta afkomu Orkuveitunnar und
anfarin ár megi ekki síst rekja til
þess að tekist hafi að lækka útgjöld
verulega að raungildi meðan tekjur
hafa vaxið. Frá 2010 hafa tekjur á
fyrri hluta árs vaxið um u.þ.b. 40%.
Tveir áfangar við Hellisheiðar
virkjun hafa verið teknir í notkun
á þessu tímabili.
„Okkur hefur gengið prýði
lega að ná tökum á rekstri Orku
veitunnar og nú sjáum við árang
ur þess í traustari efnahag fyrirtæk
isins. Eiginfjárhlutfallið, sem nú er
um 30%, hefur vaxið ört eftir því
sem batnandi afkoma hefur gert
okkur fært að borga niður skuld
ir. Þar er þó talsvert verk óunnið
og við verðum að halda vöku okk
ar. Tímabil „Plansins“ er nú liðlega
hálfnað og árangurinn er umfram
markmið. Starfsfólk og stjórnend
ur Orkuveitunnar munu hér eft
ir sem hingað til leggja allt kapp á
að missa ekki sjónar á markmiðum
Plansins um leið og áhersla er lögð
á að viðskiptavinir njóti traustrar
þjónustu veitnanna,“ segir Bjarni
Bjarnason forstjóri Orkuveitu
Reykjavíkur en Planið sem hann
kallar er áætlun sem gerð var á sín
um tíma til að ná tökum á fjármál
um OR. þá
Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðv
arssonar og borgfirsku menning
arverðlaunin voru afhent í Reyk
holtskirkju síðastliðinn laugar
dag. Minningarsjóður Guðmund
ar Böðvarssonar skálds og bónda á
Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurð
ardóttur konu hans standa annað
hvert ár fyrir athöfn þar sem þessi
verðlaun eru veitt. Að þessu sinni
var það karlakórinn Söngbræð
ur sem hlaut borgfirsku menn
ingarverðlaunin en ljóðaverðlaun
in komu í hlut Jóhanns Hjálmars
sonar.
Bjarni Guðráðsson, stjórnar
maður í minningarsjóðnum, af
henti borgfirsku menningarverð
launin. Rakti hann í stuttu máli
sögu Söngbræðra og vék að því
menningarhlutverki sem kórinn
hafði gegnt í Borgarfirði og víð
ar, en með kórnum syngja með
al annarra Dalamenn og Stranda
menn. Viðar Guðmundsson hef
ur stjórnað Söngbræðrum síðustu
árin.
Böðvar Guðmundsson afhenti
ljóðaverðlaun minningarsjóðs
föður síns og móður sem Jóhann
Hjálmarsson hlaut að þessu sinni.
Þetta er í níunda sinn sem verð
launin úr minningarsjóðnum eru
veitt, en auk verðlaunaveitinganna
var tónlist og ljóðalestur á dagskrá
samkomunnar í Reykholtskirkju.
Aðilar að minningarsjóðnum eru
Búnaðarsamtök Vesturlands, Ung
mennasamband Borgarfjarðar,
Samband borgfirskra kvenna, Rit
höfundasamband Íslands og af
komendur Guðmundar og Ingi
bjargar á Kirkjubóli.
þá
Bjarni Bjarnason forstjóri OR.
Orkuveitan rekin með tæplega
fjögurra milljarða hagnaði
Karlakórinn Söngbræður hlýtur að þessu sinni borgfirsku menningarverðlaunin.
Hér er kórinn á tónleikum til stuðnings Krabbameinsfélaginu í Borgarneskirkju sl.
vor. Ljósm. mm.
Söngbræður hlutu borgfirsku
menningarverðlaunin