Skessuhorn


Skessuhorn - 10.09.2014, Side 6

Skessuhorn - 10.09.2014, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014 Vímuakstur og hraðaakstrar AKRANES: Lögreglan á Akranesi stöðvaði í vikunni ökumann sem var í mjög annarlegu ástandi. Í ljós kom að það stafaði af neyslu fjölda efna. Sjö ökumenn voru stöðvaðir fyrir of hrað- an akstur og þá voru skrán- ingarnúmer klippt af fjór- um bifreiðum. Það var sök- um þess að eigendur þeirra höfðu trassað að færa þær til endurskoðunar, að sögn lög- reglu. –þá Sofnaði undir stýri LBD: Síðastliðinn laugar- dag gerðist það að ökumað- ur jeppabifreiðar á ferð um Lundarreykjadalsveg sofn- aði með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bif- reið sinni og fór útaf vegin- um. Fór bifreiðin eina veltu og endaði á hjólunum. Öku- maður var einn í bifreiðinni og var honum ekið í einka- bifreið á Heilsugæsluna í Borgarnesi þar sem gert var að sárum hans, sem reyndust þó minniháttar. Bifreiðin er mikið skemmd að sögn lög- reglu. –þá Silicor tækni- frumkvöðull HVALFJ: World Economic Forum hefur útnefnt fyrir- tækið Silicor Materials Inc. sem einn af tæknifrumkvöðl- um 2015. World Economic Forum er alþjóðlegt ráð sem útnefnir á hverju ári nokk- ur fyrirtæki sem að þeirra mati eru að skara framúr í tækniframförum. Að þessu sinni var Silicor Materials Inc. fyrir valinu en fyrirtæk- ið hyggst hefja framleiðslu á sólarkísil á Grundartanga. Samtals voru 24 fyrirtæki heiðruð með nafnbótinni „2015 Technology Pioneer“. Framleiðsla Silicor Materials Inc. í tilvonandi verksmiðju á Grundartanga mun byggja á nýrri framleiðsluaðferð sem notast aðeins við einn þriðja af þeirri orku sem fram að þessu hefur þurft til að fram- leiða hefðbundinn sólarkísil. Það er gert án þess að draga úr gæðum efnisins. Forsvars- menn Silicor Materials fund- uðu með sveitarstjórn Hval- fjarðarsveitar fyrir skömmu og er von er á þeim aftur til landsins á næstu dögum. –jsb Brottfall meira á landsbyggðinni LANDIÐ: Fleiri ljúka námi í framhaldsskólum á höfuð- borgarsvæðinu en á lands- byggðinni. Í tölum sem Hagstofan birti nýlega kem- ur fram að 49% þeirra ný- nema sem hófu nám í skól- um á höfuðborgarsvæð- inu haustið 2004 höfðu lok- ið námi árið 2008 en 37% þeirra sem hófu nám í skól- um utan höfuðborgarsvæð- isins. Fjórðungur nýnema á höfuðborgarsvæðinu hafði hætt námi án þess að útskrif- ast en tæpur þriðjungur ný- nema í skólum utan höfuð- borgarsvæðisins. –mm Kristín Halla sæmd starfsmerki GRUNDARFJ: Starfs- merki voru veitt á þingi Frjálsíþróttasambands Ís- lands sem fram fór á Ak- ureyri um helgina. Með- al þeirra sem fengu starfs- merkið var Kristín Halla Haraldsdóttir þjálfari hjá Ungmennafélagi Grundar- fjarðar. Kristín hefur þjálf- að frjálsar íþróttir hjá fé- laginu í 15 ár og var sæmd eirmerki FRÍ. „Kristín Halla hefur verið þrautseig og ötul í sínu þjálfarastarfi samfleytt á þessu tímabili,“ segir Björg Ágústsdótt- ir frjálsíþróttafrömuður í Grundarfirði og stjórnar- maður í FRÍ. –þá Ein sala á dag VESTURLAND: Á Vest- urlandi var 32 kaupsamn- ingum um húsnæði þing- lýst í ágústmánuði. Er það mjög svipuð tala og undan- farna mánuði. Þar af voru 13 samningar um eign- ir í fjölbýli, átta samning- ar um eignir í sérbýli og ellefu samningar um ann- ars konar eignir. Heild- arveltan var 521 milljón króna í þessum viðskiptum og meðalupphæð á samn- ing 16,3 milljónir króna. Af þessum 32 samningum voru ellefu eignir á Akra- nesi. Þar af voru átta samn- ingar um eignir í fjölbýli, einn um eign í sérbýli og tveir samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 158 milljónir króna og meðalupphæð á samning 14,4 milljónir króna. –mm Slökkviliðið þarf að hafa búnað til að ráða við störf í öllum byggingum Á dögunum var til umfjöllun- ar hjá skipulags- og byggingar- nefnd Stykkishólms áform um að byggja fjórðu og fimmtu hæð- ina ofan á nýrri byggingu Hót- els Stykkishólms og einnig eina hæð ofan á eldri byggingu hótels- ins. Slökkviliðsstjórinn í Stykkis- hólmi situr fundi nefndarinnar og gerði hann grein fyrir því á fundin- um að slökkviliðið hefði ekki bún- að til að fást við björgun og slökkvi- starf í svo háu og stóru húsi eins og plön væri um með stækkun hótels- ins. Þetta yrðu menn að vera með- vitaðir um og annaðhvort yrði Stykkishólmsbær að tryggja bætt- an búnað slökkviliðsins eða for- svarsmenn hótelsins að breyta út- færslu varðandi stækkun þess. „Það var ekki um annað að ræða en gera grein fyrir þessu þannig að menn stæðu frammi fyrir sannleikan- um,“ sagði Guðmundur Kristins- son slökkviliðsstjóri í Stykkishólmi þegar blaðamaður Skessuhorns átti við hann tal í síðustu viku. Guðmundur tók við starfi slökkviliðsstjóra 1. desember sl. af Þorbergi Bæringssyni, en hann hef- ur verið í slökkviliðinu í um 30 ár. Guðmundur er verkstjóri á véla- verkstæði Skipavíkur og er slökkvi- liðsstjórastarfið aukastarf eins og hjá forverum hans. Guðmundur segir að eldvarnaeftirlit í bænum og á starfssvæði Slökkviliðs Stykkis- hólms, sem einnig nær yfir Helga- fellssveit, sé keypt af fyrirtækinu Eldstoðum. „Minni lið eins og okk- ar út um landið hafa ekki fjármagn nema í takmarkað starfshlutfall slökkviliðsstjóra. Við erum þokka- lega tækjum búin og njótum vel- vilja stjórnenda sveitarfélagsins og fyrirtækja á svæðinu. Sem betur fer höfum við verið heppin hér að ekki hefur komið til stórra eldsvoða síð- ustu árin. Við verðum hins vegar að vera á verði gagnvart því að við ráð- um við þær stærðir bygginga sem eru á svæðinu,“ segir Guðmundur Kristinsson slökkviliðsstjóri. þá Guðmundur Kristinsson slökkviliðsstjóri í Stykkishólmi. Glæsilegur sparkvöllur í Munaðarnesi Rekstrarfélag Orlofsbúða í Mun- aðarnesi, ROM, er aðildarfélag BSRB sem rekur sumardvalarstað- inn í Munaðarnesi. Rekstrarfélag- ið lét í sumar gera nýjan sparkvöll á staðnum. Völlurinn er 18 x 33 metrar eða um 600m2 að stærð. Hann er fyrst og fremst ætlaður dvalargestum í húsum félaganna í Munaðarnesi. Bygging vallarinns var boðin út og átti Girðir ehf. lægsta boð í vinnu við allt tréverk og frágang lóðar. Metatron sá um lagningu gerfigrass en Dýradal- ur ehf um gröft og malarfyllingu. Óhætt er að segja að nýi völlur- inn sé staðarprýði þar sem hann er skammt frá þjónustumiðstöð- inni og veitingastaðnum í Munað- arnesi. mm/ Ljósm. óh

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.