Skessuhorn - 10.09.2014, Page 15
Árangurinn má þakka góðri liðsheild
Gunnlaugur Jónsson tók við Skaga-
mönnum síðasta haust eftir að liðið
hafi beðið afhroð á síðasta tímabili
í efstu deild. Þessum fyrrum leik-
manni ÍA hefur nú tekist að byggja
nýtt lið upp úr því gamla og náði á
síðasta fimmtudag að koma Skaga-
mönnum í efstu deild á ný. Að sögn
Gunnlaugs var markmiðið alltaf að
koma liðinu í efstu deild en fyrst og
fremst hafi stefnan verið sett á að
skapa öfluga liðsheild. „Tilfinning-
in að hafa náð þessu setta markmiði
er mjög góð. Það er ánægjulegt að
hafa náð að klára þetta þegar enn
eru tveir leikir eftir af tímabilinu.
Þrátt fyrir lélegt gengi í fyrra vissi
ég hvað bjó í liðinu þegar ég tók
við. Þarna er kjarni margra góðra
leikmanna sem áttu einfaldlega
slæmt tímabil í fyrra. Ég kom með
þá áherslu að skapa öfluga liðsheild.
Við styrktum okkur í vetur og feng-
um til okkar góða leikmenn og svo
hafa ungir uppaldnir leikmenn ÍA
verið að stíga upp. Heilt yfir er
ég virkilega ánægður með spila-
mennsku liðsins í sumar. Við lent-
um tvisvar í áföllum en náðum í
báðum tilfellum að vinna úr þeim.
Þá er ég að tala um byrjun tímabils-
ins sem var ekki góð en við stigum
upp og í júní unnum fimm sigra í
röð. Þá fengum við á okkur annan
skell á móti KV á heimavelli og í
kjölfarið fylgdu þrjú töp í röð. Þá
sýndi liðið mikinn karakter og við
náðum að snúa við blaðinu og hefur
leiðin legið upp síðan þá. Við leggj-
um ekki upp með að spila til jafnt-
eflis og höfum náð að vinna marga
leiki sem stefndu í jafntefli. Það
sýnir baráttuna í liðinu og þessu er
sérstaklega að þakka liðsheildinni
sem við höfum náð að skapa.“
Stefnum á að halda
okkur í efstu deild
Gunnlaugur segir að það hafi vant-
að stöðugleika í liðið þegar hann tók
við, sérstaklega í varnarleik liðsins.
Unnið hafi verið í að bæta liðið en
þeirri vinnu sé þó hvergi nærri lokið
enda næstu verkefni mjög krefjandi.
„Það er ekkert leyndarmál að það
þurfti að bæta varnarleikinn frá því á
síðasta tímabili. Það markmið hlýt-
ur að hafa náðst þar sem við höfum
haldið hreinu í níu leikjum í sumar.
Næsta markmið er svo að ná stöðug-
leika í efstu deild og halda liðinu þar.
Stóra framtíðar markmiðið er svo
að mynda kjarna sem getur leitt lið-
ið í efstu deild á næstu árum. Pepsí-
deildin er erfiðari en fyrsta deild-
in og það eru fyrst og fremst leik-
menn sem verða að taka næsta skref
og bæta sinn leik. ÍA á að vera í efstu
deild að mínu mati. Umgjörðin er
til staðar en þá þurfa allir að vera
tilbúnir að takast á við þetta erfiða
verkefni. Tímabilið er þó ekki búið
og við leggjum ekki árar í bát þó að
sæti í efstu deild sé tryggt. Við horf-
um nú á að ná efsta sætinu í deild-
inni af Leikni og skora ég á alla bæj-
arbúa Akraness að fara á völlinn og
standa á bak við liðið fyrir komandi
verkefni,“ sagði Gunnlaugur í sam-
tali við Skessuhorn.
jsb
Gunnlaugur Jónsson þjálfari Skagamanna.
Skagamenn komnir í Pepsí-deildina
Skagamenn tryggðu sér sæti í Pepsí-deild karla á næstu leiktíð
með 0:2 sigri á KV þegar liðin mættust á gervigrasinu í Laug-
ardalnum síðasta fimmtudag. Fyrir leikinn var ljóst að bæði lið-
in yrðu hungruð í þrjú stig enda í mikilli baráttu á sitthvorum
enda stigatöflunnar. Hungrið virtist heldur meira hjá þeim gul-
klæddu og sóttu þeir mun meira á fyrstu tuttugu mínútunum
leiksins. KV-menn freistuðu þess að beita skyndisóknum en
góð vörn Skagamanna braut þær ávallt á bak aftur. Á 35. mínútu
fengu Skagamenn aukaspyrnu á vítateigslínunni. Jón Vilhelm
Ákason tók sér svo stöðu og eins og svo oft áður skaut hann
boltanum beint í markið og kom sínum mönnum yfir. Innan
við tveimur mínútum síðar jók Garðar Bergmann Gunnlaugs-
son forystu Skagamanna í tvö mörk þegar hann skoraði með
flugskalla eftir laglega fyrirgjöf frá Darren Lough.
Síðari hálfleikur var langt frá því að vera eins líflegur og
sá fyrri. Skagamenn héldu áfram að halda boltanum meira
en sóknir þeirra voru þó ekki eins hættulegar í flestu tilfell-
um. Undir lok leiks áttu Skagamenn þónokkur góð færi og var
gamli markahrókurinn Hjörtur Júlíus Hjartarson nálægt því að
skora í tvígang en í bæði skiptin sá markvörður KV við Hirti.
Að lokum flautaði Sigurður Óli Þorleifsson dómari leikinn af
og sendi Skagamenn um leið upp í efstu deild á ný við mik-
inn fögnuð stuðningsmanna Skagaliðsins sem höfðu fjölmennt
í Laugardalinn. Lærisveinar Gunnlaugs Jónssonar eru því
komnir í deild þeirra bestu eftir að hafa dvalið aðeins eitt tíma-
bil í fyrstu deild. Engu breyta úrslit úr þeim tveimur leikjum
sem eftir eru af tímabilinu. Þess má til gamans geta að þetta er
í fimmta skipti sem Hjörtur Júlíus spilar með liði í fyrstu deild
sem kemst upp í úrvalsdeild. Skessuhorn óskar Skagamönnum
innilega til hamingju með árangurinn!
Næsti leikur ÍA liðsins er gegn Haukum laugardaginn 13.
september klukkan 14 á Akranesvelli.
jsb
Áfram Skagamenn!