Skessuhorn


Skessuhorn - 10.09.2014, Qupperneq 24

Skessuhorn - 10.09.2014, Qupperneq 24
24 MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 2014 Tómas Freyr Kristjánsson Sumarliði Ásgeirsson Klingjandinn eftirminnilegur í storknandi hrauninu Ferð tveggja fréttaritara Skessuhorns að eldstöðvunum í Holuhrauni Þriðjudaginn 2. september síðast- liðinn var ákveðið að við undirrit- aðir félagarnir færum upp að gos- stöðvunum við Holuhraun á há- lendi Íslands. Báðir erum við frétta- ritarar Skessuhorns á Snæfellsnesi og fengum þar af leiðandi aðgang að svæðinu til jafns við aðra fjöl- miðlamenn og að sjálfsögðu vís- indamennina. Líkt og gilti um aðra vorum við þarna á eigin ábyrgð en svæðið er alls ekki öruggt yfirferð- ar og ekki að vita hvað næst kemur í atburðarásinni. Til að mynda var okkur ráðlagt að hafa bílinn alltaf í gangi og fara ekki lengra en fimm mínútna hlaupatíma frá honum. Miðvikudaginn 3. september var vaknað klukkan fimm um morgun- inn í bústað inni í Bárðardal þang- að sem við ókum kvöldið áður. Þar settum við upp bækistöðvar. Lagt var af stað hálftíma síðar og kom- ið að gosinu klukkan 09:30. Eina leiðin sem opin var liggur upp hjá Möðrudal og upp Krepputungu og þaðan að Öskju. Þetta er seinfarin leið og því vorum við um það bil fjórar klukkustundir hvora leið. Þegar að gosi var komið var sjón- arspilið stórfenglegt. Fimm eldspú- andi gígar með tilheyrandi látum og vellandi hrauntunga fikraði sig í austurátt. Klingjandinn í storkn- andi hrauninu var eftirminnilegur. Ekki síður að hreinlega sjá landið gliðna þegar sprungur myndast í sandinum. Hafist var handa við að mynda herlegheitin og var einungis stopp- að í skamma stund til að grilla í há- deginu. Seinnipartinn varð svo vart við gosóróa undir Bárðarbungu og svæðið því rýmt. Öllum var vís- að upp í Drekagil sem er öruggur staður ef það skyldi fara að gjósa undir jökli. Þar var beðið eftir að opnað yrði aftur en það kom ekki í ljós fyrr en klukkan níu um kvöld- ið að ekki yrði opnað aftur þann daginn. Við héldum því niður af hálendinu og vorum komnir eft- ir miðnætti í bústaðinn. Örþreytt- ir lögðumst við til hvílu og vorum töluvert hófsamari þegar við stillt- um vekjaraklukkuna næsta dag. Eftir staðgóðan morgunverð á fimmtudagsmorgni var hald- ið í Reykjahlíð í sund. Eftir baðið fréttum við að búið væri að opna svæðið aftur og því biðum við ekki boðanna heldur skelltum okkur aftur upp að eldgosinu. Þar vor- um við komnir um fjögurleytið og vorum því á afbragðstíma til að ná ljósaskiptunum. Þarna vorum við til klukkan 21 um kvöldið en þá var orðið of dimmt til myndatöku. Það var varla að við tímdum að fara frá þessu margbrotna en þó ógnarkraftmikla verki náttúr- unnar, en við þurftum samt frá að hverfa enda vorum við með það í undirmeðvitundinni hvað maður- inn má sín lítils gagnvart þessum gríðarlegu náttúruöflum. Við vor- um örþreyttir en afskaplega sælir þegar við komum aftur til byggða því það eru ákveðin forréttindi að fá að upplifa svo mikilfenglegan atburð eins og þetta eldgos er, þó að við vonum að þessu fari nú að ljúka. Og þá án þess að það komi til enn meiri náttúruhamfara eins og hæglega getur gerst. Meðfylgj- andi myndir tókum við í ferðinni og sendum blaðinu til að lesendur fái að njóta. Við leyfum myndun- um að tala sínu máli. Sumarliði Ásgeirsson og Tómas Freyr Kristjánsson, frétta- ritarar Skessuhorns.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.