Skessuhorn


Skessuhorn - 03.12.2014, Síða 2

Skessuhorn - 03.12.2014, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014 Stykkishólmur áfram – Skaga- menn næst ÚTSVAR: Lið Stykkis- hólms hafði betur gegn liði Ísafjarðarbæjar í Útsvari föstudagskvöldið 21. nóvem- ber, með 56 stigum gegn 40. Keppnin var jöfn og spenn- andi framan af en lið Stykk- ishólms sigldi fram úr í flok- kaspurningunum og hélt forystunni til enda. Í liði Stykkishólms eru Anna Mel- steð, Magnús A Sigurðsson og Róbert Arnar Stefánsson. Þetta er í fyrsta sinn Stykk- ishólmur keppir í Útsvari og stimplaði sig inn með sigri gegn Ísafjarðarbæ sem oft hefur staðið sig vel í keppn- inni. Stykkishólmur er ann- að liðið af Vesturlandi sem kemst áfram í 16-liða úrslit. Það gerði einnig lið Borgar- byggðar fyrr í haust. Þá er aðeins Akranes Vesturlands- liða eftir að keppa í fyrstu umferð. Sú viðureign verð- ur næstkomandi föstudag, 5. desember, þegar Skagamenn mæta Seltjarnarnesi. -þá Golfmótið er í júlí AKRANES: Í frétt í síðasta blaði um Íslandsmót í högg- leik í golfi sem fram fer á Garðavelli á Akranesi næsta sumar, var röng dagsetn- ing á mótinu. Mótið verð- ur 23.-25. júlí en ekki í júní eins og missagt var í frétt- inni. Beðist er velvirðing- ar á þessum mistökum um leið og það er tilgreint að næsta sumar verða ellefu ár frá því að seinast fór fram á Garðavelli stærsta golfmót- ið sem Íslandsmótið í högg- leik er. Það var sumarið 2004 en mótið næsta sumar verð- ur haldið í tilefni 50 ára af- mælis Golfklúbbsins Leynis eins og fram kom í umræddri frétt. -þá Aðventusamkomur og aðventustundir eru haldnar víða þessa dagana, einkum í kirkjunum og á leikskólunum. Vegna veðurs var nokkrum aðventusamkom- um frestað, sem vera áttu fyrsta sunnu- dag í aðventu. Fólki er bent á að fylgj- ast með tilkynningum um breytta tímasetningu þeirra. Næstu dagana er spáð umhleypingum og yfirleitt fremur svölu veðri. Áttirnar sveiflast frá sunnan og suðvestan yfir í norðvestlægar- og norðanáttir. Sunn- anáttunum fylgja rigning, slydda eða él á sunnan- og vestanverðu landinu og þá uppstyttur fyrir norðan og aust- an og öfugt í norðanáttunum. Þessum upphleypingum fylgir að hitinn sveifl- ast frá tíu gráðu frosti upp í álíka hita- tölur. Á laugardag er spáð suðvestan éljagangi, en léttir til NA- og A-lands. Frost víða 0 til 5 stig. Á sunnudag er út- lit fyrir norðvestan- eða vestanátt með éljum. Kalt í veðri og áfram verður svalt eftir helgi. Í síðustu viku var spurt á vef Skessu- horns: „Er óskað mjúkra eða harðra pakka?“ Flestir svarenda viðhafa eng- ar óskir, eða 45%, „bæði“ völdu 25,74%, „harðra pakka“ 16,34% og „mjúkra“ 12,87%. Í þessari viku er spurt: Er nægjanlega spornað við fátækt í landinu? Í næstu viku fara jólasveinar að búa sig undir annríkið sem framundan er. Vest- lenskir jólasveinar eru þar engin und- antekning. Skessuhorn sendir þeim hlýjar kveðjur og stuðning um vel- gengni. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar ÍSLENSK HÖNNUN Í JÓLAPAKKANN MINN V ö r u l í n a n F j ö l s k y l d a n m í n . Þ ý s k g æ ð a v a r a á g ó ð u v e r ð i . H ö n n u ð a f I n g i b j ö r g u H ö n n u o g D a g n ý j u K r i s t j á n s d ó t t u r . LIVING ICELAND www.livingiceland.is SÖLUSTAÐ IR : @home S t i l l h o l t i 1 6 - 1 8 , A k r a n e s i L andnámsse t u r Í s l a n d s B r á k a r b r a u t 1 3 - 1 5 , B o r g a r n e s i Gu l l a u g a H a f n a r s t r æ t i 4 , Í s a f i r ð i G j a f a k o r t G l ö s S e r v í e t t u r Pétur Jóhanns- son í Ólafsvík læt- ur senn af störf- um fyrir VÍS sök- um aldurs. Tek- ur Jóhann son- ur hans við kefl- inu í Snæfellsbæ 1. mars á næsta ári. „Óverulegar breytingar verða á starfseminni sem áfram verður til húsa að Ólafsbraut 34 og af- greiðslutími frá 8:30-16:30 eftir sem áður,“ segir í tilkynningu frá VÍS. „Það er ánægjulegt að Jóhann hafi verið reiðubúinn að feta í fót- spor föður síns. Hann hefur góðan grunn til að gegna þessu hlutverki og við hlökkum til samstarfsins. Um leið þökkum við Pétri kær- lega fyrir vel unnin störf undan- farin 16 ár og óskum honum vel- farnaðar,“ segir Jón Gunnlaugs- son umdæmisstjóri VÍS á Vestur- landi. „Ég hef fengið nasaþefinn af tryggingastarfseminni hjá pabba. Stefnan er að halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið og reyna að gera enn betur,“ segir Jóhann glaðbeittur og hlakkar til að þjóna íbúum Snæfellsbæjar fyr- ir hönd VÍS á nýju ári. -fréttatilkynning Í fjárlagafrumvarpinu eins og það lítur út fyrir aðra umræðu á Alþingi er bætt við peningum í ýmsa mála- flokka. Þar á meðal 55 milljónum til Landbúnaðarháskólans á Hvann- eyri sem eyrnamerkt er rannsókna- starfi. Sú fjárhæð er til viðbótar 17,9 milljónum í aukið rekstrarframlag til skólans sem áður var fyrir í frum- varpinu. „Þetta eru mjög ánægjuleg tíðindi og vonandi marka þau upp- hafið að því að Landbúnaðarhá- skólinn er í sókn að nýju og byggt verði á þeim góða grunni sem fyr- ir er hjá skólanum. Mér finnst þessi ákvörðun sýna að menn ætli að standa vörð um Hvanneyri og vekur vonandi áhuga fólks fyrir að sækja um rektorsstöðuna sem aug- lýst var fyrir skömmu,“ segir Björk Bjarki Þorsteinsson sveitarstjórn- armaður í Borgarbyggð. Bjarki er fulltrúi sveitarfélagsins í hópi sem hefur látið sig varða málefni Land- búnaðarháskólans, en að þeim hópi koma ýmsir hagsmunaaðilar svo sem Bændasamtökin í landinu. Björn Bjarki segist mjög ánægð- ur með þá samstöðu sem ríkt hef- ur meðal aðila í héraði og fleiri, þar á meðal þingmanna kjördæm- isins, um málefni Landbúnaðarhá- skólans. Hún hafi greinilega skil- að árangri. Hann segir vonandi að augu ráðamanna þjóðarinnar hafi líka að opnast fyrir því að efla skól- ann frekar, meðal annars með sölu jarða og eigna sem skólinn hefur ekki lengur þörf fyrir. „Við bent- um á það sem mögulega leið og nú þegar menn eru að ræða um sölu eigna hjá Ríkisútvarpinu og fleirum úr eignasafni ríkisins, þá finnst okk- ur koma til greina sala eigna Land- búnaðarháskólans sem hann hefur ekki þörf fyrir og ber kostnað af í dag,“ segir Björn Bjarki. Fagna auknu fjármagni Á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar sl. mánudag var svohljóð- andi ályktun samþykkt: „Sveitar- stjórn Borgarbyggðar lýsir yfir mikilli ánægju með þær tillögur um aukin fjárframlög til Landbún- aðarháskóla Íslands af hálfu ríkis- valdsins sem kynntar hafa verið. Mikilvægt er að tryggja rekstrar- grundvöll skólans og efla enn frek- ar faglegt starf hans sem átt hef- ur undir högg að sækja vegna fjár- skorts undanfarin ár. Landbúnað- arháskólinn er mikilvæg mennta- stofnun fyrir landið allt en ekki síð- ur mikilvægur samfélaginu í Borg- arbyggð þar sem fjöldi fólks býr og starfar á Hvanneyri þar sem að skólinn er og hefur verið kjöl- festan í búsetunni. Sveitarstjórn Borgarbyggðar lítur á þessa aukn- ingu fjárframlaga sem mikilvægan áfanga í að verja Landbúnaðarhá- skólann sem sjálfstæða mennta- stofnun og fagnar því sérstaklega að stjórnvöld hafi sýnt málefnum Landbúnaðarháskólans skilning við núverandi aðstæður. Samstaða heimamanna, Bændasamtaka Ís- lands og þingmanna kjördæmisins hefur verið til mikillar fyrirmyndar í þessu máli og mun vara áfram til eflingar skóla- og rannsóknarstarfs á Hvanneyri. Það er von okkar að hækkun á fjárveitingum til skólans verði til þess að öflugir einstakling- ar sækist eftir starfi rektors skólans en það starf er laust til umsóknar um þessar mundir.“ þá Verulegar breytingar eru fyrir- hugaðar í yfirstjórn Borgarbyggð- ar. Spara þarf í rekstri sveitarsjóðs m.a. til að uppfylla lagaskyldur um samanlagða jákvæða rekstr- arafkomu sveitarsjóðs á þriggja ára tímabili. Meðal aðgerða sem ákveðið hefur verið að ráðast í er að störfum sviðsstjóra verð- ur fækkað, uppsagnir verða inn- an ráðhúss, tilfærslur á störfum og víðtæk endurskipulagning. Að sögn Kolfinnu Jóhannesdóttur sveitarstjóra hefur verið rætt við starfsfólk til að boða þær breyt- ingar sem fyrirhugaðar eru. Engar uppsagnir starfsfólks voru um ný- liðin mánaðamót en boðað að þær verði í lok þessa mánaðar. Breyt- ingar sem farið verður í fela m.a. í sér að sviðsstjórum verður fækkað úr fjórum í tvo, ráðnir verði nýir sviðsstjórar yfir annarsvegar um- hverfis- og skipulagssvið og hins- vegar stjórnsýslu- og fjölskyldu- svið. Auglýst verður í bæði störf- in. Þá er einnig um að ræða end- urskipulagningu og tilfærslur á verkefnum til að auka skilvirkni starfa. Megináherslan er að ná fram markmiði um betri nýtingu fjármuna. Ljóst er að a.m.k. fjórir starfsmenn í ráðhúsi sveitarfélags- ins missa vinnuna og einhverjir færast í önnur verkefni. Í bókun byggðarráðs frá fundi þess í síðustu viku segir að sveitar- stjóri hafi kynnt tillögur Garðars Jónssonar hjá R3 Ráðgjöf um end- urskoðun á stjórnskipulagi Borg- arbyggðar þar sem gert er ráð fyrir aukinni hagræðingu og skilvirkni. Tillaga var gerð um breytingar á störfum með umbótum á ábyrgð og verkaskiptingu starfsmanna. Byggðarráð samþykkti tillögurn- ar og fól Kolfinnu Jóhannesdóttur sveitarstjóra að framfylgja þeim. Sveitarstjóra var jafnframt falið að boða til aukafundar í sveitarstjórn og fór hann fram á mánudaginn. Þar var afgreidd tillaga um endur- skoðun á stjórnskipulagi. mm Breytingar hjá VÍS í Snæfellsbæ Jóhann Pétursson. Gert ráð fyrir 55 milljóna króna viðbót til LbhÍ á fjárlögum Stefnt að sparnaði í yfirstjórn Borgarbyggðar

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.