Skessuhorn


Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014 Skipulagsverðlaun veitt svæðisskipulagi Snæfellsness Svæðisskipulag Snæfellsness „Andi Snæfellsness - auðlind til sókn- ar“ fékk í lok nóvember Skipulags- verðlaunin 2014. Það var stoltur og glaður hópur frá Snæfellsnesi sem kom saman í Ráðhúsi Reykja- víkur, til að taka við þessari viður- kenningu ásamt ráðgjafarfyrirtæk- inu Alta, sem veitti faglega ráðgjöf við skipulagsgerðina. Verðlaunin eru veitt á tveggja ára fresti og í ár var dómnefnd skipuð af Skipulags- fræðingafélagi Íslands, Arkitekta- félagi Íslands, Tæknifræðingafélagi Íslands, Verkfræðingafélagi Íslands, Félagi íslenskra landslagsarkitekta, Ferðamálastofu og Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga. Í ár var sérstök áhersla á skipulagsgerð í tengslum við ferðaþjónustu og samþættingu hennar við það byggða umhverfi og náttúru sem fyrir er. Einkum var skoðað hvernig faglega unnið skipu- lag gæti styrkt staðaranda og sam- félög, til hagsbóta fyrir íbúa, ferða- menn og umhverfið. Formlegir þátttakendur í þess- ari vinnu hafa verið sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi; Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarð- arbær, Helgafellssveit, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær, auk samstarfs- aðila; Ferðamálasamtök Snæfells- ness, Snæfell - félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi, Búnaðarfélög Eyrar- sveitar, Staðarsveitar og Eyja- og Miklaholtshrepps auk Starfsmanna- félags Dala- og Snæfellsnessýslu, með aðstoð ráðgjafarfyrirtækisins Alta. „Þetta er mjög mikill heið- ur, ekki síst vegna þess að umsögn dómnefndar var sérlega lofsamleg. Við erum því í skýjunum, bæði við hjá Alta og hinn breiði hópur Snæ- fellinga, sveitarfélögin og samstarfs- aðilar sem að þessu standa,“ segir Björg Ágústsdóttir hjá Alta. Í umsögn dómnefndar segir m.a.: „Að mati dómnefndar er svæðis- skipulagið afar vel unnið, mun nýt- ast vel til aðalskipulagsgerðar fyr- ir sveitarfélögin á svæðinu og er góð fyrirmynd fyrir önnur sveitar- félög. Vel er að staðið að greining- um á svæðinu sem og aðgerðaráætl- un til framtíðar. [...] Skipulagsverk- efnið felur jafnframt í sér nýbreytni við skipulagsgerð hvað varðar sam- vinnu sveitarfélaga á svæðisvísu við fulltrúa úr atvinnulífinu og íbúa, en þessir aðilar unnu sem einn hópur að svæðisskipulaginu. Ennfremur er svæðisskipulagsgerðin hluti af und- irbúningi og þróun Svæðisgarðsins Snæfellsness, sem er frumkvöðla- starf á Íslandi hvað varðar sam- vinnu um atvinnu- og byggðaþróun á svæðisvísu.“ Setja m.a. fram snæfellskt ferðalag Í Svæðisskipulagi Snæfellsness er leitað leiða til að styrkja ímynd svæð- isins og auka fjölbreytni í atvinnulífi og mannlífi. Þar er m.a. sett fram stefna um snæfellskt ferðalag. Skil- greind eru fjölmörg markmið og leiðir að þeim sem ætlað er að stuðla að því að ferðalangar á Snæfells- nesi finni fyrir sterkum anda svæð- isins, njóti góðrar þjónustu, spenn- andi upplifunar og áhugaverðrar af- þreyingar á fjölbreyttum ferðaleið- um og áfangastöðum sem dreif- ast um allt Snæfellsnes. Mikil vægur þáttur hér er einnig þróun matvæla í heimbyggð í samstarfi við bændur og aðlila í sjávarútvegi, sem er ætlað að efla matarmenningu og framboð staðbundinna matvæla. Samhliða svæðisskipulagsvinn- unni hafa Snæfellingar stofnað Svæðisgarðinn Snæfellsnes, sem er formlegur samstarfsvettvangur sveitarfélaganna, íbúa og atvinnu- lífs. Á þeim vettvangi verður unn- ið að framgangi verkefnanna sem sett eru fram í svæðisskipulaginu. Þarna er fylgt fordæmum um svæð- isbundið samstarf, sem skilað hef- ur raunverulegum árangri við upp- byggingarstarf sem þetta í löndum eins og Noregi, Sviss, Frakklandi, Bretlandi, Austurríki og Þýska- landi. „Það er von og trú allra sem að þessari vinnu hafa komið að hún muni nýtast sem lyftistöng fyrir atvinnulíf og samfélag á Snæfells- nesi á næstu árum og gera það sam- keppnishæfara til framtíðar. Nán- ari upplýsingar um svæðisskipulag- ið og Svæðisgarðinn Snæfellsnes eru á www.snaefellsbaer.is Mark- mið skipulagsverðlaunanna er að hvetja til umræðu, auka skilning á skipulagsmálum og vekja athygli á því besta sem er að gerast á sviði skipulags á hverjum tíma,“ segir í tilkynningu vegna Skipulagsverð- launanna 2014. mm Verðlaunagripurinn. Snæfellingar taka hér við verðlaunum fyrir hið risavaxna verkefni. Forsíða skipulagsins. Á undanförnum árum hafa margir lagt hönd á plóg við að byggja upp gott og aðgengilegt efni sem nýst getur forsvarsmönnum fyrirtækja í ferðaþjónustu við vöruþróun og markaðssetningu. Nýsköpunarmið- stöð Íslands, í samvinnu við Íslands- stofu og markaðsstofur landshlut- anna, hefur nýlega gefið út hand- bókina „Einstök íslensk upplifun.“ Hún er ætluð sem stuðningur fyr- ir þá sem vilja tileinka sér aðferð- ir upplifunarferðaþjónustu. Tól og tæki upplifunarhönnunar skapa fyr- irtækjum, stöðum og svæðum tæki- færi til þróunar verðmætari afurða og þjónustu sem henta þeim mark- hópi sem horft er til. Með því að draga fram sérstöðu staða, svæða og landa við þróun og uppbyggingu má fá meiri slagkraft við markaðs- setningu, aukið virði og ánægðari gesti. Bókin samanstendur af stutt- um köflum, dæmisögum, gátlistum og fleiru sem nýst getur við þróun í ferðaþjónustu. Handbókina má nálgast á www.einstokupplifun.is mm Mikil tækifæri í upplifunarferðaþjónustu Frá Botnsdal. Ljósm. Ragnar Th Sigurðsson. Einstokupplifun.is Á vef Reykhóla er greint frá því að lokatilraunir til að selja rekstur verslunarinnar Hólakaupa á Reyk- hólum hafi engu skilað og verður henni því lokað núna um áramótin. „Tveir aðilar sýndu þessu áhuga nú á haustmánuðum, en af mismun- andi ástæðum var hætt við kaupin. Við sjáum okkur ekki fært að reka þetta áfram, því að „vinnukonan“ okkar er að fara að halda áfram í skóla og ég er á fullu að undirbúa nýja fyrirtækið. Ólafía getur ekki annast þetta ein þrátt fyrir góðan vilja,“ segir Eyvindur Magnússon kaupmaður í samtali við Reykhóla- vefinn. „Okkur þykir miður að þurfa að loka, en álagið á fjölskylduna, sem fylgt hefur rekstri búðarinn- ar, er alveg nóg fyrir. Engir hér af nærsvæðinu sýndu þessu áhuga og það finnst mér umhugsunarefni. Kannski hafa menn bara nóg að gera, eða þá hitt, að fólk vill hafa sitt frí. Búðin hefur alltaf verið rek- in með hagnaði í okkar umsjá og það verður vont fyrir samfélagið hér ef hún leggst af,“ segir Eyvind- ur. Þau Ólafía Sigurvinsdóttir og Eyvindur Svanur Magnússon hafa rekið verslunina Hólakaup frá vor- inu 2010. mm Hólakaupum verður lokað um áramótin Eyvindur Magnússon við Hólakaup. Ljósm. þá.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.