Skessuhorn


Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014 Börn fá leiksvæði BORGARNES: Börn í Bjargslandi í Borgarnesi færðu sveitarstjóra nýverið undirskriftalista þar sem þau óskuðu eftir svæði til leikja. Fjallað hefur verið um mál- ið á fundum byggðarráðs og umhverfis-, skipulags og landbúnaðarnefndar. Byggð- arráð þakkaði börnunum fyr- ir góða hugmynd og ætlar að finna gott svæði sem gæti hentað fyrir leikflöt. Á sveit- arstjórnarfundi 20. nóvember síðastliðinn var afgreiðslan samþykkt samhljóða. Börn í Bjargslandi mega því eiga von á því að fá leiksvæði í hverfið á næsta ári. –grþ Gleymdi að hleypa barni út STRÆTÓ: Í lok nóvem- ber lenti tíu ára drengur í því að strætóbílstjóri gleymdi að stöðva bílinn við Mela- hverfi í Hvalfjarðarsveit. Þurfti drengurinn því að fara úr vagninum í Borgarnesi, 25 kílómetrum frá áfanga- stað sínum. Þessu atviki lýsti faðir drengsins á Facebook- síðu íbúa í Hvalfjarðarsveit. Vagninn sem um ræðir er leið 57, sem fer frá Reykjavík til Akraness og þaðan norð- ur í land, og er ein af stoppi- stöðvum vagnsins á leið sinni í Melahverfinu. Faðir drengs- ins birtir í færslu sinni bréf sem hann sendi Strætó vegna málsins og opnaði þannig umræðu um ferðir strætó í Hvalfjarðarsveitinni. Marg- ir aðilar tóku undir frásögn föðurins og sögðu umrædda þjónustu Strætó ábótavant, enda gleymdu bílstjórarnir oft að stöðva bílinn við Mela- hverfið. –grþ Heppinn spilari REYKHÓLAR: Það voru tveir heppnir miðaeigendur sem voru með allar tölurn- ar réttar í útdrætti Lottósins laugardaginn 22. nóvember sl. Þeir skiptu með sér vinn- ingnum og fengu rúmar 6,6 milljónir í sinn hlut. Miðarn- ir voru keyptir í Hólakaupum við Hellisbraut á Reykhólum og í Kúlunni við Réttarholts- veg í Reykjavík. –grþ Bílvelta við Skeljabrekku LBD: Lögreglu var tilkynnt um bílveltu við Skeljabrekku sl. miðvikudag. Talverð ísing hafði myndast á veginum er óhappið gerðist. Ökumaður var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæsluna í Borgarnesi til skoðunar en meiðsli hans reyndust óveruleg. Lögregla stöðvaði í vikunni tvo öku- menn vegna of hraðs akst- urs. Þá hafði lögregla afskipti af einstaklingi sem látið hafði ófriðlega í samkvæmi í heima- húsi og meðal annars vald- ið þar eignatjóni. Samkvæmt þeim upplýsingum sem lög- regla hefur náðist samkomu- lag um bætur milli hans og tjónþola er af mönnum var runnið. –þá Skallagrímur veitti viðurkenninguna BORGARNES: Í viðtali í síð- asta blaði við Hafþór Gunnars- son körfuboltamann úr Borgar- nesi var sagt frá viðurkenningu sem hann hlaut. Það skal tek- ið fram að það var Kristinn Ó Sigmundsson formaður Kkd. Skallagríms sem veitti honum viðurkenninguna fyrir hönd stjórnar Skallagríms fyrir gott starf í þágu körfuboltans í Borg- arnesi. KKÍ kom þar hvergi við sögu. Það leiðréttist hér með. –þá Ellefu bygginga- lóðum úthlutað AKRANES: Bæjarráð Akraness samþykkti sl. fimmtudag út- hlutun ellefu byggingalóða fyr- ir íbúðarhúsnæði. Sex umsókn- irnar voru frá Akri ehf á Akra- nesi um parhúsalóðirnar við Blómalund 2-4 og 5-7. Þá var samþykkt að úthluta Callicia ehf félagi með heimilisfang í 101 í Reykjavík fimm lóðum í Skógar- hverfi. Það eru raðhúsalóðirnar 1, 3 og 5 við Seljaskóga og par- húsalóðir við Álmskóga 2 og 4. Afgreiðslu umsókna Callicia ehf um umræddar lóðir hafði fyrr í haust verið frestað hjá bæjarráði. Ráðið óskaði eftir verkáætlun hjá fyrirtækinu sem borist hafði fyrir umræddan fund bæjarráðs sl. fimmtudag. –þá Frávísunarkröfu hafnað AKRANES: Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp þann úr- skurð 6. nóvember sl. að hafnað skyldi frávísunarkröfu Akranes- kaupstaðar um að vísa frá dómi skaðabótakröfu Skagavers vegna Miðbæjar 3 á Akranesi. Eigend- um Skagavers hafa verið dæmd- ar 40 milljónir í skaðabætur frá Akraneskaupstað, en gera kröfu um umtalsvert hærri skaðabóta- upphæð. Málarekstur Skagavers gegn Akraneskaupstað heldur því áfram. –þá Vesturland slapp vel frá óveðrinu Björgunarsveitir og lögregla á Vest- urlandi þurftu ekki að sinna nein- um sem kallast gætu alvarleg útköll vegna óveðurslægðarinnar sem gekk yfir landið á sunnudag og aðfarar- nótt mánudags. Stormurinn sem þá ríkti náði sér ekki verulega á strik á þessu landssvæði og var vindátt- in norðvestanstæð lengst af, frem- ur en sunnanstæð. Það var helst í Snæfellsbæ sem björgunarsveitar- menn sinntu afleiðingum óveðurs. Félagar í Lífsbjörg fóru í níu útköll og höfðu um tíma á sunnudags- kvöldið í nógu að snúast á hafnar- svæðinu í Ólafvík og inn á Hellis- sandi. Á hafnarsvæðinu voru kör á ferðinni og þakplötur sem þurfti að festa. Á Hellissandi voru plötur farnar að losna á tveimur stöðum, meðal annars af garðhýsi. Á Akra- nesi voru járnplötur farnar að losna á húsi við Esjubraut, en annars var um minniháttar útköll að ræða, svo sem vegna brotinnar fánastangar, skjólveggir höfðu losnað á tveim- ur stöðum og gluggar og hurðir að fjúka upp. Þá fauk hluti af stillans á hús. Mjög rólegt var hjá björgunar- sveitum í Borgarfirði. Brákarmenn í Borgarnesi fóru í vettvangsferð um svæðið á laugardag þar sem hugað var að lauslegum hlutum og fólki bent á ef úrbóta væri þörf. Björgun- arsveitarmenn í Stykkishólmi voru einnig á ferðinni en engin stórvægi- leg útköll voru. Í Grundarfirði var björgunarsveitin Klakkur á vaktinni og í viðbragðsstöðu en ekki kom til útkalla. Þannig var það einnig hjá björgunarsveitinni í Búðardal, ekki þurfti að sinna neinu útkalli í Döl- unum. þá Þakplötur festar á hafnarsvæðinu í Ólafsvík. Ljósm. af. Rólegt var hjá björgunarsveitarmönnum í Grundarfirði, en voru þeir engu að síður í viðbragðsstöðu. Ljósm. tfk. Sjór var úfinn í Ólafsvíkurhöfn þegar hvassast var á sunnudagskvöldið. Ljósm. af. Bátar í Grundarfjarðarhöfn í hvassviðrinu. Ljósm. tfk. Björgunarsveitarmenn á Akranesi huga að grindverki sem losnaði í hvassviðrinu. Ljósm. ki.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.