Skessuhorn


Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014 Grenndarstöðv- um fækkað BORGARBYGGÐ: Á næstu dögum verða fjórar grennd- arstöðvar í Borgarbyggð fjar- lægðar. Þetta er gert sökum þess að ekki þykir þörf fyrir þær eftir að flokkun á heimil- issorpi var tekin upp í dreifbýli sveitarfélagsins í sumar. Um er að ræða fjórar grenndar- stöðvar eða gáma og allar eru þær fjarri sumarhúsabyggð- um. Þetta eru stöðvarnar við Jörfa, Hvítárbakka, Kaldár- mela og Síðumúla. Síðar verð- ur svo fjarlægður einn af gám- unum við Tungulæk að því er fram kemur í tilkynningu á heimasíðu Borgarbyggðar. Þá eru enn eftir 22 grenndar- stöðvar af þeim 40 sem voru í sveitarfélaginu auk flokkun- arstöðvarinnar við Sólbakka. Stöðvunum verður ekki fækk- að meira fyrr en búið er að koma upp flokkunarkörum á sumarhúsasvæðunum, segir á vef Borgarbyggðar. Stefnt er að því verði lokið fyrir mán- aðamótin apríl-maí 2015. –þá Uppsagnir í Landsbankanum ÓLAFSVÍK: Landsbankinn sagði í síðustu viku upp tveim- ur starfsmönnum, gjaldkera og þjónustufulltrúa, í útibúi bankans í Ólafsvík. Töluverð- ur urgur er í heimamönnum vegna uppsagnanna, þær sagð- ar óvægnar í garð starfsmanna sem starfað hafa lengi við bankann. Annar starfsmaður- inn hafði unnið í 25 við spari- sjóðinn og þrjú ár í Lands- bankanum. Kristján Kristjáns- son upplýsingafulltrúi Lands- bankans staðfestir að gerðir hafi verið starfslokasamning- ar við tvo starfsmenn útibús- ins og séu þær hluti af aðgerð- um til hagræðingar í rekstri. Að sögn Kristjáns er viðtek- in venja þegar bankinn hef- ur frumkvæði að starfslokum, að viðkomandi starfsmenn láti strax af störfum. Stefna bank- ans sé sú að þegar starfsmönn- um er gert að hætta með þess- um hætti þá greiði bankinn laun í lengri tíma en uppsagn- arfrestur kveður á um. Það hafi verið gert í þessu tilfelli líka. Hann kveðst þó skilja að starfsfólki og öðrum sé brugð- ið, uppsagnir séu aldrei neitt gleðiefni. -mm Sýning um kven- réttindabaráttu BORGARNES: Kvenrétt- indafélag Íslands hefur hug á á næsta ári að setja upp far- andsýningu um kvenréttinda- baráttu síðustu 100 ár. Sýn- ingin verður sett upp í til- efni 100 ára afmælis kosn- ingaréttar kvenna, sem verð- ur 2015. Sýningin mun hefjast í Borgarnesi. Kvenréttinda- félagið lagði fram beiðni til Borgarbyggðar um samstarf vegna sýningarinnar. Byggð- arráð Borgarbyggðar tók já- kvætt í erindið og lagði til Hjálmaklett sem sýningarstað. Sveitarstjóra var falið að ræða við forstöðumann Safnahúss Borgarfjarðar um viðburð í tengslum við sýninguna. –grþ Nýskráningum ehf fjölgar LANDIÐ: Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði, frá nóvember 2013 til október 2014, hefur fjölg- að um 8% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.036 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölg- un nýskráninga í flokknum Flutningar og geymsla og í flokknum leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta, eða 34% á síðustu 12 mánuðum í hvorum flokki. –mm Veiðikortið 2015 að koma út LANDIÐ: Veiðikortið 2015 er væntanlegt í fyrstu viku desembermánaðar. Gert er ráð fyrir að dreifing kortsins hefjist 5.-8. desember. „Það hafa aldrei verið fleiri vötn í boði en fyrir komandi tíma- bil. Vötnin í Svínadal; Þór- isstaðavatn, Geitabergsvatn og Eyrarvatn koma inn aft- ur eftir nokkurt hlé. Hópið mun detta út. Það er óbreytt verð frá því í fyrra, eða 6900 krónur. Hægt er að panta kortið á vefnum og fá það sent með pósti,“ segir í til- kynningu. –mm Aflatölur fyrir Vesturland 22. - 28. nóvember. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 9 bátar. Heildarlöndun: 33.286 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 14.410 kg í fjórum löndun- um. Arnarstapi 4 bátar. Heildarlöndun: 10.160 kg. Mestur afli: Bárður SH: 5.907 kg í þremur löndun- um. Grundarfjörður 11 bátar. Heildarlöndun: 808.747 kg. Mestur afli: Vilhelm Þor- steinsson EA: 578.977 kg í einni löndun. Ólafsvík 13 bátar. Heildarlöndun: 140.246 kg. Mestur afli: Brynja SH: 29.492 kg í fimm löndunum. Rif 18 bátar. Heildarlöndun: 352.024 kg. Mestur afli: Örvar SH: 73.959 kg í einni löndun. Stykkishólmur 6 bátar. Heildarlöndun: 97.505 kg. Mestur afli: Gullhólmi SH: 48.076 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Vilhelm Þorsteinsson EA – GRU: 578.977 kg. 25. nóvember 2. Örvar SH – RIF: 73.959 kg. 24. nóvember 3. Rifsnes SH – RIF: 73.502 kg. 26. nóvember 4. Hringur SH – GRU: 67.625 kg. 26. nóvember 5. Gullhólmi SH – STY: 48.076 kg. 23. nóvember mþh Starfsfólk Húsasmiðjunnar á Akra- nesi tók sig til í aðdraganda að- ventu og vegna jólaskreytinga í versluninni og smíðuðu arinn sem stillt er út í anddyri verslunarinn- ar. Nú er óskað tilboða í arininn og getur hæstbjóðandi sótt hann á Þorláksmessu. Peningurinn verð- ur síðan færður Hollvinasamtökun Heilbrigðisstofnunar Vesturlands að gjöf, en þau safna nú fyrir nýju sneiðmyndatæki á HVE á Akra- nesi. Efniskostnaður við arininn er um 30 þúsund krónur og er það jafnframt lág- marksboð. Þeir sem hafa áhuga á að eignast arin- inn og styrkja um leið Hollvinasamtök HVE geta lagt inn tilboð til starfsfólks Húsasmiðj- unnar á Akranesi. mm Óska eftir tilboðum í arinn - ágóðinn fer til Hollvinasamtaka HVE Stjórn Samtaka ungra bænda (SUB) hvetur Matvælastofnun (MAST) til að endurskoða verk- ferla þegar kemur að tilkynning- um um vanrækslu dýra eða aft- urköllun starfsleyfa. SUB hefur samþykkt svohljóðandi ályktun: „Birting skoðunarskýrslna og bæjarnafna í fjölmiðlum gagnast engum og ættu að vera trúnaðar- gögn í málum sem þessum. Slúð- ur um það hvað gæti hafa gengið á fer manna á milli sem ábúend- ur og fjölskyldur þeirra líða fyrir. Umræðan verður oft hávær, ræt- in og ólíkleg til að gera neinum gagn. Í staðinn hvetur stjórn SUB Matvælastofnun til að veita ábúend- um slíkra búa raunverulega aðstoð. Það er gott og eðlilegt að viðhaft sé eftirlit með matvælaframleiðslu og mikilvægt að MAST standi sig í stykkinu í þeim efnum, en bjóði fólki svo upp á aðstoð þar sem við á. Rót vandans í flestum tilfell- um eru andleg veikindi eða bágar félagslegar aðstæður. Í stað dýra- lækna sem útlista hve skítugt fjós- ið er og það séu of margar kind- ur í fjárhúsinu lægi beinast við að MAST réði til sín sálfræðinga eða félagsráðgjafa þegar kemur að þessum málum. Nýtum okkur aðgengi að fólki sem er sérhæft í að hjálpa þeim sem eiga við and- leg veikindi að stríða. Byggjum bændur upp í stað þess að brjóta þá niður.“ mm Stöðva dreifingu mjólkur frá fjórum kúabúum Matvælastofnun stöðvaði í síðustu viku dreifingu mjólkur frá fjórum kúabúum í Vesturumdæmi og Suð- vesturumdæmi. Ástæður stöðvunar- innar er sögð skortur á rekjanleika í einu tilfelli og skortur á úrbótum í þremur, þrátt fyrir margítrekað- ar kröfur Matvælastofnunar. „Rekj- anleiki afurða er forsenda þess að hægt sé að hafa eftirlit með matvæl- um allt frá uppruna þeirra að diski neytenda og að hægt sé að fjarlægja hættuleg matvæli af markaði. Á ein- um bæjanna gat framleiðandi ekki sýnt fram á uppruna og rekjanleika mjólkur sem dreift var frá búinu. Á hinum bæjunum voru gerðar ítrek- aðar kröfur um úrbætur. Kröfurnar sneru ýmist að ófullnægjandi þrif- um, viðhaldi, umhverfi, hönnun, skráningum og/eða leyfum. Búun- um var veittur lokafrestur til úrbóta en kröfur Matvælastofnunar voru ekki virtar,“ segir í tilkynningu frá stofnuninni. Matvælastofnun hefur skv. lögum um matvæli heimild til að stöðva starfsemi og afturkalla starfsleyfi þegar frávik endurtaka sig og til- mæli stofnunarinnar eru ekki virt. Mjólk frá þessum framleiðendum mun ekki verða afhent til vinnslu fyrr en uppfyllt eru gildandi lög og reglur. mm Stjórn ungra bænda átelur vinnubrögð Matvælastofnunar Það var mikið um að vera í Grund- arfjarðarhöfn þegar fréttarit- ari Skessuhorns átti leið þar um þriðjudaginn 25. nóvember síðast- liðinn. Þá var olíuskipið Laugarnes að dæla olíu í land. Kiddi RE 89 var að landa 3.257 kg af síld úr Kol- grafafirði ásamt því að verið var að landa 578.977 kg af frosinni loðnu sem Vilhelm Þorsteinsson EA 11 veiddi við Grænland. tfk Líf í höfninni Strandaði í smástund við Stykkishólm Síðastliðið laugardagskvöld voru björgunarsveitir á Snæfellsnesi kallaðar út. Bátur hafði strandað skammt fyrir utan innsiglinguna í Stykkishólmshöfn. Björgunarsveit- irnar Berserkir, Klakkur og Lífs- björg voru kallaðar út á fyrsta for- gangi, útkall F1, en fljótlega kom í ljós að minni hætta var á ferð- um en í fyrstu var talið og var þá björgunarbátum frá Klakki og Lífs- björgu snúið til baka. Vegna slæmr- ar veðurspár var verið að færa milli hafna gamlan eikarbát, Pétur afa frá Ólafsvík. Einn maður var um borð. Losnaði báturinn sjálfur af strand- stað og var honum siglt fyrir eig- in vélarafli þá stuttu leið sem ófarin var til hafnar. mm/Ljósm. af.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.