Skessuhorn - 03.12.2014, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Vilja mynda samstarfsvettvang um Grundartangasvæðið
Á föstudaginn síðasta var undirrit-
uð viljayfirlýsing Faxaflóahafna og
sveitarfélaga í grennd við Grundar-
tangasvæðið um að stofna til víðtæks
samstarf til framtíðar. Þetta samstarf
mun lúta að umhverfismálum, mót-
un framtíðarsýnar, upplýsinga um
lýðfræði og aðrar tölfræðilegar upp-
lýsingar, forgangsröðun á valkostum
fyrir framleiðslu- og þjónustufyrir-
tæki á svæðinu auk þess að veita upp-
lýsingar um Grundartangasvæðið.
Miðað er við að þetta samstarf verði
ráðgefandi fyrir Hvalfjarðarsveit
sem fer með skipulagsvald á Grund-
artanga. Þar á meðal er forgangs-
röðun um hvers konar starfsemi
henti sem viðbót við þá sem þegar
er fyrir á svæðinu. Sérstök áhersla er
lögð á umhverfisleg gildi. Samstarf-
ið á einnig að kynna svæðið sem val-
kost fyrir þá starfsemi sem aðilar telji
heppilegt að fá þangað.
Á að styrkja ímynd
Grundartanga
Aðilar að viljayfirlýsingunni sem
undirrituð var af fulltrúum þeirra á
föstudag eru Hvalfjarðarsveit, Akra-
neskaupstaður, Reykjavíkurborg,
Borgarbyggð, Skorradalshrepp-
ur, Kjósarhreppur og Faxaflóahafn-
ir. Til stendur að leita til fyrirtækja
á Grundartanga, háskóla, framhalds-
skóla og rannsóknastofnana um að
leggja þessu samstarfi lið. „Þetta
er auðvitað hluti af því verkefni að
styrkja ímynd Grundartanga með
því að búa til þennan samsarfsvett-
vang. Sigursteinn Sigurðsson arki-
tekt í Borgarnesi hefur undanfarið
unnið að því að útbúa tillögur um
græna iðngarða á Grundartanga.
„Væntanlegur samstarfsvettvangur
sem við myndum hér í dag fær þá
vinnu í arf. Þetta er stór dagur, hér
er búið að stíga fyrsta skrefið,“ sagði
Páll Brynjarsson framkvæmdastjóri
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
(SSV) þegar viljayfirlýsingin hafði
verið undirrituð í stjórnsýsluhúsi
Hvalfjarðarveitar.
Vilja veita aðhald
Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa-
flóahafna benti á að samstarf væri í
sjálfu sér þekkt hjá sveitarfélögunum
norðan Hvalfjarðar og við Reykja-
vík þegar Grundartangi væri annars
vegar. „Mér finnst hins vegar mjög
ánægjulegt að fá Kjósarhrepp inn í
þetta. Það hefur verið rætt á liðnum
árum að reyna að koma á samstarfi
og mjög ánægjulegt að það hefur
tekist. Menn þurfa ekki alltaf endi-
lega að vera sammála en það er mjög
mikilvægt að fara heiðarlega í gegn-
um umræðuna. Þetta er mjög farsælt
skref sem hér er stigið.“
Guðmundur H. Davíðsson odd-
viti Kjósarhrepps undirritaði viljayf-
irlýsinguna fyrir hönd síns sveitarfé-
lags. „Við komum ekki endilega inn í
þetta sem „jábræður.“ Það er þó mik-
ilvægt að vera með og reyna að hafa
áhrif á hvað verið er að gera. Þessi
þróun er jákvæð en þarf ekki að fela
í sér meiri stóriðjustefnu. Við vilj-
um standa vörð um lífrænan land-
búnað í Kjósinni. Á sama tíma erum
við meðvituð um að við getum ekki
haldið uppi gagnrýni á mengun því
þá erum við svolítið að skjóta okkur
í fótinn og viðurkenna að vörur okk-
ar séu ekki nægilega góðar. Nú er
búið að kynna fyrir okkur hjá Kjós-
arhreppi fyrirætlanir varðandi starf-
semi í Hvammsvík. Þar er verið að
horfa á uppbygginu á töluverðri
ferðaþjónustu með vistvænni hótel-
byggingu þar sem gestir stunda vist-
væna útivist. Þeir aðilar velta fyrir
sér hvernig framtíðin verði handan
fjarðar á Grundartanga. Við gátum
bara svarað því að þar sé fyrir hendi
ákveðið skipulag en setjum ákveðna
varnagla við það. Að sjálfsögðu mun-
um við halda áfram að fylgjast með
því hvað er að gerast þarna og halda
mönnum á tánum. Við teljum það
okkar hlutverk en fögnum jafnframt
að vera í því samstarfi sem þessi vilja-
yfirlýsing gefur til kynna.“
Meira traust en áður
Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs
Akraness ítrekaði að íbúar á Akranesi
hafi sömu hagsmuni og íbúar Hval-
fjarðarsveitar varðandi það að um-
hverfismálin séu í lagi á Grundar-
tanga. „Þessi samráðsvettvangur lof-
ar mjög góðu. Það hefur verið tor-
tryggni á milli aðila, kannski vegna
þess að menn hafa ekki haft vettvang
til að tala saman. Hið sama má segja
um fyrirtækin sem eiga hagsmuni á
svæðinu. Þau þurfa líka að hafa að-
gang að svona vettvangi.“
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri
Akraness tók undir þetta. „Það var
reynt mikið á síðasta kjörtímabili að
koma á fót eins konar samvinnu- eða
þróunarfélagi á milli Borgarbyggðar,
Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaup-
staðar. Því miður tókst það ekki. Nú
upplifi ég hins vegar meira traust á
milli sveitarfélaganna á þessu svæði
heldur en ég hef gert til þessa á mín-
um tíma sem bæjarstjóri Akraness.“
Væntingar bundnar við
Grundartanga
Við undirritun viljayfirlýsingarinn-
ar var ljóst að miklar væntingar eru
bundnar við frekari uppbyggingu á
Hvalfjarðarsvæðinu. Þess má þegar
sjá merki í aukinni bjartsýni norð-
an fjarðar. Björn Bjarki Þorsteinsson
forseti sveitarstjórnar Borgarbyggð-
ar ítrekaði þetta. „Atvinnusvæðið
kringum Grundartanga er orðið ansi
stórt. Það teygir sig alla leið vestur
á Snæfellsnes. Hjá okkur í Borgar-
byggð er það orðið mjög mikilvægt.
Í gær urðu þau tímamót hjá byggð-
arráði Borgarbyggðar að við vorum
að samþykkja úthlutanir á tveimur
lóðum undir fjölbýlishús. Þetta hef-
ur ekki gerst síðan 2008. Umræðan
um frekari uppbyggingu á Grundar-
tanga hefur skipt sköpum varðandi
þetta. Við eigum að horfa björtum
augum fram á við og gera það í sam-
einingu.“
„Þetta er allt eitt atvinnusvæði og
stefnir í jákvæða átt. Þessi vettvang-
ur sem við erum að skapa núna get-
ur orðið þungamiðja þess sem við
erum að skapa inn í framtíðina. Það
er af hinu góða að menn talist við og
hafi samband hver við annan. Við í
Skorradal viljum gjarnan taka þátt,
fylgjast með og vita hvað er að ger-
ast,“ sagði Árni Hjörleifsson oddviti
Skorradalshrepps.
Hvalfjarðarsveit býður
fram vinnuaðstöðu
Björn Blöndal formaður borgar-
ráðs Reykjavíkur og stjórnarmaður í
Faxaflóahöfnum skrifaði undir vilja-
yfirlýsinguna fyrir hönd borgarinn-
ar. „Það eru hagsmunir á Grundar-
tanga sem skipta Reykjavíkurborg
miklu máli. Það er dýrmætt að geta
verið í sambandi við önnur sveitar-
félög vegna þessa. Þarna fara saman
hagsmunir okkar allra. Mér finnst
mjög mikilvægt að umhverfismál-
in verði sett í forgrunn á Grundar-
tanga.“
Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Hvalfjarðarsveitar lýsti ánægju með
viljayfirlýsinguna. „Við í Hval-
fjarðarsveit fögnum þessu. Það er
ánægjulegt að bæði Reykjavíkurborg
og Kjósarhreppur skuli nú koma að
þessum vettvangi. Þetta styrkir okk-
ur í þeirri vinnu sem er framundan.
Það er einhugur hjá okkur í Hval-
fjarðarsveit að taka þátt í þessu af
fullum þunga. Við erum reiðubúin
að leggja fram starfsaðstöðu hér í
stjórnsýsluhúsinu ef það yrði mögu-
lega ráðinn starfsmaður fyrir þenn-
an samstarfsvettvang um lengri
eða skemmri tíma. Við viljum að-
stoða við þetta á alla lund með þeirri
stjórnsýslu sem hér er.“
Stefnt er að því að samstarfsvett-
vangurinn hefji störf um áramót.
mþh
Árni Hjörleifsson oddviti Skorradalshrepps flytur ávarp við undirritun viljayfir-
lýsingarinnar. Björn Bjarki Þorsteinsson forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar og
Ólafur Adolfsson formaður bæjarráðs Akraness hlýða á mál hans í bakgrunni.
Kjörnir fulltrúar og embættismenn þeirra sveitarfélaga og samtaka sem komu að gerð viljayfirlýsingarinnar þegar hún var undirrituð í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðar-
sveitar á föstudag.
Björn Blöndal formaður borgarráðs Reykjavíkur, Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Hvalfjarðarsveitar og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraness skrifa undir
viljayfirlýsinguna.
Kristín Soffía Jónsdóttir formaður stjórnar Faxaflóahafna, Gísli Gíslason hafnar-
stjóri, Björn Blöndal formaður borgarráðs Reykjavíkur og Ólafur Adolfsson
formaður bæjarráðs Akraness.
Hvalfjarðarsveit fer með skipulagsvaldið á Grundartanga. Hér eru þeir Daníel
Ottesen sveitarstjórnarfulltrúi og Skúli Þórðarson sveitarstjóri.