Skessuhorn - 03.12.2014, Blaðsíða 17
17MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Á síðasta ári fagnaði Kór Stykkis-
hólmskirkju 70 ára afmæli. Mun
lengri saga er þó til um kórastarf í
bænum sem annálaður er fyrir mik-
ið tónlistarlíf. Kórinn sem gaf út
vandaðan geisladisk á afmælisárinu
hefur haft í nógu að snúast síðast-
liðið ár og verður lítil breyting þar
á komandi mánuði. Geisladiskur-
inn fékk afbragðsviðtökur, en sér-
lega var vandað til hans þar sem
lagaval endurspeglar kórastarfið
á starfstíma kórsins auk þess sem
tónlist sem tengist Stykkishólmi
og Breiðafirðinum skipar þar veg-
legan sess. Bók með diskinum er
á íslensku og ensku og prýða hana
fallegar myndir úr nágrenni Stykk-
ishólms eftir Eyþór Benedikts-
son, sem m.a. myndar talsvert fyrir
Skessuhorn. Skömmu fyrir geisla-
diskaútgáfuna steig kórinn á svið í
Hörpunni á Kóramóti Landssam-
bands blandaðra kóra, eini kórinn
af Vesturlandi. Kórinn syngur við
kirkjulegar athafnir í Stykkishólms-
kirkju þ.m.t. jarðarfarir auk þess
tónleikar eru minnst einu sinni á
ári.
Í haust voru haldnir tónleikar á
Norðurljósahátíð Hólmara, sem
er menningarhátíð Stykkishólms,
haldin annað hvert ár. Kórinn flutti
þar innlendar og erlendar perl-
ur við undirleik hljómsveitar sem
skipuð var Lázló Petö kórstjóra og
organista, Hólmgeiri Þórsteinssyni
á bassa, Hafþóri Guðmundssyni
á slagverk, Símoni Karli Sigurðs-
syni á klarinett og Martini Mark-
voll á gítar. Einsöngvarar úr röð-
um kórsins og gestasöngvarar stigu
á stokk og var það mál manna að
sérlega vel hafi tekist til.
Á aðalfundi kórsins í október
voru Agnar Jónasson, Anna Mel-
steð, Ásgerður Pálsdóttir og Guð-
björg Egilsdóttir kjörin í stjórn
kórsins og er Anna formaður.
Sú ákvörðun var tekin fyrir
tveimur árum að heimsækja heima-
land kórstjórans, Ungverjaland, en
markvisst hefur verið unnið að því
að fjármagna þá ferð í kórastarf-
inu frá þeim tíma. En í vetur verð-
ur lokahnykkurinn tekinn í þeirri
vinnu og alltaf eru kórfélagar til í
vinnu því þeir hafa tekið að sér hin
ýmsu verkefni í haust. Anok marg-
miðlun ehf í Stykkishólmi hann-
aði umhverfisvænan jólapappír sem
kórinn hefur einkasölurétt á og
hefur hann rokið út. „Það voru svo
sóprönur, öltur, tenórar og bassar
sem bökuðu Sörur af miklum móð
tvær helgar í nóvember og hafa
viðbrögðin við því verkefni kom-
ið skemmtilega á óvart. Strákarn-
ir eru enda ansi handlagnir því þeir
tóku einnig þátt í kertagerð, hefð-
bundinna kerta og batterískerta,
þar sem myndir af kirkjunni voru
settar á kertin. Kertin hafa selst
vel, sérstaklega þau sem bassarnir
stóðu að framleiðslunni! Er þar mál
manna að þar leynist nýir Georg
Jensenar! Um síðustu helgi fór svo
enn eitt verkefnið í gang þar sem
hinir handlögnu kórfélagar tóku
að sér að gera aðventuskreytingar,
kransa, leiðisgreinar ofl. og fór sala
vel af stað. Þetta verkefni er unnið
í mjög góðu samstarfi við Skipavík,
sem selur alls kyns efni til skreyt-
inga. “ segir Anna Melsteð í sam-
tali við Skessuhorn. „Já, en það er
ekki allt búið enn, því kórfélagarnir
og makar þeirra hafa svo marga og
ólíka hæfileika og til að virkja þá er
ýmislegt tínt til. N.k fimmtudags-
kvöld verða kórfélagar á ferðinni í
Norska húsinu, þar sem handverks-
og matarmarkaður fer fram. Við
höfum tekið þátt í þessum markaði
nokkrum sinnum áður og alltaf jafn
gaman, jafnvel hnoðað í lag á loft-
inu í Norska húsinu sem iðar af lífi á
aðventunni. “ segir Anna. Meðfram
öllu þessu er æft stíft fyrir jólahá-
tíðina og aðventutónleika kórsins
sem haldnir verða laugardaginn 13.
desember kl. 20. Þar verður hátíð-
leikinn við völd, þegar kórfélagar
sparibúast og flytja sína uppáhalds
jóla- og aðventutónlist. Líkt og á
Norðurljósatónleikunum í haust þá
munu kórfélagar stíga fram og sýna
á sér nýjar hliðar og fá til liðs við
sig hljóðfæraleikara til að styðja við
í flutningnum. Fréttatilk.
Jólaljósin á Akratorgi voru tendruð
síðastliðinn laugardag við hátíðlega
athöfn. Blíðskapar veður var á Akra-
nesi þann dag og fjölmenntu Akur-
nesingar á nýuppgert torgið. Skóla-
kór Grundaskóla söng nokkur lög
undir stjórn Valgerðar Jónsdótt-
ur áður en kveikt var á ljósunum á
trénu og Sigríður Indriðadóttir for-
seti bæjarstjórnar Akraness flutti
ávarp. Jólatréð var fengið úr reit
sem kallast Selhagi í Álfhólsskógi
við Fannahlíð. Fyrir um 22 árum
plöntuðu Guðjón Guðmundsson
frá Arkarlæk, Bjarni Þóroddsson frá
Bekansstöðum og Oddur Sigurðs-
son frá Litlu-Fellsöxl ásamt fleirum
grenitrjám í þann reit og er jólatréð
sem nú prýðir torgið eitt af þeim.
Það voru þau Sóley Birta Gríms-
dóttir 7 ára og Sindri Snær Ævars-
son 9 ára sem kveiktu á jólatrénu í
ár. Sóley er langafabarn Guðjóns
Guðmundssonar frá Arkarlæk og
Sindri er afabarn Guðjóns.
Eftir að ljósin voru tendruð steig
á svið Samúel Þorsteinsson og tók
lagið með viðstöddum. Hann að-
stoðaði síðan börnin við að kalla
á jólasveinana sem kíktu við. Þeir
slógu á létta strengi við mikla
ánægju viðstaddra, sögðu frá ferð-
um sínum og tóku nokkur jólalög
með börnunum. Félagar úr Skátafé-
lagi Akraness gáfu heitt kakó í boði
Akraneskaupstaðar á meðan á dag-
skránni stóð. Þá var haldinn jóla-
markaður á 2. hæð Gamla Lands-
bankahússins en þar var hægt að
kaupa gjafavöru í formi handverks
og matar. Á þriðju hæð var Sólveig
Sigurðardóttir að selja málverk sín.
Fyrstu trén voru sett niður við
Fannahlíð fyrir 75 árum en það
voru birkitré. Að meðaltali er plant-
að um fjögur til fimmþúsund trjám
á ári í skógræktina en flest hafa um
tíuþúsund tré verið sett niður að
sumri. Hægt verður að fara í skóg-
ræktina við Fannahlíð 13. og 14.
desember næstkomandi og kaupa
jólatré og fá heitt súkkulaði.
grþ /Ljósm. mm.
Annasamur vetur hjá Kór Stykkishólmskirkju
Jólasveinarnir tóku nokkur lög ásamt Samúel Þorsteinssyni.
Jólaljósin tendruð á Akratorgi
Fjöldi fólks safnaðist saman í veðurblíðunni á Akratorgi þegar jólaljósin voru
tendruð síðastliðinn laugardag. Myndlistarkonan Sossa hélt sýningu og uppboð á myndum sínum á þriðju hæð
Gamla Landsbankahússins. Hér er hún ásamt foreldrum sínum og tveimur systk-
inum.
Sóley Birta Grímsdóttir, Guðjón Guðmundsson frá Arkarlæk og Sindri Snær Ævars-
son. Sóley og Sindri eru afa- og langafabörn Guðjóns.
Haldinn var markaður í Gamla Landsbankahúsinu. Hér er Kristján Bjarnason að
selja nafnmerktar lyklakippur sem hann framleiðir.