Skessuhorn - 03.12.2014, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 2014
Eftir áramótin mun SkjárEinn
hefja sýningar á annarri ser-
íu raunveruleikaþáttarins Biggest
Loser Ísland. Meðal þátttakenda
þessu sinni eru tveir Vestlending-
ar, þau Rúnar Ólason og Akur-
nesingurinn Alexandra Arndísar-
dóttir. Rúnar er Vestlendingur í
húð og hár, hefur í gegnum tíðina
búið í Borgarnesi, Stykkishólmi
og nú síðustu tíu árin á Akranesi.
Rúnar starfar við tilboðsgerð hjá
Loftorku í Borgarnesi. Skessuhorn
heyrði í Rúnari og spurðist meðal
annars fyrir um heilsufarið, líðan-
ina og þáttinn.
Þyngdist í kjölfar
nýrnaskipta
Rúnar segist alltaf hafa verið
þyngri en flestir jafnaldrar sínir
en fyrir fjórtán árum fór hann að
þyngjast verulega. „Ég fór í nýrna-
skipti haustið 2000. Þá fór ég á lyf
sem höfðu þá aukaverkun að mat-
arlystin jókst mikið og kom þannig
þessum bolta af stað niður brekk-
una,“ segir Rúnar. Þegar tökur
hófust á þættinum var Rúnar 177,5
kg. Hann segir þyngdina að vissu
leyti hafa haft áhrif á líf sitt fram
til þessa. „En maður áttaði sig
kannski ekki á því á meðan hlutur-
inn var að gerast. En þegar mað-
ur er á sig kominn líkamlega eins
og ég, þá gerist það að sjálfstraust-
ið er ekki til staðar og maður þorir
ekki að gera ýmsa hluti sem mann
hefði langað til að gera,“ útskýrir
hann. Þeir sem glíma við ofþyngd
finna oftar en ekki fyrir fylgikvill-
um vegna þyngdarinnar. Rún-
ar kannast við það. „Ætli það séu
ekki bara þessu klassísku einkenni
sem ég hef fundið fyrir. Þá er ég að
meina hluti eins og að vera sífellt
orkulítill, að eiga erfitt með svefn
og blóðþrýstingurinn ekki til fyrir-
myndar svo fátt eitt sé nefnt,“ seg-
ir hann og bætir því við að flest all-
ir sem eru í svipuðum sporum og
hann hafi auk þess lent í fordóm-
um vegna útlitsins.
Ætlaði sér að vinna
Aðspurður um markmiðið með
þátttökunni í Biggest Loser Ísland
segir Rúnar að fyrirfram hafi hann
verið ákveðinn í að vinna. „En ég
var nú fljótur að átta mig á því að ég
gat ekki stjórnað því hvernig geng-
ur hjá öðrum. Ég get bara einbeitt
mér að sjálfum mér og gert mitt
besta til þess að ná besta mögulega
árangri sem ég get náð og vonað
að það komi til með að nægja þeg-
ar kemur að lokaþættinum.“ Rún-
ar hefur gert nokkrar tilraunir til
að léttast á undanförnum árum en
að hans sögn alltaf gert þau mistök
að gefast upp þegar hann hefur lent
á vegg. Þannig hefur hann lést um
einhver kíló en bætt þeim svo öll-
um aftur á sig og gott betur. „Þeg-
ar allt er tekið saman hef ég líklega
misst um 100 kg í heildina við að
reyna að léttast.“
Þurftu að vinna fyrir
símtölum
Fjórtán keppendur tóku þátt í Big-
gest Loser Ísland 2 og lauk tökum
nýverið. Tökur fóru fram á Ásbrú
í Reykjanesbæ og þeir keppendur
sem lengst voru dvöldu þar í níu vik-
ur. Upptökur voru skipulagðar alla
virka daga frá klukkan 9 til 18 og
fengu keppendur einungis að hitta
þá sem unnu að þáttunum. Á kvöld-
in og um helgar voru þeir einir en
höfðu aðgang að hjúkrunarfólki á
bakvakt. Að sögn Rúnars voru kepp-
endur í mikilli einangrun á meðan á
tökum stóð. „En það er svo sem til-
gangurinn með þessu. Að taka okk-
ur út úr umhverfinu okkar og gefa
okkur tækifæri til að einbeita okkur
að því að léttast. En við vorum ekk-
ert læst inni, við hittum fólk reglu-
lega og síðan voru möguleikar á
símtölum heim eins og er í erlendu
útgáfum þáttanna - en við þurftum
svo sannarlega að vinna fyrir þeim,“
útskýrir hann. Rúnar segir að þátt-
takan hafi verið erfið og muni vera
það áfram. Á sama tíma hafi ver-
ið mjög skemmtilegt að takast á við
þetta. „Í þessu prógrammi er erfitt
að gera upp á milli hvað er erfiðast
í þessu öllu saman. En ef ég á að
nefna eitthvað þá er það að horfast
í augu við það hversu illa var kom-
ið fyrir mér.“
Finnur mun á
hverjum degi
Rúnar segir að honum hafi heilt yfir
liðið vel frá því að hann hóf þátttöku
í þættinum. „Með hverjum degin-
um sem líður finn ég einhvern mun
á mér og reglulega er ég að ná mark-
miðum sem ég hef sett mér. Það er
mikill hvati.“ Eins og gengur þegar
raunveruleikaþættir eru teknir upp,
þá er oft dramatík í loftinu. Að sögn
Rúnars var það líka raunin á Ásbrú.
„Það er vissulega við því að búast að
það sé mikið drama þegar svona pró-
gram er í gangi. Fólk er að eyða svo
miklu púðri við að horfa inn á við.
En á sama tíma er ég þess heiðurs
aðnjótandi að deila þessari reynslu
með frábæru fólki, sem ég er stoltur
að kalla vini mína núna,“ segir Rún-
ar. Hann bætir því við að þátttakan
hafi verið mjög skemmtileg upplifun
til þessa og muni bara verða betri.
Fyrsta skrefið
mikilvægast
Rúnar hefur sett sér það markmið
að koma þyngdinni niður í 105 - 110
kg. Hann segir lykilatriðið þó vera
að geta gert það sem hann vill, þegar
honum langar. „Það sem tekur við
núna er einfaldlega að halda áfram
og byggja á árangrinum og viðhalda
breyttum lífsstíl.“ Aðspurður hvort
hann hafi ráð handa fólki sem lang-
ar að léttast en kemst ekki af stað
segir hann: „Það mikilvægasta er að
taka fyrsta skrefið. Einnig er mik-
ilvægt að setja sér skýr og raunhæf
markmið og skrá þau niður einhvers
staðar þar sem þú sérð þau daglega.
Einnig skal viðkomandi hafa í huga
að þúsund mílna ferðalag hefst á
einu skrefi.“ grþ
Þúsund mílna ferðalag hefst á einu skrefi
Vestlendingur tekur þátt í Biggest Loser Ísland-2:
Rauði krossinn á Íslandi hefur
opnað fyrir neyðarsöfnun á vetr-
arfatnaði sem verður komið til
úkraínskra flóttamanna í Hvíta-
Rússlandi. Rauði krossinn hvet-
ur alla sem hafa tök á því til að
leggja söfnuninni lið með hvers
kyns prjónafatnaði, vetrarfatnaði
og skóm, eða hlýjum teppum. Sóst
er eftir fötum fyrir alla aldurshópa
og bæði kyn. Mikilvægt er að fata-
pokarnir sem ætlaðir eru úkra-
ínskum flóttamönnum séu merktir
„Úkraína“ áður en þeim er kom-
ið fyrir í fatagámum Rauða kross-
ins eða grenndargámum. Einnig
er tekið við fatnaði í miðstöð fata-
söfnunar Rauða krossins í Skútu-
vogi 1 í Reykjavík.
Stjórnmálalandslagið í Úkraínu
hefur verið vægast sagt óstöðugt á
árinu sem er að líða. Óeirðir brut-
ust út í febrúar á þessu ári þar sem
óbreyttir borgarar voru myrtir við
mótmæli. Átök hafa síðan geis-
að víða um landið en alvarlegust
hafa þau verið í austurhluta lands-
ins, við borgirnar Luhansk og Do-
netsk. Nú þegar hafa hátt í 750
þúsund Úkraínumenn þurft að
yfirgefa heimili sín. Hluti þeirra
hefur freistað þess að sækja um
pólitískt hæli í Hvíta-Rússlandi
en þar hefur Rauði krossinn á Ís-
landi stutt mannúðarverkefni um
nokkurra ára skeið. Eitt þeirra er
fatasöfnun, þar sem hlýjum vetr-
arfatnaði er safnað og dreift til
þeirra sem á þurfa að halda. Vetr-
arhörkurnar í Hvíta-Rússlandi
geta verið einkar harðar og hús-
in mörg illa kynt. Það er mikil-
vægt að átta sig strax á erfiðum
aðstæðum úkraínskra flóttamanna
í Hvíta-Rússlandi, sem þurftu að
yfirgefa heimili sín vegna stríðs-
átaka – margir hverjir allslausir og
illa búnir.
Hlutleysi er eitt af grunngild-
um Rauða krossins og því tek-
ur hann ekki afstöðu með annarri
hvorri stríðandi fylkingu. Rauði
krossinn tekur fyrst og fremst af-
stöðu með óbreyttum borgurum,
sem hafa þurft að súpa seyðið af
refskák stjórnmálamanna og her-
foringja.
-fréttatilkynning
Aron var vinsælasta eiginnafn ný-
fæddra drengja á árinu 2013 en
Katrín vinsælasta stúlkunafnið. Þór
var langvinsælasta annað eiginnafn-
ið hjá drengjum, en þar á eftir Freyr
og Máni. María var vinsælasta ann-
að eiginnafnið hjá stúlkum ásamt
Rós, en þessi nöfn hafa vermt annað
og fjórða sætið undanfarin ár. Á eft-
ir þeim kom stúlkunafnið Lilja sem
þriðja vinsælasta síðara eiginnafn ný-
fæddra stúlkna.
Í frétt Hagstofunnar segir að
þegar litið er á allan mannfjöldann í
ársbyrjun 2014 voru tíu algengustu
einnefnin og fyrstu eiginnöfnin al-
veg þau sömu og árið 2009. Hjá
körlum var Jón algengasta nafnið,
þá Sigurður og svo Guðmundur.
Af kvenmannsnöfnum er Guðrún
algengast, þá Anna og svo Krist-
ín. Tíu algengustu karl- og kven-
mannsnöfnin hafa verið þau sömu
frá 2009. Flestir landsmenn bera
fleiri en eitt nafn. Í ársbyrjun 2014
voru þrjár algengustu samsetning-
arnar hjá körlum Jón Þór, Gunn-
ar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einn-
ig algengustu tvínefnin fimm árum
fyrr. Hjá konum voru þrjár algeng-
ustu samsetningarnar Anna María,
Anna Margrét og Anna Kristín. Þetta
voru líka þrjú algengustu tvínefnin
árið 2009. Kvenmannsnafnið Anna
er hins vegar afar vinsælt sem fyrra
nafn, en hún reyndist fyrra nafnið í
sex af tíu algengustu tvínefnunum.
Flestir fæddust
27. september
Afmælisdagar á Íslandi dreifast ekki
jafnt yfir árið. Algengara er að börn
fæðist að sumri og á hausti en yfir
vetrarmánuðina, frá október og fram
í mars. Alls eru 51,5% allra afmælis-
dagana frá apríl til september. Í upp-
hafi árs 2014 gátu flestir átt von á því
að halda upp á afmælisdaginn 27.
september, alls 1.014 einstaklingar.
Fæstir áttu afmælisdag á hlaupárs-
dag, 29. febrúar, eða 208 manns. Að
öðru leyti eru jóladagur (657) og að-
fangadagur (707). mm
Aron og Katrín algengustu nöfnin 2013
Frá skírnarathöfn í Akraneskirkju í haust. Prestur er sr. Eðvarð Ingólfsson. Foreldr-
arnir heita Heiður Dögg Reynisdóttir og Þorbjörn Heiðar Heiðarsson. Stúlkan
heitir Fanney María.
RKÍ safnar vetrarfatnaði vegna
neyðarástands í Úkraínu
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með?
Áskriftarsími:
433 5500