Læknablaðið - 15.09.2005, Síða 3
RITSTJÓRNARGREINAR Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICALIOURNAL
643 Öndunarmælingar í heilsugæslu - tækifæri og takmarkanir
Gunnar Guðmundsson
644 Skráning krabbameina
Jóhannes Björnsson
645 Já, saga læknisfræðinnar!
Atli Þór Ólason
FRÆÐIGREINAR
649 Þekjun bólusetningar barna við Monkey Bay í Malaví
Þórður Þórarinn Þórðarson, Ásgeir Haraldsson, Halldór Jónsson,
Richard G. Chola, Geir Gunnlaugsson
Þróunarsamvinnustofnun íslands hefur unnið að uppbyggingu heilsugæslu í
Malaví um nokkurt skeið. Höfundar greinarinnar notuðu aðferðir alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar til að meta þekjun bólusetningar barna á aldr-
inum 12-23 mánaða í héraðinu Monkey Bay sunnan til í landinu. Eitt þeirra
vandamála sem heilbrigðisstarfsmenn á þessum slóðum í Afríku hafa við að
stríða eru erfiðar samgöngur og flóknar samskiptaleiðir.
657 Eftirlit með blóðþynningarmeðferð á heilbrigðisstofnun
Þingeyinga, gæðastjórnunarverkefni
Valur Helgi Kristinsson
Warfarín hefur verið notað í lækningaskyni í hálfa öld eða svo og notkun þess
eykst enda besta lyfið á markaði til að meðhöndla og fyrirbyggja bláæðasega
í ganglimum og víðar og til að fyrirbyggja blóðsegarek hjá sjúklingum með
gáttatif. Nokkrir annmarkar fylgja þó notkuninni: þörf á endurteknum blóð-
prufum og síbreytilegum skömmtum. Hér er athugað hversu vel gekk að stýra
blóðþynningarmeðferð frá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga eftir breytingar sem
gerðar voru á því eftirliti árið 2002.
661 Tungurótarskjaldkirtill (lingual thyroid) - sjúkratilfelli:
kona með fyrirferð í tungurót
Birgir A. Briem, Anna Björk Magnúsdóttir
Tungurótarskjaldkirtill er meðfæddur galli sem felst í því að villtur skjaldkirt-
ilsvefur hefur tekið sér bólfestu í tungurót. Þá hafa skjaldkirtilsfrumur villst
af leið og er ekki ljóst hvað veldur því. Fyrsta tilfelli þessa var lýst árið 1869.
Gallinn er iðulega einkennalaus og erfitt að giska á algengi hans. Hann er
kemur oftar við sögu hjá konum en körlum og verður einkenna helst vart við
kynþroska, þungun og á breytingaskeiði.
665 Frysting á aukaleiðsluböndum - nýjung í meðferð
hjartsláttartruflana
Davíð O. Arnar, Gizur Gottskálksson
Þróun brennsluaðgerða á aukaleiðsluböndum síðastliðna tvo áratugi hefur
orðið til þess að brennsla er nær því fyrsta meðferð við takttruflunum einsog
gáttasleglahringsóli. Á síðustu árum hafa til viðbótar þróast aðferðir til raflíf-
eðlisfræðilegrar einangrunar á lungnabláæðum sem hafa leitt til möguleikans
á að lækna gáttatif. Þessi nýja frystitækni hefur ýmsa kosti framyfir brennsl-
una.
9. tbl. 91. árg. september 2005
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
Læknafélög: 564 4100
Læknablaðið: 564 4104
Bréfasími (fax): 564 4106
Læknablaðið á netinu
www. laeknabladid. is
Ritstjórn
Emil L. Sigurðsson
Hannes Petersen
Jóhannes Björnsson
Karl Andersen
Ragnheiður Inga Bjarnadóttir
Vilhjálmur Rafnsson ábm.
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Brynja Bjarkadóttir
brynja@iis.is
Blaðamennska/umbrot
Þröstur Haraldsson
throstur@iis.is
Upplag
1.600
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun og bókband
Prentsmiðjan Gutenberg ehf.
Síðumúla 16-18
108 Reykjavík
Pökkun
Plastpökkun ehf.
Skemmuvegi 8m
200 Kópavogi
ISSN: 0032-7213
Læknablaðið 2005/91 639