Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2006, Page 5

Læknablaðið - 15.01.2006, Page 5
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS II M R Æ fl A 0 G F R É T T I R 36 Af sjónarhóli stjórnar LÍ: Heilbrigðisstjórnun og gæðastjórnun er eitt og hið sama Hugleiðingar eftir uppskeruhátíð IHI í Flórída Ófeigur Þorgeirsson 37 Nefnd um ofneyslu og hreyfingarleysi tekin til starfa Þröstur Haraldsson 39 Þagnarskyldan er til að vernda mannréttindi einstaklingsins Gunnar Ármannsson framkvæmdastjóri LÍ segir að tiltölulega skýrar reglur gildi um samskipti lækna og lögreglu í fíkniefnamálum Þröstur Haraldsson 42 Læknadagar eiga að vera fjölbreyttir Rætt við Örnu Guðmundsdóttur sem tók við formennsku í Fræðslustofnun lækna í lok Læknadaga í fyrra Þröstur Haraldsson 46 Bréf til blaðsins. Af tuskum Pétur Pétursson 47 íslensk heilbrigðissaga komin út Þröstur Haraldsson 49 Ný heimasíða Læknafélags íslands Davíð Björn Þórisson 50 Rafræn heilbrigðisþjónusta í sjónmáli Hægt að ljúka við Heilbrigðisnetið á 3-4 árum, segja Ingimar Einarsson og Benedikt Benediktsson í heilbrigðisráðuneytinu Þröstur Haraldsson 52 Samþykkt að sameina Lífeyrissjóð lækna og Almenna lífeyrissjóðinn Gunnar Baldvinsson 54 Opnunarerindi Læknadaga 2005. Heilsa, hagsæld og hamingja íslensku þjóðarinnar Arnór Víkingsson, Snorri Ingimarsson 56 Um lífsstíl og lífsvanda Erindi Sigurbjörns Einarssonar biskups við setningu Læknadaga 2005 Sigurbjörn Einarsson F A S T I R P I S T L A R 63 íðorð 183: Gervilíffæri og ígræði Jóhann Heiðar Jóhannsson 65 Lausar stöður/þing 66 Læknadagar 2006 75 OkkarámiIIi 76 Sérlyfjatextar 83 Ráðstefnur og fundir/styrkir Áriö 2006 fagnar Gjörninga- klúbburinn tíu ára afmæli sínu. Á vettvangi islenskrar myndlistar á þess- um áratug hafa fáir verið jafn ötulir í sýningahaldi, frumlegir í verkefnavali og metnaðarfullir í kynningu. Snemma á ferlinum mótuðust vinnuaðferðir sem æ síðan hafa einkennst af leik, örlæti, húmor, útsjónarsemi og vandvirkni sem hefur komið fram í uppákomum, Ijós- myndum, skúlptúrum, myndböndum og teikningum. Gjörningaklúbbinn skipa þrír myndlistarmenn, Eirún Sigurðar- dóttir (1971), Jóní Jónsdóttir (1972) og Sigrún Hrólfsdóttir (1973). Þær út- skrifuðust allar frá Myndlista- og hand- íðaskóla íslands árið 1996. Síðan hafa þær stundað framhaldsnám í Berlín, Kaupmannahöfn og New York. Þær eru nú allar búsettar í Reykjavík. Verkin þeirra spanna skrautlegan skala frá nánast ósýnilegum glærum teikningum til stærðar gjörninga sem jafnast á við risarokktónleika í sam- starfi við Slökkviliðið og fleiri aðila. Þær hafa einkennandi handbragð og myndmál sem sækir jafnt í þjóðlega og alþjóðlega strauma og þær nálgast islenska náttúru á ferskan hátt sem vísar bæði aftur í listasöguna og um leið til samtímans. Gott dæmi um sameiningu þessara þátta er þeirra nýjasta verk, Innrás - Útrás sem er gjörningur frá síðasta ári. Á forsíðu Læknablaðsins er mynd af undir- ritun samnings. Þar er Svartbakurinn þungamiðjan, hið tækifærissinnaða illfygli sem látinn er hegða sér eins og erindreki stjórnmála eða viðskipta með lobbíisma og samningagerð. Gjörningaklúbburinn notast iðulega við einfaldar táknmyndir, ýmist gamlar og þrungnar merkingu eða nýjar sem þær finna upp sjálfar. Með samsetningu ólíkra hluta auk óræðrar framvindu getur boðskapurinn verið misvísandi og margslunginn. En í gegnum yfir- borð hlaðið táknum og myndmáli má skynja einlæga endurspeglun á sam- félaginu sem við höfum skapað okkur, mannlegum samskiptum og tilfinning- um. Gjörningaklúbburinn titlar sig er- lendis The lcelandic Love Corporation og má nálgast frekari upplýsingar á vef þeirra, www.ilc.is Markús Pór Andrésson Læknadlaðið 2005/91 5

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.