Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2006, Side 15

Læknablaðið - 15.01.2006, Side 15
FRÆÐIGREINAR / MAGABOLSBÓLGA á ónæmisfræðideild Landspítala. Fyrir saltsýru- frumumótefni er stuðst við próf frá tilraunastöð Háskóla Islands í meinafræði (Keldum) eða ANA (anti nuclear antibody) skimpróf með líffærum (meðal annars maga) úr karl rottu, einnig er notað ELISA (ensyme linked immunofluorecence assay) próf (Varlisa frá Pharmacia og Upjohn). Fyrir skjaldkirtilsmótefni eru einnig notuð ELISA próf (Thymune-M og Thymune-T frá Murex) og fyrir saltsýruvaka mælingar er stuðst við RIA (radio immuno assay) mælingu með svokallaðri double antibody gastrin aðferð (Varelisa frá Diagnostic Products Corporation). Tölfræðiniðurstöður voru fengnar með chi squared og t- test. Siðanefnd FSA samþykkti rannsóknina og upp- lýst samþykki sjúklinga var fengið. Niðurstöður Alls voru 108 sjúklingar gjaldgengir í rannsóknina. Helstu ástæður speglana voru: meltingartruflun (dyspepsia), kviðverkir, blóðleysi (járnskortur, B 12 skortur), jákvætt saursýnir fyrir blóði, lystar- leysi. Meðalaldur var 71 ár og voru karlar 57%, aldursdreifing sýnd í mynd 1. Hjá 107 sjúklingum var mælt mótefni fyrir H. pylorí í sermi og reynd- ust 49 (45,8%) jákvæðir. í Urea breath test fóru 107 sjúklingar og voru 44 (41,1%) jákvæðir. Hjá 84 sjúklingum var tekið Clo test og voru 23 (27,4%) jákvæðir. Algengustu áhættuþættir fyrir magabolsbólgu reyndust vera H. pylorí (39%), sjálfsnæming (31%) eða blanda af hvoru tveggja, mynd 2. Nokkur fylgni reyndist vera á milli virkrar bólgu og að vera H. pylorí jákvæður, einkum ef einung- is er til staðar langvinn magabólga án visnunar eða vefjaummyndun. Magabolsvisnun reyndist marktækt meiri ef til staðar var saltsýrufrumu- mótefni, mynd 3. Engin tengsl reyndust á milli salt- sýrufrumumótefna og skjaldkirtilsmótefna. Ekki Mynd 3. Meðaltalsgráða visnunar er marktœkt hœrri ef mótefni eru til staðar. Mynd 2. Algengustu áhœttuþættir magabolsbólgu í rannsókninni. reyndist vera marktækur munur á saltsýrufrumu- mótefnum milli H. pylori jákvæðra og neikvæðra. Einstaklingar með magabolsvisnun eða vefjaum- myndun hafa hærra meðaltalsgildi saltsýruvaka samanborið við þá sem hafa einungis langvinna bólgu, (p<0,05), mynd 4, og einnig hjá þeim sem Mynd 4. Marktœkl hærra meðalgildi saltsýruvaka efvisnun eða vefjaummyndun er til staðar, p<0,05. Læknablaðið 2006/92 15

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.