Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 36

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 36
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Heilbrigðisstjórnun og er eitt og hið sama Hugleiðingar eftir uppskeruhátíð IHI í Flórída Ófeigur Þorgeirsson ofeigur@landspitali.is Höfundur er lyflæknir og heimilislæknir, starfandi á Landspítala, og ritari í stjórn LÍ. I pistlunum Af sjónarholi stjórnar birta stjórnarmenn LI sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Dagana 11.-14. desember síðastliðinn hélt IHI (Instilute for Healthcare Improvement) sína ár- legu uppskeruhátíð í Orlando í Flórída. Þessi stofnun sem er mörgum íslenskum læknum að góðu kunn var stofnuð árið 1991 af Donald Ber- wick, barnalækni í Boston. IHI tekur þátt í og leiðir fjölmörg samstarfsverkefni um allan heim á sviði gæðamála og heilbrigðisstjórnunar. Verk- efnin eru fjölbreytt og má þar nefna innleiðingu virkrar meðferðar við eyðni í Afríku, lækkun nýburadauða í Rússlandi, fækkun ónauðsynlegra dánartilfella á sjúkrahúsum, hönnun/innleiðingu nýs módels í stofulækningum og betrumbætur og nútímavæðingu í stjórnun heilbrigðisstofnana. IHI tók upp þau markmið sem birtust í riti Institute of Medicine „Crossing the Quality Chasm“ þar sem öryggi, sjúklingamiðun, sparnaður, skilvirkni, ár- angur og jafnræði var sett á oddinn. Á samkomunni í ár voru 5500 þátttakendur, þar af um 500 frá öðrum löndum en Bandaríkjunum. Á ráðstefnunni voru margar vinnubúðir þátttakenda og svokallaðir „mini-courses“ en hvort tveggja bygg- ist á mikilli þátttöku viðstaddra. Vegna þessa var samkoman mun meira gefandi og ánægjulegri fyrir vikið. Þarna kynntist maður ekki einungis skoðunum þeirra sem fóru fyrir hveijum viðburði, heldur einnig viðhorfum annarra þátttakenda sem oftast endur- spegluðu mikla kunnáttu. Af nágrannaþjóðum okkar er það að segja að Danir kynntu verkefni sem miðar að því að út- rýma tjóðrun sjúklinga á geðdeildum á landsvísu. Mjög metnaðarfullt verkefni. Svíar kynntu meðal annars styttingu biðtíma sjúklinga heilsugæslunnar í Jönköping og nágrenni. Frá Noregi hitti ég tvo starfsmenn læknafélagsins sem sinna faglegum gæðamálum og útdeila styrkjum læknafélagsins í ýmis verkefni tengd gæðum. Frá íslandi voru sex þátttakendur, fjórir læknar frá Landspítala og tveir starfsmenn frá skrifstofu Heilsugæslunnar í Reykjavík. Bretar mættu sterkir til leiks, voru fjöl- mennir og stýrðu allnokkrum viðburðum. Ljóst er að mikil samvinna er á milli hins breska NHS og IHI. I þessu sambandi má geta þess að Elísabet Bretadrottning aðlaði Donald Berwick í byrjun desember fyrir framlag hans til umbóta innan bresku heilbrigðisþjónustunnar. Ástralir og Ný- sjálendingar kynntu mörg gæðaverkefni. Ástralir kynntu meðal annars stórt verkefni við innleiðingu meðferðarmódels á sviði langvinnra sjúkdóma í jornun heilsugæslu og náði til hvorki meira né minna en 600 læknastofa. Það fer ekki framhjá manni eftir þessa ráðstefnu að hin anglósaxneski heirnur er ekki einungis á blússandi siglingu í gæðamálum heldur einnig í nýsköpun heilbrigðisstjórnunar. Af einstökum viðburðum langar mig að nefna kynningu hins hollenska Vim Schelkens sem er læknir og forstjóri Reiner de Graaf sjúkrahússins í Delfi, Hollandi. Fjallaði hann um verkfæri til gæða- vinnu innan heilbrigðisstofnana. Ræddi hann í því sambandi að „láta gæði gerast“ (making quality happen) með áherslu á ferla. Sjúklingamiðuð heil- brigðisþjónusta var honum ofarlega í huga og ljóst er að ekki þykir lengur við hæfi að tala á nótum stofnanamiðaðra vinnubragða. Ef eitthvað hentar ekki sjúklingum í þjónustunni þá er það heilbrigð- isstarfsmanna að bregðast við því. Nefndi hann að ná þyrfti öllum saman sem snerta gæðamál á hverj- um stað (þverfaglegt). - Gerði hann greinarmun á faglegum gæðum annars vegar og stofnana- tengdum gæðum hins vegar og þetta tvennt þyrfti að fylgjast að hönd í hönd. Þörf áminning fyrir þá sem ætla einir af stað með gæðaverkefni. Hinn títtnefndi „shame-blame“ kúltúr á ekki heima í gæðaumræðu, fremur en annars staðar. Þannig ræddi hann að gera gott betra, fremur en að slæmt verði gott. Að lokum talaði hann um að leiða með fordæmi og aðrir munu fylgja. Þörf áminning fyrir karla eins og mig sem hafa meira gaman af því að tala en að gera. Lynn Maher frá hinu breska NHS ásamt David Gustafson frá Wisconsin háskóla leiddu vinnu- búðir um viðhald gæðaverkefna. Eitt af stóru vandamálum þeirra sem leiða gæðamál er stuttur lifitími slíkra verkefna. I því sambandi var fjallað um hvernig gæðavinna endaði oft sem einangrað fyrirbæri sem næði ekki að dreifa sér og viðhalda. Viðhald gæðavinnu felur í sér að halda því sem áunnist hefur og að þróa verkefnið áfram. Þá gild- ir að þekkingu og reynslu sé deilt á báða bóga. Viðhald er að mati þeirra ekki minna orkukrefj- andi en að koma verkefnum og gæðakúltúr af stað. David Gustafson líkti vinnu við viðhald gæða við meðferð langveikra og færði góð rök fyrir þeirri samlíkingu. Þótti mér þetta áhugavert. Á ráðstefn- unni var mikið rætt uin verkfæri til gæðavinnu og bar þar mest á svonefndum PDSA-hringferli (Plan-Do-Study-Act) sem er kennt við Tomas Nolan hjá IHI og góð reynsla er af. Gildir þar 36 Læknablaðið 2006/92
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.