Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 37

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 37
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ / OFNEYSLUVANDINN að gera lítið og einfalt í nánast endalausum og síendurteknum hringferlum. PDSA fellur vel að vinnubrögðum heilbrigðisstarfsmanna. Best er að leggja af stað með lítið og einfalt, helst eftir stutt- an undirbúning, mæla síðan það sem gert var. Að lokum eru gerðar nauðsynlegar breytingar á sama verkefni áður en næsti hringur er farinn. í þessu sambandi er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir að langur undirbúningur ásamt langri úrvinnslu drep- ur flest gæðaverkefni. Anne Lewis frá IHI og forstjóri CareSouth heilbrigðisstofnuninnar í Suður-Karólínu ræddi hlutverk heilbrigðisstjórnenda í gæðamálum. Ljóst er að mikil þróun á sér stað í stjórnunarmálum heilbrigðisstofnana þar sem stjórnendur án mikilla tengsla við framlínu starfseminnar munu brátt heyra sögunni til. Það var ljóst á tali hennar, og reyndar flestra sem ég ræddi við og hlustaði á, að gæðamál þyrftu að vera á borðum stjórnenda og stjórnarnefnda heilbrigðisstofnana frá byrjun. Á CareSouth eru allir stjórnarfundir gæðafundir enda hefur það sýnt sig að ekkert eitt hefur jafnmikil áhrif á rekstur og fjármál og innbyggð gæðavinna í rekstri heilbrigðisstofnana. Nú er mælt með að róa á mið nýsköpunar. Of miklar breytingar hafa átt sér stað til að hægt sé að lappa upp á gamla kerfið þannig að það mæti þörfum samtímans. Undir þessum umræðum hefði verið gaman að sitja við hliðina á einhverjum úr ráðuneytinu okkar! Af mörgu öðru er að taka en plássins vegna ætla ég ekki að hafa fleiri orð um þessa hátíðar- samkomu sem maður upplifði í hitanum í Flórída. Og hitinn stafaði mest af þeim skriðþunga sem málefni gæðaþróunar í heilbrigðismálum hafa náð. Spennandi tímar eru framundan. Pað er löngu tímabært að við íslenskir læknar förum að líta uppúr gamalgrónum aðferðum við útfærslu heilbrigðisþjónustu. Okkar góða þekking sem við öflum okkur í námi skilar sér ekki til sjúklingsins í eins miklum mæli og æskilegt (eða nauðsynlegt) er. Kerfinu þarf að breyta. Ef þessi umræða tekst ekki á flug á næstu misserum er mikil hætta að við missum af lestinni. Sá sem tapar þá mest verður sjúklingurinn sem situr á móti okkur og við öll sem borgum skatta til að viðhalda eyðslufreku kerfi sem skilar ekki nægjanlega miklu. Þess vegna vona ég að fleiri læknar sjái sér fært að koma á ráðstefnu IHI að ári liðnu. Hvet ég hjúkrunarfræðinga og stjórnendur heilbrigðisstofnana til að íhuga slíkt hið sama. Að lokum vil ég þakka samferðamönnum mínum fyrir ánægjulega samfylgd á ráðstefnuna, þeim Hildi Harðardóttur, yfirlækni á kvennadeild, Maríu Heimisdóttur sérfræðilækni á skrifstofu lækningaforstjóra og Óskari Einarssyni, sérfræði- lækni á Lyflækningasviði, öll á Landspítala. Nefnd um ofneyslu og hreyfingarleysi tekin til starfa Um þessar mundir eru haldnir reglulegir fundir í húsakynnum læknafélaganna í Hlíðasmára. Þar er að verki nefnd sem einhverjir kalla Þorgrímu en hún hefur það hlutverk að greina „vanda sem teng- ist óhollu mataræði, offitu, átröskun og hreyfingar- leysi“ eins og segir í skipunarbréfi forsætisráðherra frá 31. október síðastliðnum. Ofangreint nafn dregur nefndin af formanni sínum sem er Þorgrímur Þráinsson blaðamaður en aðrir nefndarmenn eru: Sigurbjörn Sveinsson formaður Læknafélags íslands, dr. Jón Óttar Ragnarsson næringarfræðingur, Halla Karen Kristjánsdóttir íþróttakennari, Anna Ólafsdóttir forstjóri Lýðheilsustöðvar, Sæunn Stefánsdóttir aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, Árni Einars- son uppeldis- og menntunarfræðingur, Petrína Baldursdóttir leikskólastjóri og Valur N. Gunn- laugsson matvælafræðingur. Nefndin er skipuð í framhaldi af þingsályktun sem Alþingi samþykkti í maí síðastliðnum en það var Læknafélag Islands sem átti frumkvæðið að samþykkt hennar. „Umræðan um afleiðingar offitu hafa farið vaxandi eftir aldamótin og ég beindi því á sínum tíma til innkirtlafræðinga að þeir skyldu hafa for- ystu í umræðum um þörf á sérstökum viðbrögðum við þessum vanda,“ sagði Sigurbjörn Sveinsson í spjalli við Læknablaðið. „Eg heyrði í nýskipuðum landlækni Bandaríkjanna skýra frá því að forsetinn hefði sagt honum að vandamál tengd offitu skyldu hafa algjöran forgang í störfum hans og eftir það færði ég þetta í tal á aðalfundi LÍ haustið 2002. Ég taldi það vera í verkahring lækna að hafa frum- kvæði og eftir umræður í stjórn LÍ sendum við heilbrigðis- og trygginganefnd þingsins drög að tillögu til þingsályktunar í febrúar 2003. Leitaði Þröstur Haraldsson Læknablaðið 2006/92 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.