Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 42

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNADAGAR Læknadagar eiga að vera fjölbreyttir Rætt við Örnu Guðmundsdóttur sem tók við formennsku í Fræðslustofnun lækna í lok Læknadaga í fyrra Arna Guðmundsdótlir for- maður Frœðslustofnunar lœkna og undirbúnings- nefitdar Lœknadaga. Þröstur Haraldsson Læknadagar eru í aðsigi og eflausl margir farnir að hlakka til þeirra, þó ekki væri nema árshátíðar- innar sem þeim lýkur með. Undirbúningsnefndin hefur staðið í ströngu við að framreiða sem girnilegasta dagskrá en hún lýtur nú forystu nýs formanns: Arnór Víkingsson hætti að loknum Læknadögum í fyrra en við af honum tók Arna Guðmundsdóttir. Læknablaðið hitti Örnu að máli og innti hana eftir því hvernig undirbúningurinn hefði gengið. Arna sem er sérfræðingur í lyflækningum og efnaskiptasjúkdómum á Landspítala eignaðist barn í apríl. „Ég fór í fæðingarorlof og það kom sér vel að vera ekki í fullri vinnu meðan undirbúning- ur Læknadaga stóð sent hæsl. Ég tók vissulega við góðu búi þar sem allt var í traustum farvegi en það er mikið púsl sem fylgir því að koma dagskránni saman,“ sagði Arna. Það hefur líka verið ómetan- legt að hafa vanan starfsmann hjá Læknafélaginu, hana Margréti Aðalsteinsdóttur, til þess að halda ulan um alla skipulagninguna. Arna sagði að læknar sýndu Læknadögum mikinn áhuga og nefndin hefði fengið fjölmargar ábendingar um fyrirlesara og efni. „Það var tölu- verð vinna að velja og hafna úr öllum tillögunum og passa að ekki yrði mikil endurtekning milli ára. Við höfum það að leiðarljósi að þingið verði sem fjölbreyttast en af einhverjum ástæðum fór það svo núna að barnalækningar eru talsvert fyrirferðar- miklar í dagskránni. Við reynum þó að koma hlut- unum þannig fyrir að ekki sé boðið upp á fleiri en eitt málþing í sömu grein á sama tíma,“ segir hún. Einhverfa og hamfaralækningar Meðal þess sem fellur undir barnalækningar er málþing um einhverfu sem haldið er í tilefni af 20 ára afmæli Greiningarstöðvar ríkisins. Annað málþing er um langvinn veikindi áhættubarna þar sem þekktur breskur Iæknir, Neil Marlow frá Nottingham, heldur erindi um veikindi lítilla fyr- irbura en um það efni skrifaði hann grein í New England Journal of Medicine sent vakti mikla athygli. Af öðrum málþingum sem Arna benti á má nefna þing um ristilkrabbamein og annað um HOUPE-rannsóknina á heilsufari lækna þar sem staða hennar verður kynnt. Arna sagði að auk erinda um klíníska læknis- fræði væri það orðin venja að bjóða upp á erinda- flutning um ýmislegt sem snertir heilbrigðiskerfið og starfskjör lækna. „Það verður nteðal annars fjallað um starfsframa lækna og óvenjulegan starfsferil þar sem læknar sem tekið hafa þátt í þróunarhjálp og starfað að hamfaralækningum miðla reynslu sinni. A þriðjudagskvöldinu verður fjallað um þróun starfsferils, framhaldsmenntun á íslandi og framtíð íslenska heilbrigðiskerfisins, svo eitthvað sé nefnt. Og að sjálfsögðu verður slegið á léttari strengi. Spekingarnir glíma að vanda í lok þingsins en við setningu þess flytur Davíð Oddsson erindi þar sem hann segir frá reynslu sinni af sam- skiptum við Iækna.“ Söknum spítalalæknanna Eins og dagskrá Læknadaga ber með sér verða þeir stöðugt umfangsmeiri og innihaldsríkari. Það kostar að sjálfsögðu fé og í hitteðfyrra var farið inn á þá braut að taka gjald af þátttakendum á þinginu. „Það blasir við okkur að taka fjármögnun Læknadaga til endurskoðunar og finna fleiri leiðir til að standa straum af kostnaðinum. Ein leiðin er sú að hækka ráðstefnugjaldið en við þurfum einnig að vera opin fyrir fleiri leiðum til fjármögnunar. Eins og er styrkir GlaxoSmithKline þinghaldið, auk þess sem önnur lyfjafyrirtæki styrkja einstök málþing eða fyrirlesara. Læknadagar þurfa hins 42 Læknabladið 2006/92
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.