Læknablaðið - 15.01.2006, Blaðsíða 42
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LÆKNADAGAR
Læknadagar eiga að vera fjölbreyttir
Rætt við Örnu Guðmundsdóttur sem tók við formennsku í Fræðslustofnun lækna í lok
Læknadaga í fyrra
Arna Guðmundsdótlir for-
maður Frœðslustofnunar
lœkna og undirbúnings-
nefitdar Lœknadaga.
Þröstur
Haraldsson
Læknadagar eru í aðsigi og eflausl margir farnir
að hlakka til þeirra, þó ekki væri nema árshátíðar-
innar sem þeim lýkur með. Undirbúningsnefndin
hefur staðið í ströngu við að framreiða sem
girnilegasta dagskrá en hún lýtur nú forystu nýs
formanns: Arnór Víkingsson hætti að loknum
Læknadögum í fyrra en við af honum tók Arna
Guðmundsdóttir. Læknablaðið hitti Örnu að máli
og innti hana eftir því hvernig undirbúningurinn
hefði gengið.
Arna sem er sérfræðingur í lyflækningum og
efnaskiptasjúkdómum á Landspítala eignaðist
barn í apríl. „Ég fór í fæðingarorlof og það kom sér
vel að vera ekki í fullri vinnu meðan undirbúning-
ur Læknadaga stóð sent hæsl. Ég tók vissulega við
góðu búi þar sem allt var í traustum farvegi en það
er mikið púsl sem fylgir því að koma dagskránni
saman,“ sagði Arna. Það hefur líka verið ómetan-
legt að hafa vanan starfsmann hjá Læknafélaginu,
hana Margréti Aðalsteinsdóttur, til þess að halda
ulan um alla skipulagninguna.
Arna sagði að læknar sýndu Læknadögum
mikinn áhuga og nefndin hefði fengið fjölmargar
ábendingar um fyrirlesara og efni. „Það var tölu-
verð vinna að velja og hafna úr öllum tillögunum
og passa að ekki yrði mikil endurtekning milli ára.
Við höfum það að leiðarljósi að þingið verði sem
fjölbreyttast en af einhverjum ástæðum fór það svo
núna að barnalækningar eru talsvert fyrirferðar-
miklar í dagskránni. Við reynum þó að koma hlut-
unum þannig fyrir að ekki sé boðið upp á fleiri en
eitt málþing í sömu grein á sama tíma,“ segir hún.
Einhverfa og hamfaralækningar
Meðal þess sem fellur undir barnalækningar er
málþing um einhverfu sem haldið er í tilefni af
20 ára afmæli Greiningarstöðvar ríkisins. Annað
málþing er um langvinn veikindi áhættubarna
þar sem þekktur breskur Iæknir, Neil Marlow frá
Nottingham, heldur erindi um veikindi lítilla fyr-
irbura en um það efni skrifaði hann grein í New
England Journal of Medicine sent vakti mikla
athygli. Af öðrum málþingum sem Arna benti á
má nefna þing um ristilkrabbamein og annað um
HOUPE-rannsóknina á heilsufari lækna þar sem
staða hennar verður kynnt.
Arna sagði að auk erinda um klíníska læknis-
fræði væri það orðin venja að bjóða upp á erinda-
flutning um ýmislegt sem snertir heilbrigðiskerfið
og starfskjör lækna. „Það verður nteðal annars
fjallað um starfsframa lækna og óvenjulegan
starfsferil þar sem læknar sem tekið hafa þátt í
þróunarhjálp og starfað að hamfaralækningum
miðla reynslu sinni. A þriðjudagskvöldinu verður
fjallað um þróun starfsferils, framhaldsmenntun á
íslandi og framtíð íslenska heilbrigðiskerfisins, svo
eitthvað sé nefnt. Og að sjálfsögðu verður slegið á
léttari strengi. Spekingarnir glíma að vanda í lok
þingsins en við setningu þess flytur Davíð Oddsson
erindi þar sem hann segir frá reynslu sinni af sam-
skiptum við Iækna.“
Söknum spítalalæknanna
Eins og dagskrá Læknadaga ber með sér verða
þeir stöðugt umfangsmeiri og innihaldsríkari. Það
kostar að sjálfsögðu fé og í hitteðfyrra var farið
inn á þá braut að taka gjald af þátttakendum á
þinginu. „Það blasir við okkur að taka fjármögnun
Læknadaga til endurskoðunar og finna fleiri leiðir
til að standa straum af kostnaðinum. Ein leiðin er
sú að hækka ráðstefnugjaldið en við þurfum einnig
að vera opin fyrir fleiri leiðum til fjármögnunar.
Eins og er styrkir GlaxoSmithKline þinghaldið,
auk þess sem önnur lyfjafyrirtæki styrkja einstök
málþing eða fyrirlesara. Læknadagar þurfa hins
42 Læknabladið 2006/92