Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 46

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 46
UMRÆÐA & FRÉTTIR / BRÉF TIL BLAÐSINS Af tuskum Pétur Pétursson Höfundurer læknirá Akureyri. Forysta læknasamtakanna auglýsti nýverið sið- ferðisstyrk sinn og dómgreind fyrir alþjóð og um- heiminum með því að reka ritstjóra Læknablaðsins eftir 12 ára glæsilegan feril. Mun það hafa verið gert að boði athafnaskálds nokkurs, sem forðum tíð öðlaðist íslenzkt lækningaleyfi með afbrigð- um gegn drengskaparyfirlýsingu um að vinna af sér þriggja mánaða héraðsskyldu sína í fyllingu tímans. Ekki fer frekari sögum af þeirri fyllingu. Nokkrir samstarfsaðilar umrædds athafnaskálds höfðu áður sagt af sér sem ritnefndarmenn vegna ágreinings við hinn brottrekna ritstjóra, en nú hafa sumir þeirra verið kallaðir aftur til starfa við Læknablaðið, þannig að enginn þarf að fara í graf- götur unt afstöðu forystu læknafélaganna í deilum þessum, eftir að hún hafði tekið við fyrirmælum og hótunum frá lögmanni Kára Stefánssonar í máli þessu. Það hafði komið fram í leiðurum blaðsins, að það var sérslakt áhugamál hins burtflæmda ritstjóra að Læknablaðið markaði sér þá stefnu, að gerð væri grein fyrir öllum hagsmunatengslum vísindamanna og greinahöfunda blaðsins við fyrir- tæki á samkeppnismarkaði. Eitthvað munu þær hugmyndir hans hafa fengið misjafnar undirtektir, þótt nú til dags leggi öll metnaðarfull læknatíma- rit mikla áherzlu á að draga slíkt upp á borðið og jafnframt að varðveita sjálfstæði ritstjórnanna gagnvart stórfyrirtækjum í heilsutengdum greinum (1-2). Ekki get ég annað sagt en að stjórnarmenn LÍ og LR hafi komið mér nokkuð á óvart með undir- lægjuhætti sínum og skammsýni og hefur maður þó ýmsu kynnst úr þeirri átt hér áður fyrr. Fyrir tæpum áratug yfirgaf ég þessi samtök, þar sem þau virtust leggja meiri áherzlu á að gæta stundarhags- muna fjáraflamanna úr læknastétt en að stuðla að endurbótum á heilbrigðiskerfinu, notendum þess til hagsbóta. Hefur mér vegnað ágætlega utan þessa félagsskapar og einskis farið á mis. Hef auk- inheldur hvað eftir annað verið kallaður til viðvika fyrir læknafélögin. Ég hef hins vegar hingað til haldið tryggð við Læknablaðið og greitt áskrift- argjöld þess, enda þótt blaðið hafi verið aðgengi- legt á netinu. Af þeim sökum er ég hneykslaður á fyrrgreindum ákvörðunum, sem hafa munu afar skaðleg áhrif á trúverðugleika blaðsins og valda íslendingunt álitshnekki í hinu alþjóðlega vísinda- samfélagi. Hér er um mjög afgerandi stefnubreytingu að ræða hjá stjórn Læknafélags íslands, sem á und- anförnum árunt hefur unnið ötullega að því að styrkja vísindasiðferði meðal íslenzkra lækna og í flestum tilfellum staðið af sér ásókn gróðaafla. Formaður félagsins hefur oft tekið einarða af- stöðu gegn mútuþægni stéttarinnar í samskiptum við lyfjaiðnaðinn. Þessi nýtilkomna undanlátssemi stjórnarinnar við Kára Stefánsson og sú aðferð, sem stjórnin velur til að þakka Vilhjálmi Rafnssyni ritstjórnarstörfin, verður því að teljast stórfrétt og stéttinni allri til skammar. Kjarni þessa máls er sá, að forysta læknasam- takanna hefur brugðist Læknablaðinu, lesendum þess ogóháðu vísindastarfi íslenzkra lækna. Heiður blaðsins sent trúverðugs fræðitímarits hefur verið traðkaður í svaðið með því að taka við boðum frá samkeppnisfyrirtæki, sem er að hasla sér völl í lyfjageiranunt. Sá flekkaði skjöldur verður ekki fægður af ritstjórnarmönnum, sem eiga áframhald- andi vísindaframa sinn undir duttlungum forstjóra deCode Genetics. Af þeim sökunt kýs ég að segja upp áskrift minni að blaðinu. Heimildir 1. www. wame.org/wcimestmt.htm 2. www.icmje.org 46 Læknablaðið 2006/92
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.