Læknablaðið - 15.01.2006, Qupperneq 52
UMRÆÐA & FRETTIR / LIFEYRISMAL
Samþykkt að sameina Lífeyríssjóð lækna
og Amenna lífeyrissjóðinn
Gunnar
Baldvinsson
Gunnar. Baldvinsson
@isb.is
Höfundur er framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs lækna og
Almenna lífeyrissjóðsins.
Sjóðfélagar í Lífeyrissjóði lækna og Almenna
lífeyrissjóðnum hafa samþykkt að sameina lífeyris-
sjóðina frá og með 1. janúar 2006. Sameinaður
lífeyrissjóður mun heita Almenni lífeyrissjóðurinn
og verður hann 5. stærsti lífeyrissjóður landsins.
Heildareignir sjóðsins verða rúmlega 60 milljarðar
um áramótin og skráðir sjóðfélagar um 25000.
Almenni lífeyrissjóðurinn er traustur lífeyrissjóð-
ur sem hentar þeim sem geta valið lífeyrissjóð og
vilja greiða viðbótariðgjöld til að auka ráðstöfun-
artekjur sínar á eftirlaunaárunum. Aðild að sjóðn-
um er öllum opin en jafnframt er sjóðurinn starfs-
greinasjóður arkitekta, leiðsögumanna, lækna,
tónlistarmanna og tæknifræðinga.
Lífeyrissjóður lækna var stofnaður 1967 og
hafði því starfað í núverandi mynd í 38 ár. Aðrir
sjóðir sem hafa sameinast í Almenna lífeyris-
sjóðinn eru Lífeyrissjóður arkitekta stofnaður
1967, Lífeyrissjóður starfsmanna SÍF stofnaður
1968, Lífeyrissjóður FÍH stofnaður 1970, Lífeyris-
sjóður Félags leiðsögumanna stofnaður 1977, Líf-
eyrissjóður Tæknifræðingafélags Islands stofnaður
1965 og ALVÍB stofnaður 1990.
Lágmarksiðgjald verður 10% af launum
Lágmarksiðgjald í sameinuðum sjóði verður
10% af launum og skiptist þannig að 2% greið-
ast í séreignarsjóð og 8% í samtryggingarsjóð.
Lágmarksiðgjald í Lífeyrissjóð lækna var hins vegar
11% af launum og greiddist allt í samtryggingar-
sjóð. Tilgangurinn með þessari breytingu er að
auka svigrúm sjóðfélaga þegar kemur að töku
lífeyris en kosturinn við séreignarsjóði er að sjóð-
félagar hafa meira val um hvernig þeir fá greiddan
lííeyri.Viöbótariðgjald (iðgjald umfram 10% af
launum) er greitt í séreignarsjóð.
Samkvæmt kjarasamriingum sjúkrahúslækna
eru heildariðgjöld í lífeyrissjóð fyrir lækna 14% af
launum. Af þeim verða 10% greidd sem lágmarks-
iðgjald og 4% sem viðbótariðgjald. Heildarið-
gjaldið skiptist þá þannig að 8% greiðast í sam-
tryggingarsjóð og 6% í séreignarsjóð.
í Almenna lífeyrissjóðnum geta sjóðfélagar
nýtt viðbótariðgjaldið til að kaupa viðbótarör-
orkutryggingar. Peir geta einnig óskað eftir því að
greiða hærra hlutfall af launum í samtryggingar-
sjóð til þess að auka lífeyrisréttindi.
Val um ávöxtunarleiðir
í séreignarsjóði Almenna lífeyrissjóðsins geta sjóð-
félagar valið á milli fjögurra verðbréfasafna, Ævi-
safna I, II, III og IV með mismunandi ávöxtun og
áhættu. Sjóðfélagar geta valið sér safn ýmist eftir
því hversu mikla áhættu þeir vilja taka eða eftir
aldri. Þeir geta líka valið Ævileiðina en þá flyst
inneign þeirra milli safna eftir aldri.
Nýtt skipulag samtryggingarsjóðs
Samtryggingarsjóður sameinaðs lífeyrissjóðs verð-
ur með nýju skipulagi. I því felst að samtrygging-
arsjóðnum verður skipt í þrjár deildir:
• Tryggingadeild sem greiðir örorku-, maka-
og barnalífeyri.
• Eftirlaunadeild sem ávaxtar fé sjóðfélaga til
að tryggja þeim ellilífeyrisgreiðslur til ævi-
loka.
• Lífeyrisdeild sem greiðir ellilífeyri til ævi-
loka og makalífeyri til maka látinna lífeyris-
þega.
Sá hluti iðgjalds í samtryggingarsjóð sem ætl-
aður er til að tryggja ellilífeyri til æviloka verður
lagður í sérstakan eftirlaunasjóð á nafni hvers
sjóðfélaga. Þegar sjóðfélagar hefja töku lífeyris í
starfslok er sjóðnum breytt í ævilangan ellilífeyri.
Eftirlaunasjóðurinn erfist ekki við fráfall sjóðfé-
laga.
Valkostir lækna við sameiningu
Til að hjálpa sjóðfélögum að aðlagast breyttum
reglum um ávinnslu makalífeyris í framtíðinni er
læknum gefinn kostur á að hluta af eftirlaunarétt-
indum verði varið til
1) að tryggja maka fjölskyldulífeyri (ein-
greiðslu) ef sjóðfélagi fellur frá fyrir 67 ára
aldur. Fjárhæðin lækkar með aldrinum þar
sem séreignarsjóður sem erfist við fráfall
byggist upp á móti.
2) að greiða í séreignarsjóð allt að 20% af eftir-
launaréttindum.
Sjóðurinn mun senda sjóðfélögum eyðublað um
þessa valkosti sem verður að skila til sjóðsins fyrir
25. janúar 2006. Fram að þeim tíma geta sjóðfé-
lagar komið á skrifstofu sjóðsins og fengið ráðgjöf.
Einnig verður haldinn kynningarfundur finimtu-
52 Læknablaðið 2006/92