Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 56

Læknablaðið - 15.01.2006, Síða 56
UMRÆÐA & FRÉTTIR / HAMINGJA OG LÍFSSTÍLL Um lífsstíl og lífsvanda Erindi Sigurbjörns Einarssonar biskups við setningu Læknadaga 2005 Sigurbjörn Einarsson Höfundur er fyrrverandi biskup íslands. Mér finnst notalegt í meira lagi að vera kominn á læknafund og finna hvergi til. Það er ómetanlegt, að læknar eru lil og tiltækir í þörf en ennþá ómet- anlegra að þurfa ekki á lækni að halda. Eitthvert erindi ætti ég samt að eiga við ykkur. En varðandi viðfangsefni þessa þings kem ég með margar spurningar en fá svör, ef nokkur. En það góða boð hingað, sem ég hef þegið með þökkum, tek ég sem ósk og von og fyrirheit um nána samvinnu lækna og presta, heilbrigðis- stétta og kirkju í brýnni nauðsyn. Því fagna ég. Og ég vil þakka það, hvernig heilbrigðisyfirvöld og læknar hafa vakið athygli á uggvænlegum brestum í heilsufari hér á landi. Eg minnist í því sambandi skýrslu, sem heilbrigðisráðherra og landlæknir létu vinna, og birtist á síðastliðnu ári, og fjallaði um „streitubundin lífsstílsvandamál“. Ég veit ekki, hver hefur smíðað þetta orð, „lífsstílsvandamál", - kannski landlæknir, hann hefur ætterni til þess að vera orðhagur - en þetta er nýtt orð í íslensku máli. Það út af fyrir sig segir nokkuð. Orðið streita er ekki nýyrði, en það er nýtt í því hlutverki, sem það gegnir nú: Að tákna sjúklega ofurspennu í huganum. Nafnið á skýrslunni gefur ótvírætt til kynna, að sá sjúkleiki stafi beinlínis af því, hvernig við lifum nú á dögum, að ríkjandi lífsstíll eða lífernishættir séu miður hollir fyrir heilsuna. Þar með er ekki sagt, að orsakasamhengið sé auðrakið. Mannleg viðbrögð hafa ævinlega getað verið dularfull og meinleg örlög, sem margan hrjá fyrr og síðar, voru sjaldan auðskýranleg. En það er í augum uppi, að mannfélag nútím- ans, eins og það er í öllum nægtalöndum, er stór- um margbrotnara en áður þekktist í sögunni, það býður upp á möguleika eða tækifæri, sem virðast óþrjótandi, bara ef maður kann að grípa þau og neyta þeirra. En það er aldrei vandalaust að bregðast við stórum tækifærum eða eiga um margt og mikið að velja, það hafa menn vitað frá fornu fari, eins og þjóðsögur og ævintýri og goðsagnir þjóðanna sýna með órækum hætti. Þar má finna djúpvísan skilning á því, að stóru, gullnu tækifærin eru próf, sem unnt er að standast en ekki sjálfsagt. Og þar er bent á, að þegar maðurinn hefur glæstast gengi er honum hættast við að falla - fyrir sjálfum sér. A ráðstefnu um fyrrnefnda skýrslu kom margt íhugunarvert fram, þar var talað af ábyrgð og þekkingu og skírskotað með sterkum rökum til þjóðarinnar og hún beðin að athuga sig, íhuga og átta sig á, hvar hún er stödd. Og áhersla var lögð á það, að eitt brýnasta verkefnið til að bæta heilsu þjóðarinnar væri að draga úr hraða og streitu. Aðvaranir af sama tagi hafa komið fram marg- oft síðan og aldrei oftar né með meiri þunga en á næstliðnum vikum. Þetta vitið þið betur en ég. Ég er hættur að horfa á veröldina öðruvísi en útundan mér - það þýðir ekki að ég gefi henni hornauga undir lokin, því síður illt auga, en hún má vera fullsátt við það, að ég afskrifi hana eins og hún mig. En sú veröld, sem er á förum frá mér, er býsna ólík þeirri, sem tók á móti mér fyrst og ég átti við að kljást lengstum. Annars hef ég kynnst jarðneskri tilveru í mörgum myndum, en ég hef átt annan heim jafnframt, sem hefur aðeins eina mynd, albjarta. Það á ég Kristi að þakka, að ég á þann heim, veröld sem afskrifar mig ekki. Og engan mann. Og varpar sínu vonarljósi yfir þennan heim, á hverju sem gengur þar. Um þau hamskipti heimsins, sem ég hef lifað, gæti ég spunnið langan lopa fyrir ykkur. Ég sleppi því. En það vil ég segja, að mig langar ekki í þá veröld, sem var. Það er rnikill kostamunur á þjóð- félaginu nú og þá. Hvergi kveður meira að því en á sviði heilbrigðismála, þar hefur gerst eitt mesta og besta ævintýrið af mörgum, sem þjóðin hefur fengið að lifa á minni tíð. Samt getur sett að manni efa um, að heimurinn sé núna að öllu leyti hollari manninum en hinn, sem er farinn. En margt sameinar báða heima. Frumlægustu lífsskilyrðin eru hin sömu og lífsverðmætin einnig. I heimi nútímans má sjá og finna mikið af því, sem á öllum tímum og við allar aðstæður er mestur auður mannlífsins, en það er góðvild, hollur vilji, heilbrigð, mennsk viðhorf og viðbrögð. Það er slæm vanheilsa að taka ekki eftir slíku og kunna ekki að meta það né þakka. Skyldi eitt af meinum samtímans vera nokkurt ónæmi á einfaldar, góðar, ómissandi staðreyndir og samfara því visst ofnæmi fyrir hinu verra? Það hef ég oft sagt, að ef skugga- hliðar mannlífsins sækja á hugann, þá sé eitt besta ráðið að heimsækja sjúkrahús og hliðstæðar stofn- anir og finna þá hlýju, þá þolinmæði og fórnfýsi gagnvart sjúkum og hrumum, sem þar er látin í té. Og margoft þreifar maður á þeim leyndardómi, 56 Læknablaðið 2006/92
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.