Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2007, Page 18

Læknablaðið - 15.01.2007, Page 18
FRÆÐIGREINAR / ASTMI Tafla 1. Eðlileg Teppa Herpa FVC > 80% af áætluðu gildi Lækkað Meira lækkað FEV, > 80% af áætluöu gildi Meira lækkað Lækkað Hlutfall FEVj/FVC > 80% <70% >80% Mynd 1. öndunarmœling sem sýnirflata flœðilykkju bœði í inn- og útöndun. Row (l/s) 'v ■ J 0 1 2 3 4 5 6 Vol (I) var gerð aðgerð þar sem meirihluti skjaldkirtils var tekinn. Hægri lappi hans náði niður í brjósthol að ósæðarboga og þrengdi að barkanum. Skjaldkirtill var mikið stækkaður og vóg 299 gr (eðlilegur skjaldkirtill getur vegið allt að 30-40 gr) og mæld- ist hægri lappi 9,3x7,7x5,3cm 0g vinstri lappi Il,8x5,5x4,5cm. Yfirborð beggja lappa var hnútótt og við gegnumskurð sáust margir, misstórir, ljós- brúnir hnútar með lítilsháttar bandvef inn á milli. Smásjárskoðun leiddi í ljós marga misstóra hnúta sem samsettir voru úr misstórum skjaldkirtilsbelg- kirtlum (thyroid follicles). Útlitið í heild samrýmd- ist fjölhnúta skjaldkepp (multinodular goiter) eins og sýnt er á mynd 3. Sjúklingi heilsaðist vel eftir aðgerðina og hætti að nota astmalyf. Hún hefur ekki fundið fyrir neinni óeðlilegri andnauð. Endurtekin öndunarmæling sýndi að teppa var horfin og flæðilykkja var eðlileg útlits. Umræða Efri öndunarvegur nær frá nefi til barka. Þrengsli í efri öndunarvegi eru skilgreind sem minnkuð vídd efri öndunarvegarins sem veldur klínískum einkennum og geta verið af ýmsum toga. Þrengsli ofan raddbanda (supraglottic) geta meðal ann- ars orsakast af æxlum, áverkum og stækkuðum kirtilvef. í raddböndum (intraglottic) geta verið æxli, bólgusjúkdómar, bandvefsmyndun, lamanir og starfrænar truflanir sem valda skertu loftflæði. Fyrir neðan (infraglottic) raddböndin geta þrengsl- in til dæmis orsakast af áverka eftir langstæða barkaþræðingu vegna öndunarvélameðferðar, að- skotahlutum og utanaðkomandi þrýstingi vegna eitlastækkana. Einnig af ýmsum æxlum og öðrum fyrirferðum, meðal annars stækkuðum skjaldkirtli (1, 2). Þrengslum í efri öndunarvegi má einnig skipta í þrengingu innan brjóstkassa og þrengingu utan brjóstkassa. Þau hegða sér mismunandi í inn- og útöndun. Öndunarvegurinn innan brjóstkassa víkkar í innöndun vegna neikvæðs þrýstings í fleiðruholi. í útöndun er jákvæður fleiðruþrýsting- ur sem veldur því að loftvegurinn þrýstist saman og þrengist. Öndunarvegurinn utan brjóstkassa sem er ekki útsettur fyrir fleiðruþrýstingi fellur saman Mynd 2. Tölvusneiðmynd afhálsi og efri hluta brjóstkassa. Mesta lengd skjaldkirtils hœgra megin er 110 mm eins og sýnt er á myndinni og þvermál barka er5,6 mm. 18 Læknablaðið 2007/93 M

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.