Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2007, Síða 23

Læknablaðið - 15.01.2007, Síða 23
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Götótt sjúkratrygging og mismunun sjúklinga? Þeir sem njóta sjúkratrygginga á íslandi eiga rétt á bestu heilbrigðisþjónustu hverju sinni samkvæmt lögum. Inntak þessarar sjúkratryggingar er þó óljóst, breytilegt og háð dutllungum stjórnmála- manna. Þeir hafa tekið sér það hlutverk að deila út peningum til heilbrigðismála gegnum fjárlög en tryggingahugtakið hefur á sama tíma vikið. Jafnræði sjúklinga og hverjir njóta tryggingar pr því háð ákvörðunum stjórnmálamanna fremur en því hvort viðkomandi sjúklingur borgar iðgjald með sköttum sínum. Því vekur athygli vaxandi fjöldi einstaklinga sem er algerlega án sjúkratrygg- ingar þó þeir borgi skatta hérlendis. Töluverð umræða varð síðastliðið vor um hvort hér á landi væri að skapast tvöfalt heilbrigðiskerfi. Mörgum sýndist það vera í burðarliðnum, m.a. með tilvís- anakerfi sem sett var á hjartasjúklinga en enga aðra sjúklingahópa. Hvað er átt við með tvöföldu heilbrigðiskerfi? I mínum huga þýðir það að sjúklingar eru á ein- hvern hátt ekki jafnir innan heilbrigðiskerfisins. Einhverjir fá betri þjónustu en aðrir. Aðrir fá samskonar þjónustu en verða að leggja út meira fé fyrir henni, eða borga hana að fullu. Ójöfnuður- inn getur verið eftir búsetu, efnahag, hvaða líffæri er sjúkt, kynhneigð, húðlit, kyni, þjóðfélagshóp, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum eða öðrum viðlíka þáttum. En er fólki mismunað í heilbrigðiskerfinu? Svarið er því miður já. Nefnum nokkur dæmi: Fólki er mismunað eftir búsetu. Landsbyggðarfólk, sem þarf til læknis í Reykjavík oftar en tvisvar á ári, greiðir frá og með þriðju ferðinni sjálft ferðakostnaðinn. Sé um flugferðir að ræða getur það verið stór hluti sjúkrakostnaðar. Á sjúkrahúsum og læknastofum er langur biðlisti eftir sumum læknisaðgerðum, en lítill eða enginn eftir öðrum. Á sjúkrahúsunum eru sumir svo heppnir að fá að liggja á sjúkrastofu á meðan aðrir verða að gera sér að góðu að liggja á ganginum. Á lyflækningadeildum eru gangainnlagnir viðvarandi ástand en aðrar deildir þurfa aldrei að leggja á ganga sína. Gangainnlagnir eru ekki aðeins hættulegar út frá brunavarna- og endurlífgunarsjónarmiðum heldur líka óþægilegar og geta verið niðurlægjandi. Sjúklingunum er því mismunað eftir því hvað hrjáir þá. Hópurinn sem ekki nýtur heilbrigðisþjónustu innan almannatryggingakerfisins fer stækkandi hér á landi. Að stórum hluta vegna vaxandi fjölda sem er algerlega án sjúkratrygginga, í hálft ár eða Iengur, eftir búferlaflutninga til landsins. Gildir þá einu hvort um útlenda eða íslenska ríkisborgara er að ræða. Sé landið sem viðkomandi flytur frá ekki tilbúið að borga reikninginn, eða hafi samning við íslenska ríkið, er viðkomandi einstaklingur á eigin ábyrgð eða háður því að kaupa sér eigin tryggingu. Gallinn er bara sá að sumir sjúkdómar og aðstæð- ur eru undanþegnir slíkum einkatryggingum, t.d. áður þekktir sjúkdómar eða þungun og fæðing. Sumir hafa heldur ekki ráð á að kaupa sér slíka tryggingu. Þá verður viðkomandi að borga spít- alareikninginn að fullu komi eitthvað uppá. Fólk af erlendu bergi brotið, sem er við störf hérlendis greiðir yfir 6 milljarða í skatta árlega skv. nýlegum fréttum. Kostnaður Landspítala vegna fólks án sjúkratryggingar er 150-200 milljónir króna. Það er lág upphæð miðað við 6 milljarða skattagreiðslur. Að þessi hópur skuli ekki njóta opinberrar sjúkra- tryggingar er óeðlilegt, óréttlátt og siðferðilega rangt. Þeir eru búnir að borga fyrir sig með þessum sköttum og sumir jafnvel að auki með lífi sínu eða heilsu við störf hér á landi. Það er óréttlátt hvernig heilbrigðiskerfið fer með ófædd börn fólks sem er nýflutt til landsins. Mæðravernd og fæðingarhjálp eru ekki síst til að vernda ófætt barnið. Sé móðir barns sjúkratryggð á Islandi getur faðirinn verið frá Mars, mæðra- skoðanir og fæðingarhjálp eru samt greiddar af almannatryggingum. Sé faðirinn hins vegar sjúkratryggður en móðirin ekki er barnið rétt- laust með öllu. Hér kristallast ójafnrétti kynjanna, körlum í óhag. Séu báðir foreldrar nýlega flutt til landsins eru bæði þau og barnið líka réttlaus. Vart er það góð byrjun í nýju landi fyrir nýbakaða, fæð- ingarorlofslausa móður að skulda hálfa til eina milljón króna vegna fæðingar og eiga auk þess að greiða hér skatta og fóta sig í nýju landi. Hverslags réttlæti er það? Barni sem verður fyrir skaða á meðgöngu eða í fæðingu vegna ónógrar þjónustu má í mínum huga líkja við útburði fyrri alda. Auk þess getur fötlun slíks barns kostað þjóðfélagið stærri fjárhæðir en sparast með núverandi kerfi. Almannatryggingakerfið var skapað til að koma í veg fyrir að ákveðnir hópar þjóðfélags- ins væru ósjúkratryggðir. Ákveðin afturför hvað þetta varðar virðist hafa átt sér stað hin síðari ár. Eg hygg að þverpólitísk samstaða sé um að þetta sé ekki eftirsóknarverð þróun. Grunnspurningin er sú sama og við upphaf almannatrygginga fyrir 70 árum: Viljum við almannatryggingakerfi þar sem þörfin fyrir þjónustu ræður því hvort hún er veitt, fremur en efnahagur, þjóðerni, búseta eða slíkir þættir? Nýverið skipaði stjórn Læknafélags íslands starfshóp sem var falið að skoða inntak sjúkratrygginga landsmanna og stöðu trygging- anna í þjóðfélaginu. Það er að mínu viti tímabært og þarft framtak. Þórarinn Guðnason tlwrgudna@landspitali.is Höfundur er hjartalæknir á Landspítala og situr í stjórn Læknafélags íslands. I pistlunun Af sjónarhóli stjórnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Læknablaðið 2007/93 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.