Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.2007, Page 27

Læknablaðið - 15.01.2007, Page 27
UMRÆÐA & FRÉTTIR /SÉRFRÆÐILEYFI Eins og reglugerðin er núna nægir að fólk hafi gegnt aðstoðarlæknisstöðum á sérdeildum í nægilega langan tíma, kannski uppsafnaður tími í afleysingum á mörgum deildum og litlar sem engar upplýsingar um hvað viðkomandi nákvæmlega fékkst við á starfstímanum. Það er varla boðlegt að starfa eftir slíkum reglum í dag.” Helgi segir að reglugerðin standist vissulega samanburð við reglugerðir víða í Evrópu en ef litið sé til Norðurlandanna sérstaklega þá sé sam- anburðurinn okkur verulega óhagstæður. Þar hafi kröfurnar verið hertar á undanförnum árum og nú sé svo komið að íslenska reglugerðin um sér- fræðileyfi standi þeim norrænu verulega að baki. „Norðurlöndin hafa skipulagt sérfræðinám- ið mun betur og uppfært kröfur í reglugerðum sínum í samræmi við það og í sumum fögum hafa þeir hreinlega lengt sérfræðinámið. Og þar liggur okkar langstærsti vandi þar sem talsvert stór hópur erlendra lækna sækir nú um íslenskt sérfræðileyfi þótt þeir hafi engin áform um að starfa á íslandi. Langflestir þessara erlendu umsækjenda eru norsk- ir, en þeir eru að notfæra sér íslensku reglugerðina til að stytta nám sitt í Noregi um allt að tvö ár. Þetta eru fyrst og fremst læknar í bæklunarlækn- ingum og öðrum undirgreinum skurðlækninga svo sem lýtalækningum og einnig svæfingalækningum. Þessi fög eru lengri samkvæmt norskri reglugerð og þar eru gerðar mun ákveðnari kröfur um námsframvindu, þeir þurfa að halda skrá yfir allar aðgerðir sem þeir framkvæma og kröfurnar eru talsvert stífar um framgang í náminu. Við verðum að fylgja reglugerðinni og veita þessum umsækj- endum sérfræðiviðurkenningu þó vitað sé að þeir muni aldrei starfa á Islandi en séu eingöngu að þessu til að fá sérfræðiviðurkenninguna fyrr en ella. Samningar um að sérfræðiviðurkenning veitt af einu Norðurlandanna gildi á þeim öllum kemur þeim til góða að þessu leyti.” Helgi segir enga launung á því að íslenskir læknar séu ósáttir við þetta fyrirkomulag og telji að með þessu sé verið að rýra gildi íslenskrar sér- fræðiviðurkenningar. Það stangist á við þá ímynd sem menn vilja að íslenskt læknanám hafi á sér; að það sé með því besta og kröfuharðasta sem völ er á. Aðspurður um hvaða breytingar hann telji mögulegar á reglugerðinni til að mæta þeim auknu kröfum sem gerðar eru segir hann svarið í rauninni tvíþætt. „Annars vegar aðgerðir sem beinast að því að draga úr straumi umsókna erlendra lækna sem eru einungis að stytta sér leið í námi sínu og hafa alls ekki í hyggju að starfa hér á Islandi.Til að draga úr þessu gætum við farið sömu leið og Bretar hafa gert, að krefja umsækjendur um talsvert hátt leyfisgjald og boða þá hingað í viðtal. Það myndi eflaust draga úr ásókninni til muna. í dag kostar ekkert að fá íslenskt sérfræðileyfi og umsækjandi þarf ekki að koma hingað í eigin persónu, honum nægir að senda gögnin. Fleiri breytingar hafa verið skoðaðar, en erfitt er um vik vegna skuldbind- inga íslands við Norðurlöndin og EES. Síðan er eins og ég sagði í upphafi löngu tímabært að end- urskoða reglugerðina í heild með tilliti til breyttra aðstæðna, aukinnar þekkingar og meiri krafna um skipulagt nám og námsframvindu. Það er vinna sem ætti í rauninni að vera löngu komin í gang og reglugerð af þessu tagi þyrfti að endurskoða allt að því árlega ef hún ætti að vera í fullu í samræmi við framþróun í læknavísindum á hverjum tíma.” Úr reglugerð Heilbrigðisráðuneytisins um tilhögun veítinga sérfræðileyfa og skipan sérfræðinefndar 8. gr. Heimilt er aö veita sérfræðileyfi lækni, sem lokið hefur viðurkenndu sér- fræðinámi, sérfræðiprófi eða fengið sérfræðileyfi í löndum, sem gera sambærilegar kröfur um sérfræðinám og gert er í þessari reglugerð. Þetta er heimilt þótt námstilhögun sé frábrugðin ákvæðum 7. greinar. Veita má sérfræðileyfi í öðrum greinum en þeim er að framan greinir, ef fullnægt er kröfum um sérmenntun að mati sérfræðinefndar og um- sækjandi hefur sérfræðiviðurkenningu frá öðru landi. Sérfræðinefnd úrskurðar á sama hátt um veitingu sérfræðileyfa í nýjum undirgreinum. Sérreglurgilda um sérfræðileyfi sem uppfylla skilyrði EES-samningsins sbr. reglugerð nr. 244/1994. 9. gr. Heimilt er að synja lækni um sérfræðiviðurkenningu, þótt hann hafi fullnægt ákvæðum þessarar reglugerðar, ef sérfræðinefnd lækna- deildar telur að námið hafi ekki verið nægilega samfellt eða að óeðli lega langur tími hafi liðið frá því að hann lauk samfelldu sérnámi og þar til umsókn barst. 10. gr. Ráðherra skipar 3 lækna til að fara yfir og úrskurða um umsóknir til sérfræðileyfis, sérfræðinefnd. Skal einn vera úr hópi kennara lækna- deildar og er hann formaður nefndarinnar, annar skal tilnefndur af LÍ. og sá þriðji er forstöðumaður kennslu í þeirri grein sem til umfjöllunar er hverju sinni. Við afgreiðslu umsókna skal þegar við á, fulltrúi við- komandi sérgreinafélags boðaður á fund nefndarinnar. Fulltrúi lækna- deildar og L.Í. skulu skipaðir til 4 ára. Þeir annast fyrir hönd lækna- deildartúlkun og endurskoðun reglugerðarinnar I samráði við stjórn og sérgreinafélög L.í. Komi upp ágreiningur í nefndinni skal skjóta honum undir úrskurð læknadeildar. Læknablaðið 2007/93 27

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.