Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2007, Side 34

Læknablaðið - 15.01.2007, Side 34
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FJÖLSMIÐJAN Rafdeildin. Trésmíðadeildin. Þorbjörn Jensson forstöðumaður Fjölsmiðjunnar Hávar Sigurjónsson Heimsókn í Fjölsmiðjuna Gríðarlega góður árangur Á besta stað í Kópavogi, við Kópavogsbraut 5-7, er rekin starfsemi sem lítið lætur yfir sér en lyftir sannkölluðu Grettistaki á hverjum degi. Fjölsmiðjan undir stjórn Þorbjörns Jenssonar er vinnustaður ungmenna á aldrinum 16-24 ára sem hafa af ýmsum orsökum flosnað uppúr skóla og/eða gengið illa á fóta sig á vinnumarkaði. Blaðamaður Læknablaðsins heimsótti Fjölsmiðjuna einn dag fyrir jólin og hreifst mjög af þvíjákvæða og líflega andrúmslofti mannbætandi uppbyggingar sem þar ríkir. „Eigum við ekki að ganga um staðinn svo þú vitir betur hvað ég er að tala um,” er það fyrsta sem Þorbjörn segir við mig þegar ég er kominn inn fyrir dyrnar á Fjölsmiðjunni. Ég þigg það en bið hann samt að segja örlítið frá forsögunni, og hvað Fjölsmiðjan sé. Það kemur á óvart að heyra að Fjölsmiðjan hefur starfað um fimm ára skeið, þar hafa um 300 ungmenni starfað um lengri eða skemmri tíma og starfsemin stækkar sífellt, verður umfangsmeiri og tekur til fleiri starfsgreina. Vinnustaður en ekki skóli „Frumkvöðlar að stofnun Fjölsmiðjunnar var fólk frá Rauðakrossi íslands sem hafði kynnst svipuðu starfi í Danmörku við svokallaða produktion- skóla sem þar hafa verið starfræktir um árabil. Við sækjum fyrirmyndina þangað en höfum reyndar farið okkar eigin leiðir við uppbygginguna en erum í góðu sambandi við produktionskólann Elsesminde í Óðinsvéum. Við viljum reyndar ekki kalla þetta skóla, heldur vinnustað, enda er það réttnefni,” segir Þorbjörn um leið og hann opnar dyr að trésmíðaverkstæðinu. „Við Fjölsmiðjuna eru sjö deildir, trésmíða-, bíla-, hússtjórnar-, raf-, kennslu-, hönnunar-, skrifstofu- og pökkunardeild og framundan er að stofna sjávarútvegsdeild en Fjölsmiðjan hefur nýlega fest kaup á 150 tonna bát sem gerður verður út frá Hafnarfirði,” bætir hann við. Allt starf Fjölsmiðjunnar byggist upp á sam- starfi ungmennanna og starfsfólks Fjölsmiðjunnar sem reyndar er rangt að aðskilja með þessum hætti enda leggur Þorbjörn áherslu á að hann og hans fólk séu samstarfsfólk ungmennanna, leiðbein- endur að vísu en alls ekki starfsfólk sem annist skjólstæðinga. „Þetta er grundvallaratriði í hug- myndafræðinni að baki Fjölsmiðjunni, hér vinna allir saman og hér hafa allir rétt á að koma sjón- armiðum sínum á framfæri.” Ungmennin sem leita til Fjölsmiðjunnar eiga það sameiginlegt að hafa flosnað upp úr skóla- kerfinu í lok grunnskóla eða á framhaldsskóla- stigi og ekki náð að fóta sig í atvinnulífinu. Þunglyndisvandamál geta verið til staðar og sumir eru að ná sér á strik eftir meðferð við neyslu fíkniefna. „Við bjóðum þeirn að velja sér deild sem hentar þeim og þeirra áhugasviði. Við erum í góðu samstarfi við ýmsa aðila, svo sem Vinnumálastofnun, mennta- málaráðuneytið, félagsmálaráðuneytið og sveit- arfélögin á höfuöborgarsvæðinu,” segir Þorbjörn og útskýrir að samstarfið við Vinnumálastofnun felist í því að ungmennin fái greidd laun sem svari til fullra atvinnuleysisbóta séu þau 18 ára eða eldri, en þau sem eru 16-18 ára fá 80% af atvinnuleysisbótum. Samstarf við stofnanir og fyrirtæki „Þau geta einnig sótt skóla með vinnunni héðan og fá aðstoð til þess. Sumum hentar að taka lítið 34 Læknablaðið 2007/93

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.