Læknablaðið - 15.01.2007, Síða 39
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MINNINGAR HÉRAÐSLÆKNIS
frá Gilsbakka í Austurdal, næsta bæ við Merkigil.
Hann var á litlum Willys-jeppa með tvöföldum
keðjum á öllum hjólum.
Var nú haldið af stað upp Austurdal. Hjörleifur
taldi færið varasamt vegna hálku og vonlaust að
komast lengra en að Gilsbakka og sagði að ég
myndi verða sóttur þangað á hestum. Leiðin upp
dalinn liggur í fjallshlíð, sem er í fyrstu aflíðandi,
en verður því brattari sem innar dregur og dal-
urinn þrengist. Lækjarskorningar ganga allvíða
þvert á veginn, og voru lækirnir botnfrostnir og
uppbólgnir með svellbunkum, sem virtust sums
staðar ná niður í Jökulsárgil, en ég sá glitta í gilið,
þegar ofar dró í dalinn. Fór þá umhverfið að verða
skuggalegt í augum viðvaningsins. Tunglsljósið,
sem var dauft, setti á þetta hálfdraugalegan blæ.
Svellglottarnir í lækjaskorningunum og gilinu
bættu þar ekki urn.
Við mjökuðumst upp dalinn í fyrsta og öðrum
gír. Það fóru ónot um mig þegar hann var að
skrönglast yfir svellbunkana og ég var alltaf að
gefa gilinu gætur. Þegar við vorum komnir milli
bæjanna Keldulands og Stekkjarhóls komunt við
að læk, sent hafði breitt sérlega mikið úr sér og
myndað breiðan kúptan svellbunka, sem lá niður
eftir hlíðinni svo langt sem séð varð. Hér nam
Hjörleifur staðar og bað mig að fara út og ganga
yfir svellið, sagði að ráðlegra væri að einhver yrði
til frásagnar ef illa færi. Síðan tók hann lilhlaup og
hleypti á svellbunkann á eins mikilli ferð og unnl
var. Jeppinn skrensaði til þegar kom yfir undir
hinn bakkann og kom hálfflatur upp að bakk-
anum. Framhjólin náðu upp á bakkann, en þar
staðnæmdist jeppinn og spólaði. Lét Hjörleifur
hann spóla á fullri ferð, þar til afturhjólin höfðu
grafið sig niður í svellið það langt, að ekki var
hætta á, að hann rynni framaf. Stoppaði hann þá
jeppann og tókst svo að lempa hann upp á bakk-
ann. Ég staulaðist gangandi yfir og gekk það slysa-
laust. Hjörleifur lét sér hvergi bregða, var sýnilega
vanur slíkum uppákomunt.
Var ferðinni nú haldið áfram upp að Gilsbakka,
en þá var ekki bílfært lengra. Þar beið ein af systr-
unum á Merkigili, Elín að nafni, með hesta. Settist
ég nú upp á annað hrossið, en Elín upp á hitt, og
var síðan haldið af stað inn að Merkigili. Tók hún
læknatöskuna til varðveislu, hefur sennilega talið
að þar væri henni betur borgið. Bar nú ekkert til
tíðinda þar til við komum að svonefndu Stang-
arlækjargili um það bil miðja vegu milli Gilsbakka
og Merkigils. Þetta var alldjúpt gil og brattir harð-
fennisskaflar í gilsbörmunum beggja megin, þó
meira að sunnanverðu og örmjóir troðningar í
þeim, rétt að markaði. Elín fór á undan og teymdi
hrossið. Þegar hún var komin langleiðina upp á
syðri gilbarminn, missti hrossið fótanna. datt á
vinstri hliðina og síðan hrygginn og rann skáhalt
niður í gilið, lengst af á lendinni, að nokkru uppi-
sitjandi. Ferðin var svo mikil að það rann áleiðis
upp í hinn gilbarminn en staðnæmdist síðan og
kom undir sig fótunum. Mér fannst þessi atburður
furðulegur og jafnframt óhugnanlegur þarna í
tunglskímunni, ekki síst vegna þess, að ég vissi af
Jökulsárgilinu rétt fyrir neðan og fannst að ferðin
gæti allt eins vel endað þar niðri. Ekki sá ég Elínu
bregða við þetta. Hún fór þegjandi og sótti hrossið,
sem einnig tók þessu með jafnaðargeði, og teymdi
það aðra ferð upp skaflinn, og gekk þá allt vel. Ég
teymdi svo mitt hross á eftir.
Hjörleifur á Gilsbakka
með hundi sínum árið
1985 á svokölluðum
Höfða við Jökulsá.
Ljósmyndari óþekktur.
Myndin erfengin
úr Héraðskjalasafni
Skagfirðinga.
Fræðsludagur heimilislækna
3. mars 2007
Hinn árlegi fræðslu- og fagnaðardagur heimilislækna verður haldinn á
Nordica Hótel fyrsta laugardag í mars.
Öldrunarlæknar og endurhæfingarlæknar eru sem fyrr hjartanlega
velkomnir.
Fræðsludagurinn er sem áður skipulagður af FÍH og styrktur af
AstraZeneca.
Dagskrá hefst kl. 9.00. Nánari dagskrá verður send læknum sérstaklega.
Fræðslunefnd FÍH
AstraZeneca
Læknablaðið 2007/93 39